Bæjarins besta - 09.11.1988, Qupperneq 9
Hótel ísafjörður:
BÆJARINS BESTA
9
w í safj arðarkaupstaður
Orðsending frá
íbúaskrá ísafjarðar
Nú vinnur hagstofa íslands að gerð
þjóðskrár m.v. l.desember 1988 og eru því
síðustu forvöð að tilkynna breytingu á
búsetu.
Tilkynningar þurfa að hafa borist í síð-
asta lagi 15. nóvember n.k.
Bent er á að rangt heimilisfang veldur
töfum á afgreiðslu skattkorts.
Forðist óþægindi, hringið í síma 3722
eða komið.
ÞAÐ ER ÖLLUM í HAG AÐ
VERA Á RÉTTUM STAÐ
Manntalsfulltrúinn á ísafirði.
Frá Sundhöll ísafjarðar
Starfsmann vantar (konu) til afleysinga í
mánuð.
Upplýsingar í síma 3722.
íþróttafulltrúi
Húsmæðraskólinn Ósk
Starfræktur verður hefðbundinn 5 mánaða
húsmæðraskóli eftir áramót.
Námið er metið til eininga í framhalds-
skólakerfinu.
Umsóknir og upplýsingar í skólanum í
síma 94-3025.
Skólastjóri
Elliheimili - laus störf
Starfsfólk vantar nú þegar á elliheimilið
við Mánagötu
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 3110.
Skuldar gjöld
og söluskatt.
Hótel ísafjörður: Á von á láni til að greiða skuldirnar.
Hótel ísafjörður skuldar 3
milljónir í söluskatt og um 1.5
milljónir í þinggjöld frá þessu og
síðasta ári. Bæjarráð ísafjarðar
hefur óskað eftir viðræðum við
stjórn hótelsins vegna þessa
máls.
Að sögn Björns Hermanns-
sonar, formanns stjórnar hóteis-
ins, hefur verið unnið að því að
útvega lán til þess að greiða upp
þessar skuldir og aðrar, sem eru
til komnar vegna 8 milljóna
króna halla á rekstrinum á síð-
asta ári.
„Pessi skuld er angi af tapinu í
fyrra og við byrjuðum í febrúar
að leita eftir lánum til að greiða
það. Við erum að fá afgreitt lán
frá Landsbanka íslands og þá
getum við gert upp stóran hluta
af þessum skuldum sem við höf-
um verið með“ sagði Björn í
samtali við BB.
„Við erum núna í viðræðum
við Framkvæmdasjóð íslands
um að fá lán fyrir afganginum í
gegnum aðra aðila og erum bún-
ir að fá góð orð fyrir að það ná-
ist.
Þegar það fæst þá erum við á
grænni grein því reksturinn hef-
ur gengið mjög vel að undan-
förnu.“
Sorpið við Sundahöfn:
Enginn
verksamningur
Bæjaryfirvöld vinna nú aö því
að fá verktakann Sigurð Sveins-
son, sem tók að sér urðun
óbrennanlegs sorps við Sunda-
höfn, til að skrifa undir formleg-
an verksamning. Gerður var
samningur við hann í vor en
hann aldrei undirritaður.
Verktakinn á að urða sorpið
daglega en hefur ekki gert það.
Ekki er hægt að sækja hann til
ábyrgðar vegna þessa þar sem
enginn hefur skrifað undir verk-
samning við hann.
„Ábyrgðina á því að þetta er
ekki búið verður að skrifa á
reikning tæknideildar og líka á
þennan mann“ sagði Eyjólfur
Bjarnason bæjartæknifræðingur
í samtali við BB. „Við höfum
verið að vinna í þessu að undan-
förnu og við vonumst til að það
taki ekki aðra fimm mánuði.“