Bæjarins besta - 30.09.1986, Blaðsíða 1
BÆJARINS BESTA
30. SEPTEMBER 1986
3. ÁRGANGUR
40.
Jk
Eigum til eða getum útvegað með
stuttum fyrirvara allt til tónlistarskólans
Hljómtorg
AÐALSTRÆTI 27 — Sími 3072
WS4
Kjördæmisþing Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum:
Þuríður Pétursdóttir
gefur ekki
Alþýðubandalagsmenn á Vest-
fjörðum héldu kjördæmisþing sitt á
Suðureyri um helgina. Þar var
ákveðið að hafa forval vegna
alþingiskosninga í tvennu lagi á
næstunni, dagana 26. október og
16. nóvember.
En það sem margir biðu helst
eftir, voru yfirlýsingar hugsanlegra
kandidata um að vera eða vera
ekki. Og skýr svör komu frá þremur:
Kjartan Ólafsson er ákveðinn í því
kost á sér
að hætta að berjast fyrir þingsæti á
Vestfjörðum, Þuríður Pétursdóttir
gefur ekki kost á sér í neitt efstu
sætanna, en Magnús Ingólfsson á
Vífilsmýrum kvaðst vera tilbúinn í
slaginn.
Nú virðast horfur á því að
baráttan standi einkum á milli þeirra
Finnboga Hermannssonar í Hnífs-
dal, Kristins H. Gunnarssonar í
Bolungarvík og Sveinbjöms Jóns-
sonar á Suðureyri, auk Magnúsar.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins:
Sighvatur og Karvel
báðir í baráttuna
Aðalfundur kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins á Vestfjörðum var
haldinn í Hnífsdal um helgina.
Fundinn sátu um 40 manns og
var þar einkum rætt um prófkjör,
verkalýðsmál, almenn málefni
kjördæmisins og stjórnmála-
viðhorfið.
Á fundinum var ákveðið að
halda prófkjör seint í nóvember.
Það verðu opið öllum þeim sem
eru ekki flokksbundnir í öðrum
stjórnmálasamtökum, eru ekki
yfirlýstir stuðningsmenn annarra
flokka og hafa ekki tekið þátt í
öðrum prófkjörum. Þeir sem eru
ekki flokksbundnir í Alþýðu-
flokknum munu þurfa að undirrita
yfirlýsingu í þessa veru.
Þeir Sighvatur Björgvinsson og
Karvel Pálmason voru báðir á
fundinum, og lýstu því báðir yfir
að þeir gæfu kost á sér í fyrsta
sæti á lista Alþýðuflokksins.
Ægir Hafberg sparisjóðsstjóri
á Flateyri var kosinn formaður
stjórnar kjördæmisráðsins, en
hann var áður varaformaður.
Fráfarandi formaður, Björn
Gíslason byggingameistari á
Vatn á myllu...
Um síðustu helgi var nóg að gera hjá unga keppnisfólkinu
okkar i Sunddeild Vestra. Reyndar ekki svo að skilja að
venjulega liggi hópurinn i leti og telji skýin.
En núna tók mannskapurinn að sér að ryðja ofan i
vatnleiðsluskurðinn hjá Einari og Birgi s.f. fyrir ákveðna
upphæð á hvern metra.
Þessi mynd er tekin fyrir ofan Urðarveg þar sem harð-
snúnar stúlkur voru að róta yfir leiðsluna sem flytur vatnið
sem þær ætla að synda i.
Patreksfirði, gaf ekki kost á sér
áfram. Aðrir í stjórn eru Konráð
Jakobsson, ísafirði, Daði Guð-
mundsson, Bolungarvík, Ást-
hildur Ágústsdóttir, Patreksfirði,
og Jón Guðmundsson, Bíldudal.
Þeir Konráð og Jón eru nýir í
stjórninni.
Að sögn Ægis Hafberg var
þetta góður og gagnlegur fundur
og mikill einhugur ríkjandi meðal
Alþýðuflokksmanna á Vest-
fjörðum.
SIEMENS ELDAVÉLAR
Eldavélar með blástursofni og klukku.
Þessar vélar fást með keramik-hellum.
Litir: Brúnt eða hvítt.
Verð og greiðsluskilmálar við allra hæfi.
Vertu öruggur, Siemens er gæðavara
sem stendur fyrir sínu.
POLLINN HF ■ Verslun sími 3792 — Raf þjónusta sími 30921