Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Side 4
“Ég verð búin að reka kaffihúsið í Gerðubergi í fjögur ár
um áramótin,” segir Evelyn Rodriguez. Ég opnaði Cocina
Rodriguez 2. janúar 2017. Vinkona mín benti mér á að verið
væri að leita eftir fólki til þess að taka við þessum rekstri.
Ég spurðist fyrir og var boðuð á fund. Ég var búin að hugsa
þetta aðeins. Hugsa um hvernig ég vildi gera þetta. Við ræddu
málin. Ég sagði já og hef verið hér síðan.”
Þegar Evelyn opnaði kaffihúsið
höfðu orðið miklar breytingar í
Gerðubergi. Kaffihúsið hafði verið
fært til. Opnað inn í bókasafnið
og allt pláss aukið. Gert var ráð
fyrir að fólk gæti nýtt safnið og
gætt sér á veitingum í leiðinni.
Aðstaða til fundarhalda hafði
einnig verið bætt og allt umhverfi
var orðið opnara og aðgengilegra.
Kaffihúsið í Gerðubergi hafði
um árabil boðið upp á máltíðir
fyrir heldri borgara sem gestir
félagsstarfsins í Gerðubergi og
einnig íbúar í byggingum austan
menningarhússins. Þegar Evelyn
tók að sér rekstur kaffihússins
útbjó hún nýjan matseði l
nokkuð ólíkan því sem daglegir
gestir höfðu átt að venjast. Hún
raðaði saman hugmyndum úr
hefðbundinni matarmenningu
á Íslandi einnig frá sínum fyrri
heimkynnum. Hún lagði einnig
aukna áherslu á grænmeti
við matargerð. Svo bar við að
fljótlega nutu réttir hennar
frábærra vinsælda. Fastir gestir
endurnýjuðu komur sína og nýir
bættust í hópinn. En hvaða kemur
þessi kraftmikla kona sem hefur
drifið veitingarekstur í Gerðubergi
upp eftir að hann hafði ekki notið
sín nægilega vel.
Frá Dómíníska lýðveldinu
“Ég er frá Dómíníska lýð
veldinu sem er land á eystri
hluta eyjunnar Hispaníólu einni
af eyjunum í Karíbahafi með
landamæri að Haítí í vestri.
Ég kom hingað þegar ég var 21
árs. Kom fyrst til Akureyrar.
Ég á frænku sem býr þar. Ég
kynntist vini mannsins hennar
og við gi ftumst. Ég bjó á
Akureyri til ársins 2004. Þá var
hjónabandið búið og ég fluttist
til Reykjavíkur.” Evelyn er lærður
blómaskreytingamaður en fór að
starfa við ólíkan iðnað á Akureyri.
Það er matvælaiðnað. “Ég var að
leita mér að vinnu og fékk starf
hjá Kjarnafæði. Þetta var allt nýtt
fyrir mér. Ég hafði aldrei unnið
við matvælaiðnað sem er mjög
ólíkt blómaskreytingunum og allt
annað umhverfi. Miklu harðari
vinna. Þetta voru mikið viðbrigði.
Ég fór líka í Verkmenntaskólann
á Akureyri til þess að læra
íslensku. Ég vissi að ég yrði
að læra íslensku ef ég ætlaði að
vera hér áfram.” Evelyn segist
nota íslensku dags daglega en
tala spænsku heima við börnin
og oft líka í vinnunni ef hún er
með spænskumælandi fólk með
sér. “En ég held mig líka ákveðið
við íslenskuna. Ég hef orðið
vör við að þegar fólk sér að ég
er útlend þá vill það fara að tala
ensku. Ég forðast það. Við tölum
bara íslensku við Íslendinga. Segi
stundum að ég tali ekki ensku.”
Evelyn segir skemmtilega sögu
að viðskiptum sínum við VÍS.
“Ég hafði sent þeim fyrirspurn
í tölvupósti. Skrifaði hana á
íslensku. Ég beygi ef til vill ekki
alveg rétt þótt ég reyni. Og svo
er það spænskættaða nafnið mitt.
Ég fékk svar á ensku. Sú sem
svaraði mér talar eflaust ekki
spænsku en hefur haldið að enska
hentaði mér betur en íslenskan.
En samt undarlegt að fá svar á
öðru tungumáli en ég skrifað. Ég
svaraði til baka á íslensku og sagði
að þannig vildi ég hafa það.”
Var alltaf vel tekið
Evelyn bjó í 12 ár í Vestur
berginu en býr nú í Safamýri. “Ég
festi kaup á 76 fermetra íbúð í
Vesturberginu 2005. Ég var yngsta
manneskjan í sjö hæða stigagangi
alla vega til að byrja með. Ég var
þó aldrei vör við annað en að
mér væri tekið vel. Ég var með
yngstu systur mína hjá mér og
átti orðið tvö börn. Því var orðið
þröngt um okkur. Ég ákvað því
að selja íbúðina og fann íbúð í
Safamýri, Hún er á fyrstu hæð sem
er betra fyrir krakkana. Við erum
beint á móti skólanum þeirra. Ég
fékk systur mína hingað fyrir sex
árum. Hún býr núna fyrir norðan.
