Bæjarins besta - 01.07.1986, Síða 7
EÆIARiNS BESTA
7
Glæsilegur árangur keppenda í
sundi (og foreldranna líka)
Um helgina fór fram á ísafirði
Meistaramót Vestfjarða í sundi.
Þrjú félög tóku þátt í því og urðu
heildarúrslit þessi:
Sunddeild Vestra 485 stig.
Umf. Bolungarvíkur 167 stig.
Umf. Grettir Flateyri 66 stig.
Stigahæstu einstaklingarnir
urðu þessir:
í karlaflokki Ingólfur Arnarson
Vestra með 730 stig fyrir 100 m
skriðsund á 54.8 sek. Það er
Vestfjarðamet karla og pilta.
í kvennaflokki Helga Sig-
urðardóttir Vestra með 773 stig
fyrir 100 m skriðsund á 59.7 sek.
Þetta er annað skipti sem íslensk
kona nær betri tíma en einni
mínútu. Tíminn er að sjálfsögðu
Vestfjarðamet kvenna og
stúlkna.
í flokki sveina Hlynur Tryggvi
Magnússon Vestra með 336 stig
fyrir 50 m skriðsund á 32.4 sek.
í flokki meyja Halldóra Svein-
björnsdóttir UMFB með 435 stig
fyrir 50 m skriðsund á 33.8 sek.
Ólafur Þór Gunnlaugsson
þjálfari Vestra sagði að fram-
kvæmd mótsins hefði verið til
mikillar fyrirmyndar, en hún var í
höndum foreldra keppendanna i
Vestra. Hann sagði að annars
staðar væri jafnan basl að ná
saman fólki til að vinna við mót,
tímavörðum og dómurum, en hér
gegnir öðru máli.
Þetta starf foreldranna er mjög
ánægjulegt. Áhugi þeirra og
stuðningur á vafalaust mikinn
þátt í glæsilegum árangri
keppendanna.
„Gömlu mennirnir“ í B.í. velgja þeim
yngri undir uggum í 4. deiidinni
Badmintonfélag ísafjarðar
starfar vissulega í samræmi
við nafnið, en í sumar á það
sér einnig aðra tilveru. Undir
nafni B.í. keppir eitt af fótbolta-
liðunum í Vestfjarðariðli 4.
deildar.
Þarna eru á ferðinni menn,
sem eru að réttu lagi hættir
keppni. Þar á meðal eru ýmsir
gamlir leikmenn f.B.Í.
Þessir menn hafa í mörg ár
verið að leika sér að sparka, hafa
alltaf æft og leikið æfingaleiki.-Nú
tóku þeir sig saman og mynduðu
lið til að stuðla að því að hgegt
yrði að vera með sérstakan riðil í
4. deildinni á Vestfjörðum, en
ákveðinn lágmarksfjölda þarf til
þess. Eitthvað varð þetta lið svo
að heita í bókum Í.S.Í., svo að
nafn B.í. var fengið til afnota. Það
er ekki óeðlilegt, því að margir
liðsmenn eru virkir badminton-
menn.
Af leikmönnum B.í. í fótbolta
má nefna Pétur Guðmundsson
markvörð, sem sagður er geta
leikið allar greinar íþrótta, Sigga í
Blómabúðinni, Óla Reyni Ingi-•
marsson, Tryggva Sigtryggsson,
Jakob Ólason, Arnór Jónatans-
son og Jóhann Torfason, sem
reyndar hefur ekki getað leikið
nema einn leik í sumar. Liðs-
menn vonast til að Björn Helga-
son sem raunar er formaður B.í.
nái sér fljótt og vel af bak-
meiðslum, því að hann á öruggt
sæti í liðinu þegar hann er heill
heilsu.
Líklega er varla eins mikil
alvara á bak við þátttöku B.í. og
annarra liða. Þannig er enginn
sérstakur þjálfari og búningamál
eru ekki í föstum skorðum.
Sumir halda því að þátttaka
B.í. í 4. deildinni sé hálfgert grín,
en óhætt er að segja að það var
ekkert grín fyrir Höfrung á Þing-
eyri og Stefni á Súgandafirði að
fá B.í. á móti sér. Gömlu
mennirnir lögðu bæði þessi lið að
velli, 3-0 og 2-0. Auk þess tapaði
B.í. fyrir Reyni í Hnífsdal 0-1, en
fyrir Bolvíkingum (U.M.F.B.)
tapaði liðið ansi stórt, 2-8.
