Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.05.1991, Síða 9

Bæjarins besta - 08.05.1991, Síða 9
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 8. maí 1991 9 Aðal- fundur Aðalfundur Verslunarmannafélags ísafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 16. maí 1991 kl. 20.30 áHótel ísafirði. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein lagafélagsins. 2. Kosning fulltrúa á 18. þing L.Í.V. 3. Önnurmál. Kaffiveitingar. Stjórnin. Bolungarvíkurkaupstaður Ljósabekkir til sölu Til sölu 2 Bermuda ljósabekkir. í hvorum bekk eru 20 perur auk andlitslampa. Upplýsingar gefur bæjartæknifræðingur í síma 7113. Tæknideild Bolungarvíkurkaupstaðar. • Lena Hreinsdóttir og María Finnsdóttir fræða 5 ára börn á ísafirði um mikiivægustu um- ferðarreglurnar. Isafjörður: Umferðarfræðsla 5 og 6 ára barna SÍÐASTLIÐINN mánu- dag fór fram í Grunn- skólanum á ísafirði fyrsti hluti umferðarfræðslu 5 og 6 ára barna á norðanverðum Vestfjörðum. Námskeiðið sem er fólgið í því að vekja athygli vestfirskra barna á mikilvægustu umferðarregl- unum er haldið á vegum bæjar- og sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum auk lögreglunnar og Um- ferðarráðs. Leiðbeinendur á nám- skeiðinu eru þær Lena Hreinsdóttir og María Finnsdóttir frá Reykjavík. Hafa þær tengt námskeiðið Umferðarskólanum „Ung- um vegfarendum" en hann þekkja flest börn. Þá hafa þær sýnt börnunum kvik- mynd, brúðuleikhús auk þess sem börnin fá heim með sér blað þar sem þau eru látin teikna sinn eigin reynsluheim. BB leit við á námskeiðinu á mánudag og tók þá meðfylgjandi mynd- ir. -s. • Lögreglumaður færir börnunum „umferðarpoka“ að gjöf. Fróðleikskorn: Réttur til setu í óskiptu búi MEÐ óskiptu búi er átt við það, að það hjóna er lengur lifir geti við andlát hins að ákveðn- um skilyrðum uppfylltum og með sérstöku Ieyfi skiptaráðanda fengið leyfi til þess að fresta búskiptunum á búi hins látna. Grundvallarhugs- unin að baki reglunum um óskipt bú er sú, að stuðla beri að því að sem minnst fjárhagsleg röskun verði á stöðu ekkju eða ekkils við andlátið, þ.e. að langlífari maki geti eftir sem áður notið allar eign- ir búsins og ekki þurfi að skipta með honum og öðr- um erfingjum. Hagsmun- um fjölskyldunnar er í flestum tilvikum best borgið með þessu fyrir- komulagi, enda kunna skipti að valda mikilli röskun á högum langlífari maka. Reglurnar um óskipt bú eru í erfðalögunum sem eru nr. 8 frá árinu 1962. Þessi lagaákvæði hafa þó breyst allnokkuð á síðustu árum og þá á þann veg að heimild eftirlifandi maka til setu í óskiptu búi hefur verið rýmkuð frá því sem áður var. Eftir lát annars hjóna á eftirlifandi maki rétt á að sitja í óskiptu búi með sameiginlegum niðjum beggja, nema því aðeins að hið látna hafi mælt svo fyrir í erfðaskrá að skípti skuli fara fram. Eftirlif- andi maki þarf því ekki samþykki barna eins og áður þurfti. Maki þarf hins vegar samþykki Björn Jóhannesson lögfræðingur skrifar um lögfræði stjúpniðja eða þeirra sem fara með lögráð þeirra ef þeir eru ekki lögráða, nema hið látna hafi í erfðaskrá mælt fyrir um rétt langlífari