Á Hrafnagili við Akureyri. Hún
stefnir að því að læra matreiðslu.”
Amma að verða 105 ára
Fjölskyldan í Dóminínska
lýðveldinu. Ertu í góðu sambandi
við hana. “Já – ég legg mikið upp
úr því. Hef reynt að fara þangað
á hverju ári. “Fjölskylda mömmu
flutti reyndar til Bandaríkjanna
þegar ég var ung. Ég á systkyni
í New York og Boston. Ég á líka
skyldfólk á Spáni. Í Madrid og
Barcelona. Það hentar mér vel að
eiga skyldfólk í Bandaríkjunum.
Ekki er um beint flug að ræða
héðan til Dóminíska lýðveldisins.
Ég þarf að millilenda og þá nota ég
tækifærið að hitta ættingja mína
þar.” Móðir Evelyn dó þegar hún
var 12 ára. Varð fyrir voðaskoti.
“Faðir minn er hins vegar á lífi og
amma er að verða 105 ára. Verður
það í febrúar. Ótrúlega hress þrátt
fyrir þennan háa aldur.” Evelyn
tekur farsímann upp og sýnir
tíðindamanni upptöku af ömmu
sinni þar sem hún er að dansa.
“Er þetta ekki ótrúlegt,” segir
hún. Evelyn á tvö börn. Tíu ára
dreng og sjö ára stúlku. Þau eru
af dómeníksum uppruna eins
og mamman. “Ég er einstæð
móðir í dag en á vin í Dóminíska
lýðveldinu. Það er nokkuð langt
á milli en ég geri ráð fyrir að
hitta hann í sumar ef losnar um
ferðatakmarkanir og ég kemst út.
Hann er byggingarverkfræðingur
og starfað þar ytra. Hlakka til að
hitta hann. Hann hefur íhugað að
flytja hingað því ég er ekki tilbúin
að fara aftur út til að setjast þar
að. Ég er ef til vill ekki auðveldasta
manneskja í sambúð. Bæði með
fyrirtæki og tvö börn. Ef ég fer í
sambúð verður sambýlingurinn
að taka þátt í lífinu með mér
heimilishaldi sem öðru. Við
verðum bara að bíða og sjá hvað
verður. Hvort draga mun úr covid
faraldrinum. Í dag er allt hálf
stopp út af honum.”
Stöðugt sumar,
fellibyljatími og
misskipting
Evelyn segir að samfélagið í
heimalandi hennar sé allt annað
en hér á landi. “Veðráttan er
með öðrum brag. Það er sumar
allt árið. Fellibyljatíminn gengur
yfir á haustin. Hann getur verið
erfiður. Miklar rigningar og
stormar á milli. En það er líka allt
önnur stemming í samfélaginu.
Fólk er mikið úti. Hittist og
spjallar saman. Fólk situr mikið
úti fyrir utan heimili sín. Heilsar og
spjallar jafnvel við þá sem labba
fram hjá. Það er líka mikil fátækt
víða. Atvinnuleysið er mikið. En
samfélagið er skipt. Sumir eru
efnaðir. Jafnvel ríkir og búa í allt
að 500 fermetra húsum.”
Fór að undirbúa veislur
Svo dastu inn í veitingageirann?
“Já – það má segja það. Ég byrjaði
að þjóna á Hótel Loftleiðum þegar
ég kom að norðan 2005. Ég var
ekkert við eldamennskuna þar en
hafði engu að síður áhuga á mat
og gaman af því að elda. Á meðan
ég var að vinna hjá Kjarnafæði fór
ég að undirbúa veislur og einnig
að matbúa og selja tilbúinn mat.
Heiman að frá mér. Ég hélt þessu
áfram. Fólk var líka að koma heim
og borða hjá mér. Þannig byrjaði
þetta og ég sá tækifæri fyrir mig í
veitinga og kaffihúsi í Gerðubergi.
Ég ætla mér að vera áfram. Fólk
hefur tekið mér vel og því sem
ég er að gera. Fólkið kann vel við
matinn og þjónustuna.”
Fólkið fljótt að aðlagast
nýjum matseðli
En hvernig var að fá fólk til
þess að venjast nýrri matargerð.
Fólk sem ef til vill var vant
4 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2020
V i ð t a l i ð
- viðtal við Evelyn Rodriguez veitingamann í Gerðubergi
Evelyn Rodriguez hefur rekið kaffihús og veitingastað í Gerðubergi í
nær fjögur ár.
Fjögur ár í Gerðubergi