Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
V
ið höfðum reiknað með því
að fá að veiða út allan
ágúst, en það voru bara
ellefu dagar sem við
fengum. Veiðar voru
stöðvaðar 19. og þá voru eftir sex
dagar. Það var því enginn bátur
sem náði 48 dögunum á tímabilinu.
Það var einn sem náði 47 sem var
það hæsta sem hægt var að ná,“
segir Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands smábátaeig-
enda.
Hann segir hins vegar jákvæðu
hliðina vera að veiðin hafi gengið
ljómandi vel. „Þorskaflinn jókst um
15% sem er meira heldur en fjölg-
un báta á strandveiðum. Þetta end-
aði í heildarafla í þorski sem nam
um 10.751 tonni en í fyrra var þetta
9.328 tonn. Aflanum var landað í
fimmtíu höfnum um allt land, þann-
ig að hinar dreifðu byggðir finna
vel fyrir strandveiðunum.“
Atvinnuskapandi
Í ljósi þessa telur Örn að réttast
væri að strandveiðar fái aukið hlut-
verk í byggðamálum og að í aukn-
um mæli yrði horft til þessara veiða
við vinnu að breytingum á úthlutun
byggða- og atvinnukvóta. „Byggða-
kvótinn nýtist ekki nægilega vel,
honum er bæði seint og óreglulega
úthlutað. Ekki er tryggt að há-
marksverð fáist fyrir aflann þar
sem hann er ekki seldur gegnum
fiskmarkað. Strandveiðiaflinn er
nánast allur seldur í gegnum fisk-
markaði, þannig að fiskverkendur
landsins hafa aðgengi að honum.
Við í Landssambandi smábáta-
eigenda höfum talað fyrir því í ansi
langan tíma að byggðakvótinn verði
í miklu meira mæli nýttur af dag-
róðrabátum og sá hluti hans sem
úthlutað er til byggðarlaga fáist
sem ívilnun á kvóta við veiðar,“
segir framkvæmdastjórinn.
Það voru 669 bátar sem tóku þátt
í strandveiðunum í sumar sem er
um 7,7% fjölgun frá veiðunum í
fyrra þegar 621 bátur tók þátt og
tæplega 22% fjölgun frá 2018 þegar
549 bátar fóru á strandveiðar. Örn
segir ástæðuna fyrir fjölguninni nú
vera efnahagssamdrátt sem hefur
fækkað atvinnutækifærum. „Síðan
er það líka að samþjöppun í sjávar-
útvegi, færri skip sem sækja
aflann, hefur leitt til skerðingar at-
vinnutækifæra fyrir sjómenn. Þá
hafa margir fest kaup á bát og sótt
í strandveiðar og þeim fjölgar sem
hafa meginhluta árstekna sinna af
þeim.“
Telur hann að strandveiðar geti í
einhverjum mæli jafnað út neikvæð
áhrif samþjöppunar á atvinnustigið
og segir fátt benda til þess að dragi
úr henni á komandi árum, stjórn-
völdum beri einfaldlega að taka til-
lit til þess. „Strandveiðar eru álit-
legur kostur til að koma til móts
við þessar breytingar auk þess að
veita verðandi sjómönnum tækifæri
til að hefja útgerð. Það þarf ekki að
kaupa kvóta í strandveiðunum,
heldur fær hver bátur ákveðinn
veiðirétt sem við vonum að verði 48
dagar að lágmarki. Fjölgun báta er
því mjög líkleg.“
Kallar á lagabreytingu
Á grundvelli þess sem fyrr segir,
auk áhrifa kórónuveirufaraldursins
á atvinnustigið, en Vinnu-
málastofnun spáir því að atvinnu-
leysi muni ná 8,6% í ágúst, hafa
samtökin sent Kristjáni Þór Júl-
íussyni, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, beiðni um að hann
beiti sér fyrir að lögum verði breytt
þannig að strandveiðar geti farið
fram í september.
