Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.05.1991, Page 7

Bæjarins besta - 08.05.1991, Page 7
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 8. maí 1991 7 r ~i Lið BÍ sem nú leggur í harða baráttu á knattspyrnuvellinum. íþróttir / knattspyrna: Er þokkalega bjartsýnn — segir nýr þjálfari Boltafélags ísafjarðar, Ámundi Sigmundsson um komandi keppnistímabil NÚ styttist óðum í að keppni hefjist á íslandsmótinu í knattspyrnu. ísfirðingar taka þar þátt eins og undan- farin ár, nú í 3.deild eins og síðastliðið sumar, eftir að hafa rétt sloppið við fall í 4.deild. ísfirðingar mega muna sinn fífill fegri á knattspyrnusviðinu því árið 1982 unnu þeir sig upp í 1. deild eftir nokkurra ára veru í 2. deild. Viðveran í l.deildinni var að vísu ekki löng eða eitt ár, en síöan þá virðist sem lið Isfirðinga hafi verið á hraðri niðurleið. Lið- ið rétt slapp við fall í 4. deild síðastliðið sumar og eru knattspyrnuáhugamenn á þeirri skoðun að nú þurfi breyt- inga við, breytinga sem leiði liðið upp á við. Ahorfendum á leiki liðsins hefur farið ört fækkandi samfara slakara gengi og er það miður, því að öll lið þurfa á mestuin stuðningi að halda þegar illa gengur. BÍ-liðið er ungt lið sem á framtíð- ina fyrir sér og er það trú manna að allir leikmenn liðsins muni gefa allt sitt til þess að sem bestur árangur náist. Ráð- inn hefur verið nýr þjálfari, Amundi Sigmundsson en hann lék með ísfirðingum árin 1982 og 1983. Við hittum Ámunda eftir æfingu með sínum mönnum á sunnudaginn og forvitnuðumst um sumarið. Við byrjuðum á því að spyrja hann, hvernig honum litist á komandi keppnistíma- bil? Flateyri. Þá er spurning hvort Guðjón Olafsson verður með í sumar. Þetta eru miklar breytingar fyrir ungt lið. í staðinn cru komnir tveir Húsvíkingar, varnarmaðurinn sterki Helgi Helgason og strákur sem heitir Elvar. Þá er Breti, búsettur á ísafirði kominn til liðs við okkur auk þess sem ég hef heyrt að Ragnar Rögnvaldsson, fyrr- um leikmaður með ÍBI sé að koma í bæinn og ætli að spila með. Þá koma þeir Stefán Tryggvason og Krist- mann Kristmannsson inn af fullum krafti en þeir voru lítið með í fyrra vegna meiðsla. Þá mun ég einnig spila með liðinu". - Finnst þér miklar breyt- ingar hafa orðið á hér á Isa- firði síðan þú lékst með ÍBÍ? „Jú, það hefur orðið mikil breyting á. Ég hugsa t.d. að meðalaldurinn í liðinu sé svona 4-5 árum lægri en þá. Þá var mikið af sterkum jöxlum í liðinu. jöxlum sem eru nauðsynlegir hverju liði. Stóru. sterku liðin eru með mikið af svona mönnum og í því felst m.a. styrkurinn. Þessir menn vera að vera til staðar með þeim yngri til þess að góður árangur náist. Því miður er þessu ekki að dreifa hér en það gerir aftur á móti dæmið skemmtilegra fyrir mig. Það er gaman að fá að taka þátt í að byggja upp svona ungt lið. Nokkrir leikmenn liðsins í dag voru í 4.flokk þegar ég var að æfa þá 1982“. - Þú varst hér í tvö sumur á besta skeiði ísfirskrar knatt- spyrnu. Hvert lá leið þín eft- ir það? „Héðan fór ég í Víking og var þar í tvö sumur. Síðan hef ég leikið með Val að einu ári undanskildu er ég skipti aftur yfir í Víking". - Er ekki mikill munur að koma hingað frá svona stór- um klúbbi sem Valur er? „Það er það sjálfsagt. Þeir hafa úr meiri mannskap að spila og sterkari heild. Ég held samt að strákarnir hér séu ekkcrt lakari