Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.12.2020, Side 22
500 gr. hveiti
375 gr. smjör
250 gr. sykur
1 egg
½ tsk. hjartarsalt
2 tsk. vanilludropar
Hnoðið allt deigið saman og
geymið í kæli í klukkustund.
Setjið í hakkavél með stjörnu-
járni í stað hökkunarhnífs, og
mótið litla hringi. Eins er hægt
að setja deigið í sprautupoka
og sprauta hringi á plötu með
bökunarpappír.
Bakið við 250°C í um tíu
mínútur eða þar til hringirnir
fara að taka á sig lit.
Vanilluhringir
Þristatoppar
3 eggjahvítur
200 gr. púðursykur
250 gr. þristur (1 poki)
Hitið ofninn í 175°C og stillið á blást-
ur. Passið að hrærivélarskálin sé alveg
hrein.
Stífþeytið eggjahvítur og bætið
sykri út í og þeytið áfram þar til hann
samlagast vel og allt er stífþeytt.
Skerið þristinn niður fyrst í helm-
ing og svo í sneiðar. Bætið honum út í
og blandið varlega saman með
sleikju.
Setjið bökunarpappír á ofnplötur.
Notið tvær teskeiðar til að móta
toppa og raðið 12-16 stykkjum á
hverja plötu.
Bakið í í u.þ.b. 12-14 mín.
Frá Facebook-síðu: Matarlyst.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.12. 2020
LÍFSSTÍLL
Inniheldur:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar
starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil ogætiþistil
sem talin eru stuðla að eðlilegri
starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartur pipar
HEILBRIGÐ MELTING
Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Góður árangur
„Ég er mjög meðvituð um líkamsstarfsemina og veit að fita getur safnast á lifrina. Ég ákvað að
prófa Active Liver eftir að ég sá að það er gert úr náttúrulegum efnum. Ég fann fljótlega mun
á orkunni og mér finnst auðveldara að halda mér í réttri þyngd. Ég finn líka mun á húðinni en
hún ljómar meira og er mýkri. Ég er mjög ánægðmeð árangurinn ogmæli með Active Liver
fyrir fólk sem hugsar um heilsuna og vill halda meltingunni góðri.” Jóna Hjálmarsdóttir.
175 gr. hveiti
100 gr. smjör (frekar
hart)
60 gr. sykur
½ tsk. hjartarsalt
1 egg
10 möndlur
1 msk. sykur
Sáldrið hveiti og hjart-
arsalti á borð. Hrærið
sykurinn saman við og
myljið smjörið þar í.
Hrærið eggið með
gaffli út í miðju deigs-
ins. Deigið er hnoðað
þar til það er sprungu-
laust og jafnt. Látið á
kaldan stað um stund.
Deiginu er svo skipt í
4 til 5 hluta og úr
hverjum hluta eru
gerðar flatar kökur,
sem dýft er í hveiti og
flattar út svo þunnt
sem hægt er. Mótið
kringlóttar kökur
með glasi. Smyrjið
kökur með hrærðu
eggi. Saxið möndlur
smátt og blandið einni
matskeið af sykri sam-
an við. Setjið möndlu-
og sykurmylsnu á
miðjar kökur með te-
skeið. Raðið á kalda
smurða plötu, eða
plötu með bök-
unarpappír og bakið
við góðan hita (190-
200°C) þar til kök-
urnar eru ljósbrúnar.
Gyðingakökur
500 gr. hveiti
200 gr. sykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
½ tsk. kanill
½ tsk. kardimommuduft
200 gr. smjör
1 egg (og annað til að pensla)
150 gr. mjólk
sveskjusulta (ca. 600 gr.)
Blandið þurrefnunum sam-
an á borði og myljið smjör-
ið út í. Bleytið síðan með
egginu og mjólkinni. Hnoð-
ið vel. Gott er að geyma
deigið nokkrar klst. Ef það
er sett í ísskáp þarf að láta
það ná stofuhita áður en
það er flatt út.
Skiptið deiginu í 4 til 5
hluta sem eru flattir út, ekki
mjög þunnt. Skerið út
hringlaga kökur með glasi
eða móti. Setjið sveskju-
sultu í miðju hverrar köku
með teskeið en passa að
setja ekki of mikið, þá
springa kökurnar í bakstr-
inum. Hver kaka er brotin
saman til að mynda hálf-
mána. Pressið barmana
saman með gaffli. Raðið
kökunum á bökunarplötu
með bökunarpappír og
penslið hverja köku með
hrærðu eggi.
SVESKJUSULTA
600 gr. sveskjur
smá vatn
sykur eftir smekk
Sjóðið sveskjurnar í svolitlu
vatni þar til þær eru mjúkar.
Hrærið í pottinum annað
slagið svo ekki brenni við.
Hakkið þær síðan í
hakkavél eða mat-
vinnsluvél. Setjið aftur í
pott og hitið með smá sykri
á lágum straumi. Smakkið
og bætið við sykri ef þurfa
þykir.
Hálfmánar