Fylkir


Fylkir - des. 2020, Blaðsíða 13

Fylkir - des. 2020, Blaðsíða 13
13FYLKIR - jólin 2020 ° ° Laufás var eitt reisulegasta timbur- húsið á Heimaey áður en Eldfells- hraunið lagðist yfir Austurbæinn. „Eitt fallegasta húsið í Vestmanna- eyjum“ segir Guðjón Ármann Eyj- ólfsson í Gosbókinni sinni góðu frá 1973. Frá Laufási var dásamlegt út- sýni til allra átta. Úr norðurglugga blasti við sjálfur Heimaklettur og eins sá yfir hluta hafnarinnar og svo Víkina, innsiglingarleið báta og skipa. Í austur gat að líta Elliða- ey og Bjarnarey og upp á land til Eyjafjallajökuls. Í góðu veðri gladdi Mýrdalsjökull augað og fjöllin þar austur frá, allt að Dyrhólaey. Helgafell og grónar brekkur þess voru í suður en til vesturs mátti sjá yfir byggðina á Heimaey, allt út að Hamri, og þar undan vestureyjar flestar. Austurvegur 5 – Vilborgarstaðavegur Laufás var járnklætt timburhús, stóð við Austurveg og var númer 5, þ.e. norðan megin eða neðan við götuna. Húsið var á hæðar- dragi og naut sín afbragðsvel á steinsteyptum kjallara, tvílyft, með stórum kvisti sunnan megin á þakinu en minni kvisti norðan megin. Sex myndarlegir gluggar voru langsum að sunnanverðu og að götunni en fjórir norðan megin, auk útbyggingar, sem stundum var kölluð „bíslag“. Þar var geng- ið inn í húsið hvunndags. Á stafni austan megin voru tveir gluggar á efri hæð. Vestan megin voru aðaldyr hússins með snotrum umbúnaði og gengið upp tröpp- ur að þeim með handriði, upp á steyptan pall. Undir honum var farið inn í kjallaraíbúðina. Sunnan megin á kjallara vissu jafnmargir gluggar í suður og á aðalhæð, en þrír í norður, og þeim megin var líka kolalúga, auk inngangs undir bíslaginu. Á vesturgafli voru tveir gluggar á efri hæð og tveir minni utar við þá. Á suðurkvisti voru tveir gluggar. Háaloft var yfir öllu hús- inu, geymsluloft, með stafnglugga vestan megin og í suðurkvisti, auk lítils þakglugga norðan megin, yfir stiganum. Húsið var gulmál- að, gluggaumbúnaður hvítur og brúnleitur skrautbekkur utan á húsinu milli hæða. Byggingarlag- ið var vel þekkt í Eyjum og raunar víða um land. Austan við íbúðarhúsið var út- bygging frá norðri til suðurs og hefur hún myndað skjól fyrir aust- anáttinni sem áreiðanlega hefur oft verið hvöss á Laufáshólnum. Þar var syðst hjallur, svo hlaða en fjós norðanmegin með haughúsi og brunni framan við í túninu. Utan á útbyggingunni var svo enn annað hús, hesthús, og brunnur sunnan við það og áfastur því. Í Laufási bjó „útvegsbóndi“, eða fremur útvegsbændur, með út- gerð og bústofn, kýr og rollur, hest og hænsn. Á lóðinni voru þrír vatnsbrunnar þar sem rigningarvatni var safnað. Brunnar voru notaðir fram til þess að vatnsleiðsla var lögð milli lands og Eyja 1968 og dreifikerfi um kaupstaðinn. Tún Laufáss voru mikil, einkum til suðurs og austurs, og þau slegin og hey hirt meðan skepnur voru enn á bænum. Þessi tún urðu góðar byggingarlóðir er stundir liðu fram. Féð, sem ekki var margt í Laufási, gekk að sumri og lengi fram á haust í Heimakletti og Suðurey. Kartöflugarður var suð- austur af húsinu. Í Laufási var, eins og á flestum ís- lenskum heimilum til sveita fram á síðustu öld, rekinn sjálfsþurftarbú- skapur. Fólkið var sjálfu sér nægt um nær alla hluti og flest sem með þurfti, fæði og