Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Side 8
8 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2020
Verslunarmiðstöðin í Mjódd er stærsti verslunarkjarni Breiðholtsins. Í Verslunarmiðstöðinni í Mjódd eru um 70 fyrirtæki og sum hafa verið þar frá upphafi en önnur skemur. Þótt Mjóddin
standi utan hinna eiginlegu íbúðahverfa var hún hugsuð sem aðal
versluna- og þjónustumiðbær fyrir Breiðholt. Mjóddin er upphaflega
örnefni á mótum Breiðholtsmýrar og Breiðholts og náði niður undir
Blesugróf. Um Mjóddina lá leiðin úr Reykjavík að Breiðholtsbænum.
Í 23 þúsund íbúa byggð var talið
að bygging verslanamiðstöðvar
gæti staðið undir sér rekstrarlega
og veitt nýlega byggðu Breiðholti
margvíslega þjónustu. Þótt
staðsetning hennar hafi verið
ákveðin gekk uppbyggingin ekki
þrautalaust fyrir sig. Á þessum tíma
var KRON og Samband íslenskra
samvinnufélaga stórir aðilar á
matvörumarkaði. KRON var þá
orðinn eignaraðili að Miklagarði
verslanamiðstöðvar við Sund
og hugðu forráðamenn þess á
frekari landvinninga. Hagkaup
var aðalkeppinautur KRON.
Með byggingu Kringlunnar hafði
Hagkaup náð yfirburðastöðu yfir
aðra keppinauta. Í Mjóddinni var
talin möguleiki til að ná fótfestu
í smásöluverslun í Reykjavík.
Gallinn var hins vegar sá að með
uppbyggingu í Mjóddinni á vegum
KRON var félagið komið með tvær
hliðstæðar verslunareiningar með
tvöfaldri yfirstjórn. Á þessum
tíma var farið að halla undan
fæti hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. Gagnrýnisraddir
á þeim tíma létu í ljósi að með
uppbyggingu Mjóddarinnar væri
KRON að skemmta skrattanum
með samkeppni við sjálft sig. Vegna
eignaraðildarinnar að Miklagarði
hafi Kaupstaður í Mjódd verið
röng ákvörðun forráðamanna
KRON. Bent var á að ákveðið
skipulagsleysi væri ríkjandi í
verslunarrekstri þess og af þeirri
ástæðu verið anað út í þetta. KRON
rak um tíma stóra matvöruverslun
í Mjódd þar sem NETTÓ verslunin
er í dag og vöruhús á annarri hæð
yfir matvöruversluninni þar sem
læknastofur eru nú til húsa. Svo
fór að KRON hvarf af sjónarsviðinu
bæði í Mjóddinni og í Miklagarði
og síðan endanlega í heim
fortíðarinnar.
Umferðarvandræði
við Mjóddina
Í desember 1989 fjallaði
Kíwanisblaðið Vífill í Breiðholti
um Mjóddina. Umferðarmál í
kringum hana voru ekki undan
skilin. Þar segir meðal annars að
atvinnurekstur í Mjóddinni hafi átt
erfitt uppdráttar. Stafi það bæði
af því hversu uppbyggingin hafi
gengið hægt fyrir sig en einnig
að skipulag umferðarmála væri
ekki í neinu samræmi við þarfir
viðskipta- og þjónustumiðstöðvar.
Verslunarstjóri sem þá starfaði
í Mjóddinni hafði á orði að rekja
mætti stór gjaldþrot sem orðið
hafi á svæðinu til umferðarmála. Í
júní 1987 var borgarverkfræðingi
og umferða- og skipulagsnefnd
send krafa um að leyfð yrði vinstri
beygja af Reykjanesbraut inn á
Álfabakka sem hafði verið lokað.
Þá endaði Reykjanesbrautin við
Breiðholtsbraut. Hafði ekki verið
byggð lengra og þjónaði því
aðeins Breiðholtinu en tengdi ekki
Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og
Hafnarfjörð saman eins og hún
gerir í dag. Í desember sama ár
ítrekaði Landsbankinn sem var
og er með stórt útibú í Mjóddinni
sömu kröfu. Á þeim tíma þurfti
nær öll umferð inn í Mjóddina
að fara inn á Stekkjarbakka
framhjá bílalúgusjoppu sem hét
Staldrið. Sumir viðmælendur
í Mjóddinni á þeim tíma vildu
meina að borgaryfirvöld notuðu
umferðarmál til að hygla
rekstraraðila Staldursins umfram
verslunarmiðstöðina.
Fyrirtæki komu og fóru
Verslanir og önnur
þjónustufyrirtæki hafa komið
og farið í Mjóddinni eins og
víðast annars staðar. Nokkur
bankaútibú voru þar um tíma en
nú er aðeins Landsbankinn með
útibú en það var hann sem reið
á vaðið með atvinnustarfsemi í
Mjóddinni og byggt var stórt hús
yfir bankastarfsemina. SPRON var
um tíma með útibú í göngugötunni
en eftir að því var lokað kom upp
sú staða að opna spilasal á vegum
Háspennu í því húsnæði. Þær
hugmyndir fengu mikinn mótbyr
og beitti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
þáverandi borgarstjóri sér gegn
því að salurinn yrði opnaður.