maka til setu í óskiptu búi. Skipti skulu ætíð fara fram ef hið látna hefur kveðið á um slíkt í erfðaskrá. Ef bú eftirlifandi maka er undir gjaldþrota- skiptum eða ljóst er að eignir hrökkva ekki fyrir skuldum verður ekki veitt leyfi til setu í óskiptu búi. Sama gildir ef hið langlíf- ara verður ekki treyst að fara með forræði búsins vegna vanhirðu um fjár- mál þess. Sá sem óskar eftir leyfi til setu í óskiptu búi þarf að sækja um slíkt skrif- lega til viðkomandi skipta- ráðanda (sýslumenn og bæjarfógetar/ borgarfógeti í Reykjavík.) í umsókn- inni skal greina nöfn erf- ingja, kennitölu og dval- arstað þeirra. Þá skal fylgja yfirlit yfir eignir og skuldir beggja hjóna. Sé heimildin háð samþykki erfingja eins og áður var rakin þarf að koma skrif- legt samþykki þeirra. Sé rétturinn byggður á erfða- skrá þarf hún einnig að fylgja umsókninni. Telji skiptaráðandi að skilyrði sé fyrir hendi til setu í óskiptu búi gefur hann út leyfisbréf til viðkomandi. SMÁ IAIWVtíl![eH:l Til sölu eru varahlutir í Plymouth Valiant ’67. Upp- lýsingar í 0 4859 í hádeg- inuog eftirkl. 19. Óska eftir notuðum hús- gögnum til kaups eða gefins, mega þarfnast við- gerðar. Upplýsingar í 0 3268ádaginn. Óska eftir 3ja herb. íbúð frá og með 1. ágúst nk. Upplýsingar í 0 4679. Til sölu er Montanatelpna- reiðhjól 24”, 3ja gíra, bleikt og hvítt. Verð 12.000,-Uppl. í 0 3529. Til sölu er kvenreiðhjól. Upplýsingar í 0 3720. Til sölu er Nintendo leik- tæki Upplýsingar í 0 3623 á kvöldin. Óska eftir barnakerru og reiðhjóli. Uppl. í 0 3696. Til sölu er MMC Sapporo 2,4i '88. Sjálfskiptur með rafm. í öllu, álfelgur, ABS bremsur o.fl. Skipti koma il greina. Uppl. í 0 7346. Öska eftir að kaupa svala- vagn. Uppl. í 0 7164. Mánud. 29. apríl tapaðist átekin filma, líklegast á leiðinni frá sjúkrahúsi og niður í bæ. Uppl. í 0 7164. Til sölu er lítið sófaborð, krómað með glerplötu. Uppl. í 0 3579 eftirkl. 18. Til sölu er Ford Fairmont 78. 4ra þrepa skipting, góð dekk, 6 cyl. Selst mjög ódýrt. Upplýsingar í 01531. Eldri borgarar ísafirði. Lokafagnaður félags- starfsins verður haldinn í sal Stjórnsýsluhussins á4. hæð sun. 12. maí kl. 15. Bolvíkingar og Súgfirðing- ar heiðra okkur með nær- veru sinni, skemmtiatr., veitingar og dans. Allireldri borgarar velkomnir. Til sölu er krossviðs- klæðning í skúffu á Toyota Xtra Cab '91. Ein- nig White Spoke felgur 15”x8”. Upplýsingar í 0 4271 á kvöldin. Til sölu er bifreiðin í-3406, Mazda 626 GLX, árg. ’88. Ekin 70.000 km. Upplýs- ingar gefur Gunnar í 0 7554 eða 7316. Bolvíkingar! Samstarfs- félag foreldra og kennara Grunnskóla Bolungarvíkur heldur almennan félags- fund fimmtudaginn 9. maí kl. 20.30 í Grunnskólan- um. Sjá nánargötuauglýs- ingar. Stjórnin. Óska eftir ísskáp, ódýrum eða gefins. Upplýsingar í 0 91-32916. Óska eftir 2ja herbergja íbúð á Eyrinni. Upplýsing- ar í 0 3835 eftir kl. 18. Tapast hefur grár plast- hjólkoppur af Subaru á svæðinu Ísafjörður-Bol- ungarvík. Finnandi hringi í 0 7355. Til sölu er Murray reiðhjól fyrir 10 ára dreng, verð 5000,-Uppl. í 0 4726.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.