Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.05.1991, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 08.05.1991, Qupperneq 3
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 8. maí 1991 3 Vortón- leikar HINIR árlegu vor- tónleikar Tónlist- arskóla Isafjarðar verða haldnir í hátíðarsal Grunnskóla ísafjarðar, föstudaginn 10. maí næstkomandi kl. 20,30., laugardaginn 11. maí kl. 16,30 og sunnudaginn 12. maí kl. 16,30. Hátt á annað hundrað einleikarar koma fram á tónleikunum, en efnis- skrár eru mismunandi á öllum tónleikunum. Miðaverð er kr. 300.-, og rennur allur ágóði af miðasölu til kaupa á hljóðfærum fyrir skól- ann. Nemendur skólans sjá að mestu um sölu að- göngumiða, en einnig verða seldir miðar við innganginn. Skólaslit og lokahátíð skólans verða í sal grunnskólans, fimmtudaginn 23. maí kl. 20,30 og verður það nánar auglýst síðar. -fréttatilkynning. Bolungarvík: Missti fingur VINNUSLYS varð í nýbyggingu grunn- skólans í Bolungarvík á þriðjudag í síðustu viku. Ungur maður sem var að vinna við að saga fjöl með vélsög lenti með hendina í söginni. Pilturinn missti við það einn fingur og sködduðust þrír aðrir fingur mikið. Hann var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á ísafirði þar sem gert var að sár- um hans og hann lagður inn. Líðan piltsins er í dag eftir atvikum góð. Menntaskólinn á ísafirði (Framhaldsskóli Vestflarða) Inmitun nýnema fyrir skólaárið 1991-92 Innritun stendur nú yfir, bæði í dagskóla og öldungadeild. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 7. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans á ísafirði og í útibúum skólans á Patreksfirði og Flateyri. Prófskírteini úr grunnskóla skulu fylgja með umsóknum um dagskóla. í dagskóla verður boðið upp á nám á þeim brautum sem sjá má á meðfylgjandi mynd. I öldungadeild verður boðið upp á eftirfarandi nám: Á ísafirði: Almennt bóknám, 1. ár. Mála- og samfélagsbraut, 3. ár. Viðskiptabraut, 3. ár. Meistaranám byggingamanna. Á Flateyri: Viðskiptabraut, 2. ár. Á Patreksfirði: Almennt bóknám, 1. ár. Viðskiptabraut, 2. ár. Námskeiðá vegum Farskóla Vestfjarða verða auglýst síðar. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma (94)-3599. 1. ár 2. ár Hö j Vö Hö Vö Fiskvinnslubraut Hússtjómarbraut 3. ár I 4. ár 5. ár . Vö | Hö 3| Hö Sjúkraliöabraut Viðskiptabraut H Hagfræðabraut Almennt bóknám Mála- og samfélagsbraut Raungreinabraut EðlisfræÖibraut Náttúrufræðibraut Samningsbundið iðnnám, ýmsar iðngreinar Grunndeild málmiðna Samningsbundið iðnnám í málmiðnum Grunndeild tréiðna Samningsbundið iðnnám í tréiðnum Grunndeild rafiðna Samningsbundið iðnnám í rafvirkjun Meistaranám byggingamanna Almennt meistaranám Rafeindavirkjun Vélstj. 1. stig C Vélstjóm 2. stig j Skipstjómarbraut 0 0 0 □ Braut sem ekki er hægt að ljúka við MÍ. Lokapróf í MÍ framhald annarsstaðar. Lokapróf, framhald mögulegt í MÍ. Lokapróf á braut.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.