En þegar á heildina er litið
hefur fótboltalið B.í. staðið sig
með sóma, hvernig sem á það er
litið.
(Byggt á spjalli við Jakob Ólason
í Frábæ).
Fyrsti sigur Í.B.Í.
- og síðan tap
í síðustu viku fékk annarrar
deildar lið Í.B.Í tvær heimsóknir.
Á þriðjudag kom Völsungur frá
Húsavík og loksins vann lið Í.B.Í.
sanngjarnan . sigur - fyrsta sigur
sinn í sumar (2-0). Guðmundur
Gíslason skoraði bæði mörkin.
Á sunnudag kom lið Selfoss.
Þá gekk ekki eins vel því að
gestirnir unnu 3-1. í fyrri hálfleik
var einstefna að marki Í.B.Í. og
Guðmundur Gíslason
skoraði Jón G. Bergs öll mörk
Selfyssinga. Seinni hálfleikur var
miklu skárri hjá ísfirðingum. Þeir
sóttu öllu meira en gestirnir, sem
áttu þó hættulegar skyndisóknir á
milli. Eina mark hálfleiksins
skoraði Guðmundur Jóhanns-
son.
Nýr hópur í
Öldungadeild
Nýr hópur mun hefja nám í Öld-
ungadeild M.í. í haust. Nærri
þrjátíu hafa þegar látið skrá sig
og enn er pláss.
Hins vegar eru umsóknir um
vist í 1. bekk dagskólans óvenju-
fáar eða ekki nema um 40. Við
því var þó búist, því að 9. bekkur
var sérlega fámennur.
Bankastarfsmaður
óskar eftir að taka 2-3 herbergja
íbúð á leigu sem allra fyrst.
Upplýsingar í síma 4175.
Til sölu
er Datsun Cherry árgerð 1983.
Skipti á ódýrari bíl koma til greina.
Upplýsingar í síma 3642 eftir kl. 6.
Seglbretti
Til sölu sem nýtt Hi-Fly seglbretti.
Upplýsingar gefur Grétar Þór í
síma 6121.
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast til leigu á ísafirði
eða I Bolungarvík.
Upplýsingar í síma 99-3496.
Húsnæði óskast
3-5 hjerbergja íbúð óskast á leigu
frá ágúst/september n.k. I 12-18
mán. Fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í síma 4554.
Heimabingó
Jæja bingóspilarar!
Þegar þetta birtist hlýtur einhver
að vera kominn með BINGÓ. fyrir
þá sem hafa misst einhverjar tölur
úr eða ekki getað fylgst með, þá
ætlum við nú að birta allar tölur
sem dregnar hafa verið út frá
upphafi. Dragið nú fram spjöldin
ykkar og farið yfir.
Tilkynnið BINGÓ í sima 3650.
I-23 G-53 0-72 B- 4
1-17 G-49 N-40 N-41
G-54 0-71 G-46 0-66
B-13 0-75 0-61 1-18
N-36 N-44 B-15 N-35
B- 8 N-43 N-32 I-24
1-19 0-74 N-37 G-48
I-29 B- 2 N-33 I-28
0-68 0-63 0-70 N-31
B- 9 B-14 B-10 I-20
N-39 I-25 0-67 I-30
G-60 B- 1 G-47 G-55
G-51 N-45 0-69 G-56
B- 6 B- 5 0-73 0-65
B-11 G-50 I-26 N-38
Óska eftir
góðum, öruggum starfsmanni á
útkeyrslubíl.
Upplýsingar í síma 7148
Vöruflutningar
Ármanns Leifssonar
Bolungarvik.
Tapast hefur
hvítt seðlaveski á leiðinni
Brúarnesti - Holtahverfi.
Upplýsingar I síma 3552
Fundarlaun
Hermann
Leiguskipti.
3 herb. íbúð í Reykjavík óskast I
skiptum fyrir 3 herb. íbúð á ísafirði.
Upplýsingar í síma 4040.
Smáauglýsirig í BB
er góð auglýsing.
Smáauglýsing í BB
kostar ekkert.