Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.09.1986, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 30.09.1986, Blaðsíða 7
RÆIARINS BESTA 7 Keðjuhús á Stakkanesi Guðjón Harðarson og Jón Gíslason við nýju húsin á reisugildisdaginn. Um daginn var reisugildi inni á Stakkanesi, þar sem Guð- mundur Þórðarson bygginga- meistari er að byggja raðhús, eða öiiu heldur keðjuhús. Flaggað var á þremur húsum að þessu sinni. Þau heita Stakkanes 8, 10 og 12, og eru þegar seld. Að auki hefur Guð- mundur undirbúið grunna fyrir næstu þrjú hús, sem verða nr. 2, 4 og 6. Keðjuhús þessi eru einkum merkilegt að því leyti, að þar erallt rými nýtt svo sem framast er kostur. Og það eru fleiri en Elías og Ásthildur Þórðar sem vilja lengja sumarið og hafa garðinn í húsinu hjá sér. Húsunum hans Guðmundar fylgja garðstofur, þar sem sumarið ríkir tólf mánuði á ári. Guðmundur Þórðarson hefur byggt mikið á ísafirði, nú síðast Aðalstræti 20, þar sem svalirnar frægu voru sagaðar af. Ýmislegt annað basl var í kerfinu út af því húsi. Þeir Guðjón Harðarson og Jón Gíslason hafa unnið mest við nýju húsin á Stakkanesinu, en þeim til aðstoðar var Óskar Ármannsson háskólanemi. Verk- ið hafur gengið mjög vel, að sögn Guðmundar Þórðarsonar, og þakkaði hann það fyrst og fremst þessum úrvalsmönnum sem hjá honum vinna. Um dreifingu BÐ Það kemur sjaldan fyrir, sem betur fer, að verulegur mis- brestur verði á dreifingu blaðsins okkar. En ef þið þurfið að koma einhverju á framfæri varðandi út- burðinn, þá er einfaldast og árangursríkast að ræða milliliða- laust við þá sem sjá um hann. En að öðru leiti minnum við á símann okkar 4560. Þess vegna birtum við hér skrá um þá, sem annast dreifingu í einstök hverfi. Sigríður Gunnarsdóttir, Kjarr- holti 3, sími 4213: Holtahverfi efra; Stórholt, Sunnuholt, Móholt, Lyngholt, Kjarrholt. Eyþór Valgeirsson, Sunnuholti 4, sími 3421: Holtahverfi neðra; Árholt, Brautarholt, Fagraholt, Góuholt, Hafraholt. Bjarni Heimisson, Árvöllum 5, sími 3918:Hnífsdalur Bertha Sigmundsdóttir, Stakka- nesi 18, sími 4113: Aðalstræti, Hafnarstræti, Grundargata, Skólagata, Norðun/egur, Pól- gata, Mjallargata, Mánagata. Jens Andri Fylkisson, Fjarðar- stræti 15, sími 3745: Fjarðar- stræti, Mjógata, Austurvegur, Sundstræti. Halldóra Ó. Brynjólfsdóttir, Miðtúni 37, sími 3813: Miðtún, Sætún, Seljalandsvegur frá Engjavegi. Ragnheiður Grétarsdóttir, Urð- arvegi 49, sími 4244: Túngata, Krókur, Eyrargata, Sólgata, Hrannargata. Sigríður Erlendsdóttir, Urðar- vegi 49, sími 4191: Hlíðarvegur, Hjallavegur Heiðrún Tryggvadóttir, Urðar- vegi 21, sími 3981: Urðarvegur, Engjavegur, Dvalarheimilið Hlíf. Kristjana Magnúsdóttir, Sund- stræti 15, sími 3658: Silfurgata, Tangagata, Skipagata, Brunn- gata, Þvergata. Alfhildur Jónsdóttir, Vitastíg 15, sími 7336: Bolungarvík. ^ Kaupfélag ísfirðinga Nýkomið! SPAR-vörur á góðu verði Hille-kremkex, 3 teg. 46.90 Kike sjampó Kike hárnæring Borðklútar Gólfklútar Viskustykki Eldhúsrúllur 72.40 124.00 31.00 31.00 39.70 125.00 Vorum að taka upp gömul kerti á góðu verði! Spáðu í verðið og kertin - þau eru eitt af því fáa sem verður betra með aldrinum. VERIÐ VELKOMIN! KAUPFELAGISFIRÐINGA

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.