klæði, heimafengið. En mikið búsílag var fiskurinn og hin gjöfula útgerð. Það var annar svipur á Laufási en þurrabúðum niður í Sandi. Laufás var sem óðal, stórt, landmikið, með bústofn og þar voru margar kynslóðir, einn „únívers“ eða heimur út af fyrir sig. Sand-guttar eins og sá sem hér skrifar horfðu með undrun á þetta stóra og fallega hús ofar á Eyjunni, það vakti áhuga og forvitni. Hver var saga þess og þeirra sem þar bjuggu? Elínborg og Þorsteinn Á þessu höfuðbóli bjuggu mynd- ar- og merkishjón, Elínborg Gísla- dóttir húsfreyja og Þorsteinn Jóns- son, skipstjóri og útgerðarmaður, einn svipmesti brautryðjandi vél- bátaútgerðar í Vestmannaeyjum, rithöfundur síðar á ævi, riddari af Fálkaorðunni 1929 í tíð Kristjáns X., konungs Íslands og Danmerkur, og heiðursborgari Vestmannaeyja á sjötugsafmæli sínu 1950. Um Þorstein Jónsson (f. 1880) hefur margt verið ritað og mikill ljómi er yfir nafni hans, ekki síst fyrir bækur hans stórmerkar, For- mannsævi í Eyjum (1950) og Alda- hvörf í Eyjum (1958). Í formálsorð- um fyrir fyrri bókinni rekur Jóhann Gunnar Ólafsson, fyrrv. bæjarstjóri í Eyjum, fræðimaður og aldavinur Þorsteins, æviferil hans og þarf litlu við þau orð að bæta. Þorsteinn var raunar fæddur í Austur-Land- eyjum, í Gularáshjáleigu, skammt sunnan við Gunnarshólma, en fluttist með bláfátækum foreldr- um sínum til Eyja á þriðja ári og ólst upp á Vilborgarstöðum við kröpp kjör. Jón Einarsson, faðir hans, útvegsbóndi, var kenndur við húsið Hraun sem hann byggði síðar og stóð fram að gosi þar sem mætast Vestmannabraut, Heima- gata og áður Landagata. Hann var kunnur maður í Eyjum á sinni tíð. Þorsteinn Jónsson lést 1965, 85 ára að aldri, og var þá margt fagurt og gott um hann ritað. Um Elínborgu (f. 1883), þá myndarlegu og glæsilegu konu, er færra á blaði. Hún lést rúmlega níræð, 4. mars 1974, þá búandi í Hafnarfirði, og engin minningar- grein var skrifuð um hana svo vit- að sé. Hún bjó ekkja í Laufási þegar eldurinn kom upp í janúar 1973 og mátti hrekjast undan honum með dóttur sinni, Dagnýju, og fjöl- skyldu hennar sem bjó á efri hæð- inni hjá henni. Elínborg var systir Engilberts Gíslasonar, hins kunna og ágæta listmálara í Eyjum. Ef- laust muna margir rosknir Eyja- menn eftir honum við afgreiðslu- störf í málningarvöruversluninni í kjallara Viðeyjar, ævagömlum að sjá. Hann var fæddur 1877, lést 1971. Myndir hans frá Eyjum eru margar og hanga víða uppi hjá Vestmanneyingum. Foreldrar þeirra Elínborgar og Engilberts, og þriggja annarra systkina, voru Gísli Engilbertsson, verslunarstjóri í Juliushaab-verslun og síðar á Tanganum, og kaupmaður þar um hríð, og Ragnhildur Þórarinsdótt- ir. Þau voru bæði Sunnlendingar og höfðu flust til Vestmannaeyja 1869. Allt var þetta fólk því grónir Vestmanneyingar en með rætur undir Eyjafjöllum, í Landeyjum og Fljótshlíð. Laufássystkinin Þau Elínborg og Þorsteinn eignuð- ust 12 börn og ólu líka upp einn dótturson sinn. Þau giftu sig 1903, að fengnu kóngsbréfi til hjóna- vígslu, og áttu fyrst heima á loftinu á Hrauni, þá nýbyggðu húsi for- eldra Þorsteins, Jóns Einarssonar og Þórunnar Þorsteinsdóttur. Laufássystkinin, börn Elínborgar og Þorsteins, eru: 1. Þórhildur f. 1903. Hún var prestsfrú á Breiðabólstað í Fljótshlíð, gift sr. Sveinbirni Högnasyni, prófasti og al- þingismanni. Þau eignuðust fjögur börn. Þórhildur var kirkjuorganisti og söngstjóri. 