Bæjarins besta - 09.01.1991, Blaðsíða 8
8
BÆJARINSBESIA
TIL LEIGU
Höfum til leigu Heimabæ 3,
Hnífsdal, sem er einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt kjallara.
Laus strax.
Nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu minni.
Tryggvi Guðmundsson hdl.
Hafnarstræti 1, ísafirði
0“ 3244 Fax: 4547.
Skrifstofustarf
Verslunarmannafélag Isafjarðar
óskar eftir skrifstofumanneskju í
hlutastarf.
Nánari upplýsingar veitir Salmar
í símum 3321 eða 3135.
Verslunarmannafélag
ísafjarðar
Atvinna
Fiskma.tsm.a.ði2r
óskast til starfa
nú þe&ar.
Hleinar hf.
Hólmavík.
95-13111
Atvinna
Beitningamann vantar á
mb. Vonina ÍS-82 sem er að hefja
línuveiðarfrá ísafirði.
Upplýsignar gefa Eiríkur í síma
3777 og Helgi í síma 3892.
Arnarvörhf.
• Kjartan Hauksson synti frá Folafæti út í Vigur í júlí í sumar
en það er um 2ja km leið.
fyrir því óláni, að sjór flæddi
í vélarrúm þeirra þegar þeir
voru á veiðum út af Önund-
arfirði. Eigendur bátanna
urðu fyrir töluverðu tjóni af
þessum sökum.
Kjartan Hauksson, 28 ára
gamall ísfirðingur gerði sér
lítið fyrir og synti frá Fola-
fæti út í Vigur sem er um 2
kílómetra leið. Sundið sem
fór fram fimmtudaginn 12.
júlí tókst í alla staði vel og
tók um 57 mínútur. Eftir
landtöku í Vigur tók við
dynjandi lófaklapp eyjarbúa
sem fylgst höfðu með honum
alla leiðina. Húsfreyjan í
Vigur bauð Kjartani og gest-
um upp á kaffi og með því og
var það vel þegið eftir langt
sund.
Um miðjan júlí hóf lög-
reglan á ísafirði tilraunir
með að taka upp á mynd-
band af vettvangi fyrir utan
skemmtistaðina Krúsina og
Sjallann. Var þetta gert m.a.
vegna síendurtekinna óláta
sem þar hafa verið og tálm-
ana á starfsemi lögreglu þeg-
ar hún hefur verið kölluð á
vettvang. Lögreglan taldi sig
hafa erindi sem erfiði með
upptökunni og sást margt
þar sem betur mátti fara.
Súðvíkingar héldu upp á
100 ára afmæli staðarins
laugardaginn 7. júlí. Sam-
hliða afmæli hreppsins var
einnig haldið upp á 60 ára af-
mæli félagsheimilisins á
staðnum. Mikið var um
dýrðir þennan dag og mikið
um að vera.
Táragassprengja sprakk á
pöbbnum „Flóin“ á Tálkna-
firði laugardagskvöld eitt í
júlí. Á milli 70 til 80 manns
voru á staðnum er atburður-
inn gerðist. Fjórtán manns
voru fluttir á sjúkrahúsið á
Patreksfirði vegna óþæginda
í augum og öndunarfærum.
Skáksamband Vestfjarða
og Taflfélag Bolungarvíkur
héldu Vestfjarðamót í skák
eina helgina í júlí. Mótið fór
fram í félagsheimilinu í Bol-
ungarvík og varð Ágúst
Sindri Karlsson frá ísafirði,
Vestfjarðameistari. Hann
hlaut 5.5 vinninga af 7 mögu-
legum.
Pað voru fleiri en Súðvík-
ingar sem héldu upp á af-
mæli síns staðar í júlí. Hólm-
víkingar héldu upp á 100 ára
afmæli staðarins með mikilli
viðhöfn. Margt góðra gesta
kom á hátíðina og þeirra á
meðal var frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands.
Tvær breskar konur, Ev-
elyn Taylor og Marianne C.
Tansey komu til ísafjarðar í
júlí. Ástæðan fyrir komu
þeirra var að önnur þeirra
Marianne vildi minnast
bróður síns, Maurice Swoin
sem fórst með breska togar-
anum Ross Cleveland frá
Hull í ísafjarðardjúpi í febr-
úar 1968. Fóru þær stöllur
með björgunarbátnum Daní-
el Sigmundssyni út á ísa-
fjarðardjúp á þann stað sem
togarinn fórst. Þar lögðu þær
blómvönd á vota gröf þeirra
sem fórust.
Til sölu
Til sölu er Pajero,
árcj. ’87. Bíllinner
í toppstandi.
Skipti á ódýrari.
Upplýsingar
í síma 4164.
NÝJAR
MYNDIR
VIKULEGA
COMMON GROUND
Saga um örlög þriggja
afar ólíkra fjölskyldna á
tímum mikils óróleika í
bandarísku þjóðlífi.
Blóðugri baráttu fyrir
afnámi
kynþáttamisréttis í
skólakerfi Bostonborgar
sem leiddi næstum til
borgarastyrjaldar.
Baráttu fyrir frjálsri
hugmyndafræði, gegn
fátækt, valdníðslu,
morðtilræðum og öðru
óréttlæti.
Byggt á Pulitzer
verðlaunasögu J.
Anthony Lucas. Saga
sem lýsir erfiðri baráttu
fyrir sjálfsögðum
mannréttindum.
HARDTO KILL
Nico er kominn aftur og
illviðráðanlegri en
nokkru sinni fyrr.
Fjölskylda hans er
drepin á hroðalegan
hátt, hann helsærðurog
skilinn eftir
meðvitundarlaus þar
sem ekkert nema
dauðinn bíður hans. En
hann lifir af og hyggur á
hefndir. Steven Seagal
fer á kostum í þessarri
spennumynd og með
henni skipar hann sér í
flokk bestu
spennumyndaleikara
sem uppi hafa verið.
JR-VIDEO
VIÐ NORÐURVEG
S 4299