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins eða Vínbúðin var um
tíma í göngugötunni í Mjódd en
var skyndilega flutt þaðan yfir í
húsnæði Garðheima án nokkurra
skýringa. Apótek hafa lengi starfað
í Mjóddinni og eru tvö apótek hlið
við hlið í göngugötunni. Síðan
má nefna að hjálparstofnanir
hafa staðsett sig þar. Fataverslun
Rauða krossins er við austurenda
göngugötunnar og gegnt henni er
félagsmiðstöð Hjálpræðishersins.
Samgöngumiðstöð í Mjódd
Saga almenningssamgangna
á höfuðborgarsvæðinu nær
aftur til ársins 1931. Fyrstu
árin var reksturinn á höndum
hlutafélags en árið 1944 keyptu
bæjaryfirvöld í Reykjavík
reksturinn. Strætó bs. var síðan
stofnað en það er byggðasamlag
í eigu sex sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustustöðvar Strætó eru
í dag við Hlemm og í Mjódd.
Báðar stöðvar gegna mikilvægu
hlutverki innan leiðakerfið Strætó.
Um Mjódd fer mikill fjöldi fólks
daglega og í dag er Mjóddin
miðstöð landsbyggðarstrætó og
gert er ráð fyrir að þar verði ein af
aðalstöðvum borgarlínunnar.
Miðstöð
heilbrigðisþjónustu
Með tímanum hefur Mjóddin
orðið miðstöð heilbrigðisþjónustu.
Þar er heilsugæslustöð,
læknastofur, tannlæknastofur
og sjúkraþjálfarar að störfum.
Þessar þjónustueiningar gera það
að verkum að umferð um Mjódd
er frekar stöðug yfir daginn. Auk
þess eru margir notendur sem
koma víða að og ekki aðeins úr
Breiðholti og nálægum hverfum
heldur líka úr öðrum hverfum á
höfuðborgarsvæðinu. Eins og gefur
að skilja er samt sem áður mesta
umferð fólks um svæðið síðdegis
þegar fólk fer í matvöruverslanir
og sækir sér aðra álíka þjónustu.
Sölubásar eru staðsettir í
yfirbyggðu göngugötunni. Þá
er hægt að leigja til lengri eða
skemmri tíma til að kynna og selja
vörur líkt og handverk og vörur
beint frá býli. Básarnir eru ekki
vel nýttir en veruleg eftirspurn er
eftir þeim í kringum jólahátíðina og
stundum á föstudögum Á öðrum
tímum standa þeir oftast auðir.
Ekki önnur stór
matvöruverslun í Mjóddina
Ekki er tekið sérstaklega til
Mjóddarinnar í drögum að nýju
hverfaskipulagi sem nú er verið
að kynna í Breiðholti. Staða
verslunarmiðstöðvarinnar verður
áfram sú sama. Hún verður megin
verslunar- og þjónustumiðstöð
Breiðholts. Til lengri tíðar er gert
ráð fyrir möguleikum til að byggja
íbúðahverfi á Garðheimareitnum
og hefur Garðheimum þegar verið
veitt vilyrði fyrir lóð í Suðurmjódd.
Núverandi stefna borgaryfirvalda
er að ekki komi önnur stór
matvöruverslun í Mjóddina
heldur verði verslunarstarfsemi í
hverfiskjörnunum efld. Þeir verði
látnir dafna við hlið Mjóddarinnar
eins og hugmyndin var þegar
Breiðholtið var skipulagt. Þegar
litið er yfir sviðið í dag virðist staða
Mjóddarinnar góð. Margvíslega
starfsemi er það að finna. Starfsemi
sem styrkir hver aðra. Verslun
og heilsu- og heilbrigðisþjónusta
auk margs annars.
Erfið uppbygging og ýmis fjörbrot
Yfirbyggð göngugata í Mjódd. Mætti nýtast betur einkum sölubásasvæðið.
Stærsti verslunarkjarni í Breiðholti
Á þessari loftmynd af Breiðholti má sjá Mjóddina. Nyrst er Stekkjabakkinn og Garðheimsvæðið. Þá
verslunarmiðstöðin sjálf ásamt umferðarmiðstöðinni og sunnan Breiðholtsbrautar má sjá Árskóga og ÍR svæðið.
Staldrið við Stekkjarbakka 2. Þegar þarna var komið sögu var
Staldrið komið í eigu Olíufélagsins og verið að undirbúa opnun
bensínstöðvar.
Þangbakka 10 (MJÓDD) • Sími: 557-2053