Örn segir 520 strandveiðibáta
hafa verið að veiðum í ágúst og
hafa samtöl við strandveiðisjómenn
leitt í ljós að um þriðjungur þeirra
hyggst ekki taka þátt í strandveið-
um í september, verði það á annað
borð leyft. „Þetta gæti skapað 350
störf til sjós, auk afleiddra starfa í
landi.“
Gagnrýni, er snýr að því að ekki
séu til staðar veiðiheimildir til ráð-
stöfunar sem gætu gagnast strand-
veiðimönnum, vísar Örn á bug og
segir liggja fyrir að aflinn sem ætl-
aður var strandveiðum í fyrra hafi
ekki verið fullnýttur og á það einn-
ig við afla í línuívilnunarkerfinu.
„Við óskuðum eftir því að sjáv-
arútvegsráðherra mundi bæta því
við á þessu ári þegar fjölgun báta
var fyrirsjáanleg. Hann varð ekki
við því og sagðist ekki hafa laga-
heimild til þess. Við því hefði verið
hægt að bregðast meðan þingið var
að störfum í vor og sumar en það
ekki verið gert, nú gefst hins vegar
annað tækifæri og fullt tilefni til
þess að breyta lögum þannig að
hægt sé að færa þessar aflaheim-
ildir milli fiskveiðiára.“
Þá sé fyrrnefnd breyting á til-
högun veiðanna og ráðstöfun afla
eðlileg, að mati Arnar, í ljósi þess
að málum er þegar háttað með
þessu sniði innan hefðbundna afla-
markskerfisins, þar sem kvótahafar
hafa getað fært 15% af ónýttum
aflaheimildum milli fiskveiðiára. Sú
heimild var hækkuð í 25% sem
hluti af aðgerðum stjórnvalda til
þess að stuðla að auknum sveigj-
anleika veiða og vinnslu og þar með
auka viðbragðsgetu útgerða vegna
kórónuveirufaraldursins.
Bjartsýnir
Spurður hvernig félagsmenn sam-
takanna líti á nýtt fiskveiðiár, segir
Örn þá vera bjartsýna. „Þegar
lagðist yfir okkur kórónuveiru-
faraldur vissu menn varla sitt rjúk-
andi ráð. Við sáum fram á að við
þyrftum að beita okkur fyrir því að
færa heimildir milli fiskveiðiára þar
sem við vissum ekkert hvernig
markaðirnir brygðust við. Allt fór
þetta þó betur en búist var við og
hefur mér þótt markaðurinn vera
að taka við sér og hafa verð og
eftirspurn verið ásættanleg. Þar
hjálpar auðvitað til gengisfall krón-
unnar, en ég finn ekki annað en að
menn séu bara bjartsýnir fyrir
komandi fiksveiðiári.“
Þá segir framkvæmdastjórinn að
lækkun gengis krónunnar að vissu
leyti vegi upp samdrátt í útgefnu
aflamarki í þorski, sem nemur 6%
milli fiskveiðiára. Auk þess er von
um að ráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar kunni að taka breytingum.
„Þegar ráðgjöfin var kynnt var
sagt frá falli í tveimur árgöngum
og það var rætt um það að ef það
kæmi í ljós í haustrallinu að þetta
væri röng mæling, þá mætti skoða
það að auka við kvótann. Við erum
bjartsýnir á að það muni gerast.“
Vilja efla strandveiðarnar frekar
Strandveiðar gengu vel í ár, en félagsmenn Lands-
sambands smábátaeigenda eru óhressir með að
veiðar voru ekki tryggðar út ágústmánuð. Sam-
tökin biðla nú til stjórnvalda um að samþykkja
breytingu á lögum sem heimila veiðar í september.
Morgunblaðið/Eggert
Örn segir strandveiðar í
september geta skapað
allt að 350 störf.
G
U
N
N
A
R
JÚ
L
A
R
T