Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 6

Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Kranamaður Borgarafl ehf óskar eftir kranamanni með reynslu. Þarf að vera með meirapróf og meðmæli. Frekari upplýsingar í síma 660-1701 eða freyr@borgarafl.is Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera   k Embassy clerk The Embassy of Japan seeks a capable, responsible and flexible person for the temporary position as a secretary. Starting on 19th of October 2020 (negotiable) until 31st of August 2021. Requirements: • Good assistant skills • Language skills in English and Icelandic (both written and spoken) • Proficient use of computer/internet • Good research and analytical skills • Good knowledge of Iceland • Good communication skills Deadline for application: 16th September, 2020 If interested, please send your CV and a short essay on Japan (less than 600 words), both in English to: Embassy of Japan Laugavegur 182, 105 Reykjavik Tel: 510-8600 e-mail: japan@rk.mofa.go.jp INFORMATION ASSISTANT (NEW MEDIA) Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu In- formation Assistant (New Media) lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2020. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Information Assistant (New Media). The closing date for this postion is September 6, 2020. Application instructions and further infor- mation can be found on the Embassy’s home page: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA) MAINTENANCE ASSISTANT Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu Maintenance Assistant lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2020. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Mainten- ance Assistant. The closing date for this postion is September 6, 2020. Application instructions and further infor- mation can be found on the Embassy’s home page: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA)   þú það sem     FINNA.is Kristján Þór Júlíusson, sjáv- arútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, opnaði í gær form- lega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð. Frumvarp ráð- herra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl síðastliðnum og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári. Til- gangurinn er að styrkja þró- un og nýsköpun við fram- leiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávaraf- urðum. „Það er stundum sagt að við þurfum að framleiða okk- ur út úr núverandi ástandi – að það sé lykilatriði í þeirri viðspyrnu sem nú tekur við að við sköpum meiri verð- mæti. Það er hárrétt enda er- um við Íslendingar matvæla- þjóð,“ sagði Kristján Þór í ávarpi við athöfn þegar opnað var fyrir umsóknir. Forsenda sóknar sem fram undan er „Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands,“ segir Kristján Þór. „Þessi áhersla og uppruni okkar er einmitt kjarnahlutverk Matvælasjóðs – að styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla um allt land. Að leggja sér- staka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni ís- lenskrar matvælaframleiðslu. Því er stofnun Matvælasjóðs ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælafram- leiðslu.“ Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til mark- aðssetningar og hagnýtra rannsókna. Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, kynnti sjóð- inn og deildir hans sem eru fjórar. Kelda styrkir rann- sóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Bára styrkir verkefni á hugmynda- stigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni. Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er sam- ansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á fram- færi. Umsóknarfrestur er til og með 21. september næst- komandi. www.matvaelasjod- ur.is. Minni sóun og aukin verðmæti samhliða „Það eru mörg tækifæri sem fylgja því að búa í ná- lægð við auðlindir. Fyrir vikið gerum við auðvitað ráð fyrir að fá margar umsóknir,“ seg- ir Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvæla- sjóðs. „Við vitum að íslenskt hráefni er eftirsóknarvert og í því felast mörg tækifæri til að auka vægi íslenskrar framleiðslu í fæðu okkar sam- hliða því að stuðla að sjálf- bærni og minni umhverfis- áhrifum. Við stöndum frammi fyrir stórum áskorunum, en með því að nýta betur það sem til fellur í framleiðslu- ferlinu getum við stuðlað að minni sóun og aukið verð- mætin samhliða. Verkefnin sem rúmast innan sjóðsins verða mjög fjölbreytt og munu styrkja samkeppnis- hæfni.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Mjólkursamsalan Ostagerð í mjólkurbúinu í Búðardal. Kelda, Afurð, Bára og Fjársjóður  Mikilvægur Matvælasjóður  500 millj. kr. í potti  Auka vægi íslenskrar framleiðslu Morgunblaðið/Eggert Forysta Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs. Morgunblaðið/RAX Úrbeining Kjötskurður og -vinnsla í sláturhúsi SS á Selfossi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.