2. Unnur, f. 1904; dó rúmlega fertug af nýrnabilun, bjó við heilsuleysi lengi. Hún var gift Runólfi Runólfssyni, vélstjóra og útgerðarmanni frá Bræðra- tungu í Eyjum. Þau eignuðust sjö börn. 3. Gísli, f. 1906. Var giftur Ráð- hildi („Hillu“) Árnadóttur Finn- bogasonar skipstjóra frá Norð- urgarði, síðar Hvammi. Gísli var áður verkstjóri í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hjá Einari ríka Sigurðssyni en síðar einn af þrem stofnendum og stjórn- endum Fiskiðjunnar. Þau áttu einn kjörson. 4. Ásta, f. 1908; lést barnlaus 26 ára að aldri. 5. Jón (eldri), f. 1910, lést 13 ára gamall úr taugaveiki sem geis- aði í Eyjum og víðar 1923. 6. Fjóla, f. 1912, húsfreyja í Reykjavík. Hún var gift Harald St. Björnssyni sem m.a. rak um- boðs- og heildverslun. Hann var sonur Baldvins Björns- sonar gullsmiðs í Eyjum og bróðir Hauks stórkaupmanns og Björns Th. listfræðings. Þau eignuðust þrjú börn. 7. Ebba (eldri), f. 1916. Hún lést 10 ára gömul. Hún var mállaus. 8. Anna, f. 1919, húsfreyja. Hún var forustukona í félögum kvenna í Eyjum, var gift Jóni Guðleifi Ólafssyni frá Garð- stöðum, verkstjóra og út- gerðarmanni. Þau eignuðust fjögur börn. — Anna hlaut titilinn „Eyjakona aldarinnar“ í könnun Frétta í ársbyrjun árið 2000. 9. Bera, f. 1921, húsfreyja í Eyj- um, giftist Ingólfi Arnarsyni vélstjóra og járnsmið, síðar útgerðarmanni og fram- kvæmdastjóra Útvegsbænda- félagsins. Þau eignuðust þrjá syni. 10. Jón (yngri), f. 1923. Hann flutt- ist ungur til Reykjavíkur og var verkstjóri þar. Hann bjó þó í Eyjum (í Garðinum) í nokkur ár Hús og fólk IV: Laufás - höfuðból í Vestmannaeyjum Laufás í Vestmannaeyjum, byggt 1912. Myndin er frá því um 1930. Austan megin við húsið má sjá í Vatnsdal, en vestan megin Hof, Sætún, Gamla-Skálholt, Gíslholt, Landagötu 18 (með flötu þaki), og Sól- nes. Fjær sér í Höfn og Fúsahús við Bakkastíg. Skipið á Víkinni gæti verið Dronning Alexandrine. Þorsteinn Jónsson (1880-1965) í Laufási á efri árum. Upphaf vél- bátaútgerðar í Vestmannaeyj- um er tengd nafni hans og því er Unnur I hóf veiðar á vertíð- inni 1906. Þorsteinn var kjörinn heiðursborgari Vestmannaeyja 1950, á sjötugsafmæli sínu. Húsfreyjan í Laufási, Elín- borg Gísladóttir (1883-1974), innborin Vestmanneyingur, fædd á Tanganum. Elínborg var skörungur og stjórnaði lengi stóru útvegsheimili. Hún var í forustusveit í félögum kvenna í Eyjum, Eykyndils og Líknar. Fjölskyldan í Laufási, nokkru fyrir 1950. Standandi (f.v.): Harald St. Björnsson, Fjóla, kona hans, Jón Guðleifur Ólafsson (Leifi) og Anna, kona hans, Gísli, Bera og maður hennar, Ingólfur Arnarson, Dagný, Jón og Ebba. Sitjandi (f.v.): Þórhildur, Þorsteinn, Elínborg Jónsdóttir (milli afa og ömmu), Elínborg Gísladóttir og Ástþór. Öll á myndinni eru látin nema Elínborg Jónsdóttir, og fjögur systkinanna voru dáin þegar myndin var tekin. Fjölskyldan hefur stillt sér upp í „betri stofunni“. Á veggnum má sjá danskar myndir, og sú í miðið hangir nú uppi í stofu hjá Elínborgu á Hraunslóð 2. Á henni stendur letrað: „En ung kone venter sin mand hjem fra søen.“ GREINARHÖFUNDUR: HELGI BERNÓDUSSON

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.