Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1988, Page 2

Bæjarins besta - 02.03.1988, Page 2
2 BÆJARINS BESTA Horft fram eftir skrokknum. ísafjörður: „Nýr“ Páll Pálsson í smíðum Skipið væntanlegt í sumar er nú nýlokið við að setja leng- inguna í skipið, 8.80 metra langa. Næst verður farið í það að skera stefnið af því, það er alveg frá ankerisklussunum og aftur í lest, fyrir ofan sjólínu, og þar beint niður. Þar kemur ný pera á skipið. Og búið er að skera af framgálga og brúna. Það er bókstaflega allt farið.“ Pannig að það verður minnst afþví skipi sem kemur til baka í sumar úr því skipi sem fór? „Þetta er nýtt skip. Það er ekkert verið að tala um gamla skipið. Það eina sem er gamalt í skipinu er útsíðan þar sem hún ekki var dælduð, og böndin. Það er það eina sem eftir er af skipinu. Allt annað er nýtt. Þetta er bara nýtt skip sem lítur svipað út eins og gamla skipið.“ Skipstjórinn á skrifstofunni sinni í Póllandi. D Guðjón A. Kristjánsson skipstjóri stendur íbygginn á svip með skip sitt í baksýn. Páll Pálsson ÍS 102, skuttogari Hraðfrystihússins h.f. í Hnífs- dal, hefur nú verið frá veiðum frá því um mánaðamótin okt- óber-nóvember. Ástæðan er sú að skipið hefur verið í svo yfirgripsmikilli klössun í Pól- landi, að nánast má segja að verið sé að smíða nýtt skip. Þessar endurbætur sem nú er verið að vinna á Páli eru í tengslum við sams konar endurbætur sem verið er að gera á öðrum japönskum togurum íslendinga, sem keyptir voru til landsins um svipað leyti og Páll Pálsson. Um var að ræða sameiginlegt útboð fyrir öll skipin og var samið við skipasmíðastöð í Gdynia í Póllandi um að taka verkið að sér. í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir því að skipið kæmi heim í maí. Nú er ljóst að af því getur ekki orðið og er reiknað með að skipið verði afhent í sumar. En hvað er það í raun og veru, sem verið er að gera við skipið? Hvað hefur þegar ver- ið gert? Hvað er eftir? Guðmundur Ó. L. Krist- jánsson vélstjóri á Páli Páls- syni sagði að verkinu miðaði vel áfram. Orðrétt sagði hann: „Skipið var komið út 29. okt- óber. Þá var byrjað að rífa, og allt rifið innan úr skipinu, bók- staflega hvert einasta snitti. Allar innréttingar, öll rör, all- ar dælur, vélar og einangrun úr síðunum. Það var bara bert járnið eftir. Af þessu bera járni voru síðan allar skemmd- ir skornar í burtu, eins öll bog- in bönd og þess háttar. Síðan var skipið skorið í sundur og .í: " Verið að vinna við að ná brúnni af. VEGAGERÐIN UPPLÝSINGAR UM FÆRÐ, SÍMSVARAR: Patreksfjörður s. 94-1348 ísafjörður S. 94-3958 Hólmavík s. 95-3105

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.