en margir hverjir í Val. Það sem skort- ir hér er það að hafa ekki þá eldri og reyndari með hin- um“. - Er nógu mikil rækt lögð á yngri flokkana hér? „Ég get voðalega lítið dæmt um það enn. Það er til nóg af strákum hér sem geta spilað fótbolta. Vandamálið er bara það að hér vinna strákar mikið og hafa því ekki tíma lausan fyrir knattspyrnuna. Það er til fullt af strákum hér sem hægt er að nota. Þcir geta bara ekki stundað þetta sem skyldi". - Nú hefur það verið mál manna að það sem liðinu skorti mest sé góöur skorari til að leggja endapunktinn á sóknirnar. Hefur þú fundið einhverja bót á því? „Þetta er alltaf spurning. Það skal alveg viðurkennt að það hefur mikil áhrif á liðið þegar maður eins og Jói Ævars fer. maður sem skoraði 60-70% af mörkum liðsins síðastliðið sumar. Þessir hlutir verða bara að koma t' Ijós. Það eru 11 menn inná þannig að það verður bara einhver annar að skora". - Nú hefur áhorfendum á leiki liðsins farið ört fækk- andi undanfarin ár. Ætlar þú að reyna að snúa þessari þróun við? „Ég veit lítið um áhorf- endafjölda hér en þeim hlýt- ur að hafa fækkað eitthvað við það að spila í 3.deild heldur en þeirri fyrstu. Það er eðlilegt að áhorfendum fækki en ef liðið spilar vel þá koma áhorfendur og það ætlum við að reyna að gera. Liðið þarf hins vegar meira á áhorfendum að halda þeg- ar illa gengur heldur cn þeg- ar vel gengur. Menn koma ekki á leiki þegar illa gengur en allir eru tilbúnir til stuðn- ings þegar vel gengur. Þessu er ckkert öðruvísi háttað hér en annars staðar" sagði Ámundi Sigmundsson að lokum. Fyrsti leikur BÍ-liðsins á komandi keppnistímabili fer fram hér á ísafirði 25. maí næstkomandi. Þá mæta ís- firðingar Völsung frá Húsa- vík en það lið hefur verið í lægð að undanförnu eftir mjög gott gengi í nokkur ár. BB óskar Ámunda og liðinu velfarnaðar í sumar með þeirri ósk að þeir uppskeri í samræmi við það sem sáð er. „Mér líst alveg þokka- lega á sumarið. Mannskap- urinn er alveg þolanlegur. Hópurinn hefur verið frekar fámennur til þessa en mér sýnist þetta vera allt á réttri leið, það er heldur að bætast við hann heldur en hitt. Ég er samt þokkalega bjartsýnn þó svo að maður renni blint í sjóinn hvað varðar getuna hjá liðinu. Ég held því að það borgi sig ckki að vera með of mikla bjartsýni svona í upphafi móts. Liðið rétt slapp við fall í fyrra þannig að allt fyrir ofan þann árangur er bónus. Við stefnum að því að gera betur en í fyrra og það er alveg nægilcgt takmark". - Hvernig hefur æfingum verið háttað hjá liðinu? „Við byrjuðum æfingar í lok janúar og þær hafa geng- ið þokkalega. Við byrjuðum á æfingum tvisvar í víku en jukum þær í fjórar í byrjun mars. Fyrstu æfingarnar gengu út á lyftingar og aðrar uppbyggjandi æfingar en síðan var farið meira út í leik og tækni. Síðan þá hcf- ur maður orðið áþreifanlega var við það að leikmennirnir eru í lítilli leikæfingu enda ckkert skrýtið þegar ekki er hægt að komast á auðan völl fyrr en í lok apríl. Það er erfitt að byggja upp gott lið við svona aðstæður". - Eru miklar mannabreyt- ingar í liðinu? „Já, við höfum misst fjóra menn og það er spurning með þann fimmta. Bræð- urnir frá Bolungarvík, Jó- hann og Svavar Ævarssynir er farnir, einnig Ólafur Pet- ersen og einn strákur frá Ámundi Sigmundsson.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.