Bæjarins besta - 09.01.1991, Blaðsíða 2
Vestfirðir:
Fréttakorn
Kristinn efstur í fyrri hluta forvals
Kristinn H. Gunnarsson í Bolungarvik var
efstur í fyrri hluta forvals Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum vegna komandi alþingis-
kosninga. ikristinn fékk 50 atkvæði en Lilja
Rafney Magnúsdóttir sem hafnaði í öðru
sæti fékk 39 atkvæði. í næstu sætum urðu þau Bryndís Frið-
geirsdóttir og Magnús Ingólfsson með 34 atkvæði. Unnar Þór
Böðvarsson og Þóra Þórðardóttir fengu síðan 24 atkvæði
hvort.
Atkvæði í forvalinu greiddu 85 manns sem svarar til 55,6%
en 153 voru á kjörskrá. Hver þátttakandi mátti nefna allt að
sex nöfn og fengu 67 manns tilnefningu.
Tíu nýir kennarar
hefja störf á vorönn
Tíu nýir kennarar hófu störf á vorönn í Menn-
taskólanum á ísafirði sem hófst á mánu-
Cdaginn. Þeirtíu nýju stundakennararsem nú
hefja störf við skólann eru: Gunnar Jónsson
sem kennir tryggingafræði, Einar Garðar
Hjaltason sem kennir verkstjórn, Kristján Bjarni Guðmunds-
son sem kennir raflagnafræði, Björn Jóhannesson sem kennir
lögfræði, Þóra Karlsdóttir sem kennir islensku, Þórir Þrastar-
son sem kennir blikksmíði, Helga Friðriksdóttir sem kennir líf-
fræði, Finnbogi Hermannsson sem kennir dönsku, Hafsteinn
Sigurðsson sem kennir skíðagreinar og Bryndis Schram
utanrjkisráðherrafrú og fyrrverandi kennari og skólameistari
við MÍ sem kennir leiklist sem valgrein.
Mokstur hafinn á fjallvegum
Allir fjallvegir á Vestfjörðum voru áfærir um
síðastliðna helgi. Mokstur yfir Breiðadals-
heiði hófst á mánudag og var mokað alla leið
til Þingeyrar. Mikill skafrenningur vará heið-
um á mánudag og einbeittu Vegagerðar-
menn sér að því að halda heiðinni opinni þann daginn. Mokst-
ur yfir Botnsheiði til Suðureyrar hófst því ekki fyrr en á þriðju-
dag. ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði voru jeppafær-
ar á mánudag og var áætlað að hefja mokstur þessum leiðum
í gærdag. Aðrir fjallvegir á Vestfjörðum voru ófærir og ekki var
vitað hvenær mokstur hæfist á þeim þegar þetta er ritað á
mánudag.
Áfengi og tóbak selt
fyrir 20 milljónir í desember
Áfengi og tóbak var selt fyrir 19,9 milljónir
króna hjá Áfengis og tóbaksverslun ríkisins á
(safirði í desember síðastliðnum. Er þar um
töluverðan samdrátt að ræða frá árinu áður
en þá seldist áfengi og tóbak fyrir rúmar 21,3
milljónir króna. Þá má einnig geta þess að áfengi og tóbak hef-
ur hækkað um nær 10% á árinu sem segir sína sögu um sam-
dráttinn. Ekki var hægt að fá nánari sundurliðun á sölunni fyrir
útkomu þessa blaðs og munum við greina nánar frá sölunni á
síðasta ári í næsta blaði.
Félagsmalastjori segir upp
Guðjón Brjánsson félagsmálastjóri (safjarð-
arkaupstaðar hefur sagt upp störfum og mun
væntanlega hætta í lok þessa mánaðar. Ást-
æðan fyrir uþþsögn Guðjóns mun vera sú að
ekki hefur verið komið á móts við tillögur
hans um starfstilhögun í félagslegri þjónustu, einkum varð-
andi æskulýðsmálefni, af hálfu bæjaryfirvalda. Guðjón hafði
áður sagt upp störfum en það var fyrir rúmu hálfu ári, en dró
þá uppsögn sína til baka í trausti þess að komið yrði til móts
við hann. Guðjón sagði í samtali við blaðið að óvist væri hvað
hann tæki sér fyrir hendur er hann léti af störfum sem félags-
málastjóri.
