Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Qupperneq 5

Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Qupperneq 5
hefðbundnum íslensku mat sem er öðru vísi en matargerð frá Dóminíska lýðveldinu. “Ég byrjaði á að setjast niður og þróa matseðil. Ég var strax ákveðin í að blanda saman matargerð að heiman og þeirri sem ég hafði lært hér á landi. Þannig fengi ég meiri fjölbreytni og að auðveldara yrði að fá fólk til þess að prufa og reyna eitthvað sem það hafði ef til vill ekki gert áður. Ég ákvað líka að vera ekki með sama matinn dag eftir dag. Fólk þarf stundum að bíða í þrjár vikur til þess að fá það sama aftur. Ég reyni að hafa fjölbreytnina sem mesta. Ég er yfirleitt með fiskrétti tvisvar í viku og kjöt þrisvar og síðan bröns á laugardögum. Ég hef líka lagt áherslu á frá upphafi að hafa grænmeti með matnum. Það er hluti af honum.” Evelyn segir að sumir hafi verið hræddir við að bragða fyrstu dagana og jafnvel fyrstu tvær vikurnar. Ég fór að ræða við fólkið og segja því frá matargerð í Dóminíska lýðveldinu og hvernig ég reyndi að blanda þessu saman. Þá fór þetta að fara vel í gang. Fólk fékk áhuga á að smakka og flestum líkaði vel. Það var ákveðin íhaldssemi að vilja ekki prufa eitthvað nýtt.” Býð fólki að taka með sér heim Cosina Rodriguez er dag­ kaffihús. Kvöldverður er ekki í boði. Sumt fólk borðar ekki í hádeginu. Er ekki eftirspurn eftir kvöldverði. “Já ­ hún er fyrir hendi. Ég býð fólki upp á að taka mat með sér heim. Það getur tekið mat með sér og haft í kvöldmatinn. Það er bara að hringja og panta. Fólk getur pantað til dæmis fyrir þrjá eða fjóra. Það er talsvert um þetta.” Það er föstudagssíðdegi og fáferðugt í Gerðubergi . Bókasafnið er lokað nema bækur eru lánaðar innpakkaðar á borð fyrir framan. Grímuklætt fólk kemur að sækja þær og skila í sérstakan skilakassa. Covid er allsstaðar. Evelyn er ein að vinna á kaffihúsinu meðan á þessu stendur. Það koma kannski tíu til tólf manns í mat í hádeginu. Venjulega er ys og þys á þeim tíma. “En þetta á vonandi eftir að breytast aftur,” segir hún um leið og hún minnir á kaffihúsið og fjölbreytta aðstöðu fyrir framan bókasafnið í Gerðubergi. 5BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2020 sími Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson hdl. og löggiltir fasteignasalar Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali Sími: 897 0634 Ragnheiður Pétursdóttir hdl. og löggiltur fasteignasali Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali Sími: 822 2307 Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali Sími: 845 8958 Harpa Rún Glad hdl. og löggiltur fasteignasali Svan G. Guðlaugsson lögg. fasteignasali Sími: 697 9300 Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali Sími: 773 6000 Gunnar S. Jónsson lögg. fasteignasali Sími: 899 5856 Hilmar Jónasson lögg. fasteignasali Sími: 695 9500 Helgi Jónsson aðstm. fasteignasala Sími: 780 2700 Gunnar Helgi Einarsson lögg. fasteignasali Sími: 615 6181 Jón Rafn Valdimarsson lögg. fasteignasali Sími: 695 5520 Atli S. Sigvarðsson lögg. fasteignasali Sími: 899 1178 Axel Axelsson lögg. fasteignasali Sími: 778 7272 Bryndís Alfreðsdóttir lögg. fasteignasali Sími: 569 7024 Páll Þórólfsson aðstm. fasteignasala Sími: 893 9929 Jason Ólafsson lögg. fasteignasali Sími: 775 1515 Ásgrímur Ásmundsson hdl. og lögg. fasteignasali Sími: 865 4120 Fasteignasalan Miklaborg Lágmúla 4 108 Reykjavík 569 7000 www.miklaborg.is Með þér alla leið , lögg. fasteignasali gh@miklaborg.is sími: 615 6181 , lögg. fasteignasali sími: 775 1515 Verð : Fasteignasalan Miklaborg Lágmúla 4 • 108 Reykjavík • Sími 569 7000 www.miklaborg.is Evelyn með ömmu sinni heima í Dóminóska lýðveldinu. Amma hennar er að verða 105 ára og var myndin tekin þegar haldið var upp á 104 ára afmæli hennar. Frá markaði. Matarmenning er önnur en hér. Evelyn hefur sameinaði matarmenningu tveggja ólíkra landa í Gerðubergi. Dýralífið er fjölbreytt og ólíkt því sem er hér á landi.

x

Breiðholtsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.