Bæjarins besta - 30.09.1986, Side 4
4
BÆIARINS BESTA
Hákur.... (VI
Guðmundur H. Ingólfsson
beðinn afsökunar
Eru framámenn
almenningseign?
Það sem Hákur skrifar, skiptir
minnstu máli í umræðunni. Eftir
stendur það, að menn verða
metnir af verkum sínum eins og
þau birtast almenningi. Almenn-
ingur er oft óvæginn dómari. Því
verður seint breytt. Almenningur
ætlar sér það vitandi eða óaf-
vitandi að fá að ræða um þá
menn sem standa í sviðljósinu.
Flestir slíkra taka því með þögn-
inni og sætta sig við þau
óþægindi sem fylgja. Það mundi
æra óstöðugan að hrökkva
stöðugt við þegar nafn hans
berst í tal. Menn með margra ára
eða jafnvel áratuga reynslu af
stjórnmálum gera sér flestir grein
fyrir þessari staðreynd. Lesendur
geta rétt ímyndað sér hvernig
Steingrímur Hermannsson, Al-
bert Guðmundsson eða Guð-
mundur J. Guðmundsson gerðu
eitthvað annað en það eitt, að
lesa eða hlusta á umsagnir um
sig, ef þeir hrykkju við í hvert
skipti, er nöfn þeirra heyrðust
nefnd.
Þessir þrautreyndu menn
virðast oftast láta slíkt sem vind
um eyru þjóta. Hinu er ekki að
neita, að stundum hljóta þeir og
aðrir að hrökkva við. Þessir um-
töluðu menn, svo ekki séu fleiri
dæmi tekin, hafa gert sér grein
fyrir því, að þeir eru almennings-
eign í vissum skilningi. Þeir
virðast hafa tekið þann kostinn
að haga sér í samræmi við það.
Menn sem telja sig hafa hæfi-
leika og getu til þess að vera í
forsvari eru margir. Sumir hafa
hvorutveggja í raun. Því fylgir
böggull skammrifi. Þeir verða að
sætta sig við umtalið, nánast
möglunarlaust. Þeir verða að
sætta sig við þetta undarlega
eignarhald almennings. Það er
fólgið í ýmsu. Hinn almenni
LANGLOKUR
BLÖÐ OG
TÍMARIT
PÍTUR OG KORNSTANGIR
TVISVAR TIL ÞRISVAR í VIKU
GOSlsf
Mánagötu 2, sími 4275
Hákur hefur oft skrifað bæði um
menn og málefni. Dómar Háks
um menn eru fátíðir og afar var-
færnislegir. Hitt er svo annað
mál, að stundum hefur ýmislegt
verið haft eftir. Þá hefur ekki verið
hirt um að geta heimilda. Oftar
en ekki hefur verið tekið upp það,
sem Gróa á Leiti hefur sagt.
Götuhornatal tíðkast um of í
þéttbýli við Djúp. Nú hefur svo
slysalega tekist til, að vel kynntur
maður hér vestra telur að sér
vegið. Guðmundur H. Ingólfs-
son, Holti, Hnífsdal, er beðinn
afsökunar. Það kann að reynast
varhugavert að færa í letur orð-
róm eins og þann, sem gerður
var að umtalsefni í síðasta tölu-
blaði. Svo reyndist í umrætt sinn.
Hins vegar skal því ekki neitað,
að í máli þeirra sem færðu Háki
þessa sögusögn gætti aðdáunar.
Háki þótti hugmyndin góð. Það
var ekki tilgangurinn að gera lítið
úr Guðmundi H. Ingólfssyni. Það
væri fáránlegt. Maðurinn hefur
hlotið víðtækari kynningu á
undanförnum áratugum en svo,
að það hvarfli að nokkrum skyn-
sömum manni að hafa uppí til-
burði í þá áttina, hvað þá meira.
Eftir stendur þá það, að
Guðmundur telur að þau orð,
sem viðhöfð voru og tengdust
nafni hans, séu óviðeigandi.
Þess vegna er rétt að biðja einnig
hina þrjá, sem nefndir voru,
afsökunar á því, að þeir skuli
tengjast umræðunni með þess-
um hætti.
borgari telur sig eiga, með réttu
eða röngu, aðgang að forystu-
mönnum sínum.
í þeim rétti, ef rétt má kalla, telja
margir að óvægin gagnrýni kunni
að vera fólgin. Ýmsir framámenn
hafa ótrúlega mikið um hagi
samborgara sinna að segja. Þeir
ráða jafnvel með ýmsum hætti
örlögum fólks. Stjórnmálamenn
hafa langoftast hlotið traust sam-
borgara sinna til stjórnmálastarfa
í almennum kosningum. Þannig
eru þeir með vissum hætti orðnir
almenningseign. Við því er
ekkert annað að gera en horfast í
augu við raunveruleikann og
sætta sig við staðreyndir.
Staðreyndin virðist sú, að
framámenn, ekki síst stjórnmála-
menn, teljist vera almennings-
eign. Því verða menn að sæta
hvort sem þeim líkar betur eða
verr.
Aftur að upphafinu
Svo vikið sé að því, sem gaf
tilefni til þessarar efnisumfjöllun-
ar, þá er það ekki og hefur aldrei
verið tilgangur þessara skrifa, að
gera hlut nokkurs manns minni
en hann er í raun. Nær væri að
segja hið gagnstæða.
Fólk sem tekur þátt í opinberri
baráttu fyrir frama sínum verður
sjálft að hefja hlut sinn á loft.
En því má ekki gleyma að við
þær aðstæður, sem ríkja þegar
efnt er til prófkjörs í jafnstórum
flokki og Sjálfstæðisflokknum, er
allt skoðað í smásjá, sem varðar
einstaka frambjóðendur. Þetta
veit fólk sem lagt hefur fyrir sig
félagsmálastörf.
Þegar fólk veit að menn
sækjast eftir fjárforræði í al-
menningsþágu vill það vita
margt. Það hugsar margt og
segir ýmislegt, sem betur mætti
kyrrt liggja. Ekki síst ef það á
völina.
Fjárforræði bar einnig á góma í
tengslum við bæjarsjóð ísafjarð-
ar í síðasta tölublaði.
Hákur vonar svo sannarlega
að enginn hafi farið meiddur út úr
þeirri umfjöllun.
SAMLOKUR
(heitar og kaldar)
PIZZUR
ÍS
GOS
SÆLGÆTI
SNAKK
KEX
KONFEKT í POKUM
PYLSUR
HAMBORGARAR
Fyrírtækjaþjónustan
Rekslrarráðgjöf—Bókhaldsstofa — Framlalsaðstoð
Ragnar Haraldsson
Posthólf 210
415 Bolungarvík
Sími 7570