L
BÆJARINSBm
• Sóknarnefnd ísafjarðar segir að tillaga Húsafriðunarnefndar um stækkun ísafjarðarkirkju
og byggingu safnaðarheimilis frá 1. nóvemher s.l. fullnægi ekki þeim skilmálum sem fram
komu í byggingarforsögu sóknarnefndar frá 9. júlí 1990.
ísafjörður:
Sóknarnefnd hafnadi
tillógum Húsafrið-
unarnefndar
- um endurbyggingu og stækkun ísaf jarðarkirkju á
fundi sínum 2. janúar. Samþykkt þess efnis var
samþykkt með fimm samhljóða atkvæðum. Einn aðal-
maður í stjórn var fjarverandi
SÓKNARNEFND ísa-
fjarðar samþykkti á
fundi sínum 2. janúar síðast-
liðinn að hafna tillögum
Húsafriðunarnefndar um
endurbyggingu og stækkun
ísafjarðarkirkju. Á fundin-
um var samþykkt eftirfarandi
ályktun sem samþykkt var
með fimm samhljóða at-
kvæðum en einn aðalmaður
var fjarverandi og greiddi
varamaður hans atkvæði:
„Vegna bréfa frá Húsa-
friðunarnefnd ríkisins á ár-
inu 1990, tillögu að stækkun
ísafjarðarkirkju og byggingu
safnaðarheimilis frá 1. nóv-
ember 1990 og þeirrar um-
ræðu sem orðið hefur um
kirkjubyggingarmálið á ísa-
firði frá því í októbermánuði
s.l. ályktar sóknarnefnd eft-
irfarandi:
1. Tillaga Húsafriðunar-
nefndar um stækkun ísa-
fjarðarkirkju og byggingu
safnaðarheimilis frá 1. nóv.
s.l. fullnægir ekki þeim skil-
málum sem fram komu í
byggingarforsögn sóknar-
nefndar frá 9. júlí 1990. Því
skal halda fast við fyrri sam-
þykktir sóknarnefndar frá 9.
júlí 1990 og 15. nóv. 1990 um
að byggð verði ný kirkja og
safnaðarheimili á lóðunum á
horni Hafnarstræti og Sól-
götu.
2. í bréfi frá formanni
Húsafriðunarnefndar, dag-
settu 28. sept. 1990 er fallist
á flutning gömlu kirkjunnar.
Þá hefur bæjarstjórn ísa-
fjarðar með bréfi dagsettu
15. okt. 1990 heitið liðsinni
sínu við að rýma lóð gömlu
kirkjunnar. f framhaldi af
bréfum þessum áréttar sókn-
arnefnd samþykkt sína frá
15. nóv. 1990 um að gamla
kirkjan skuli tekin ofan í
hlutum og komið fyrir í
vörslu til síðari tíma ráðstöf-
unar. Sóknarnefnd mun hið
fyrsta ráða sérfræðing til að
hafa umsjón með ofantöku
kirkjunnar.
3. f bréfi Húsafriðunar-
nefndar frá 28. nóv. 1990 er
talið að koma þurfi bein um-
sókn frá sóknarnefnd hyggist
hún taka gömlu kirkjuna
ofan eða flytja hana. Af
þessu tilefni vill sóknarnefnd
taka fram að hún er sömu
skoðunar og áður sbr. bréf
sóknarnefndar til Húsafrið-
unarnefndar, dagsett 6. apríl
1990 um rétt ísafjarðarsafn-
aðar til að rífa gömlu kirkj-
una og að ekki sé hægt að
krefja söfnuðinn um að
kosta endurbyggingu hennar
og varðveislu.
4. Stefna skal að því að
halda aðalsafnaðarfund
snemma sumars, eða um það
bil ári eftir að síðasti aðal-
safnaðarfundur var haldinn. “
Undir þessa ályktun rita
svo nöfn sín þau Björn Teits-
son, formaður sóknarnefnd-
ar, Gunnlaugur Jónasson,
Gunnar Steinþórsson, Jens
Kristmannsson, Auður H.
Hagalín, Elísabet Agnars-
dóttir, Ólöf Kristjánsdóttir,
Ingi Jóhannesson og sr. Karl
V. Matthíasson. -s.