Bæjarins besta - 12.02.1992, Síða 9
BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 12. febrúar 1992
Lesendur:
Símamál
Bolvíkinga
- Erling Sörensen, umdæmisstjóri Póst og síma skrifar:
YEGNA auglýsingar
heilsugæslulæknisins í
Bolungarvík og viðtals við
hann í Bæjarins besta 5.
febrúar 1992 um símamál í
Bolungarvík, óska ég að eft-
irfarandi komi fram:
í haust þegar umrædd bil-
un, þ.e. að fyrir kom að
samtölum í Bolungarvík
slægi saman, var að sjálf-
sögðu þegar hafist handa við
að reyna að finna orsakir
þessa. Gekk það því miður
mjög illa. Tæknimönnum
tókst ekki að fá bilunina1
fram þrátt fyrir ítrekaðar
prófanir. Var því í desem-
ber sl. fenginn frá Reykja-
vík sérfræðingur í sjálfvirk-
um stöðvum til þess að
reyna að komast fyrir þenn-
an vanda, og taldi hann að
sér hefði tekist að finna bil-
anir sem valdið hefðu þess-
um samslætti.
Á þessu sama tímabili
urðu í tvígang bilanir á jarð-
streng milli ísafjarðar og
Bolungarvíkur sem einnig
ollu milliheyrslum.
• Erling Sörensen.
Um eða uppúr miðjum
janúar fengum við á ný til-
kynningu frá stöðvarstjór-
anum í Bolungarvík, um að
þessi bilun væri ennþá fyrir
hendi, eða ný bilun komið
fram. Var þá aftur tekið til
við að reyna að finna orsök-
ina, en því miður án árang-
urs enn sem komið er. Mun-
um við fá aftur til okkar
áðurnefndan sérfræðing úr
Reykjavík nú næstu daga,
og vonandi tekst þá að
kveða þennan hvimleiða
draug niður.
Ég tel rétt að benda á að
símatími heilsugæslulæknis,
sem er frá kl. 13.00-13.45,
er á miklum álagstíma í
símakerfinu. Oftlega þegar
margir eru að reyna að ná til
læknisins á sama tíma, verð-
ur álagið á Bolungarvíkur-
stöðinni svo mikið, að hún
ræður ekki við það. Við slík-
ar aðstæður er alltaf meiri
hætta á að smá ágallar verði
til þess að valda einhvers-
konar truflunum, sem ekki
eða mjög sjaldan mundu
gera vart við sig, þegar stöð-
in er undir eðlilegu álagi.
í lokin vil ég biðja Bolvík-
inga velvirðingar á því,
hversu illa hefur gengið að
ráða niðurlögum þessarar
bilunar, en það getur stund-
um verið erfitt að finna bil-
anir sem aðeins verður vart
stöku sinnum, í svo flóknum
tæknibúnaði sem sjálfvirk
símstöð er.
Erling Sörensen
umdæmisstjóri Pósts og
síma.
ísafjörður:
Sumarverkin
unnin í febrúar!
EIGANDI þessa húss á Isafirði hefur líklegast tekið
mið af sólarkomunni en ekki ártalinu þegar hann
ákvað að fara út til að mála húsið sitt. Venjulega mála
menn hús sín yfir sumartímann en þessi lét sér ekki muna
um að gera það í byrjun febrúar. Það var bara að búa sig
vel og hefjast handa. Ekki náði hann að klára að mála hús-
ið áður en stormur skall á og verður því eflaust að bíða til
vorsins.
9
ísafjörður:
Guðjón í
ráðgjaf-
arnefnd
GUÐJÓN A. Krist-
jánsson, forseti Far-
manna- og fiskimanna-
sambands Islands og skip-
stjóri á Páli Pálssyni IS,
hefur verið skipaður í ráð-
gjafarnefnd, sem er vett-
vangur skoðanaskipta um
tiilögur og hugmyndir
nefndar, sem falið hefur
verið að endurskoða lögin
um stjórn fiskveiða og
móta heildstæða sjávarút-
vegsstefnu.
Auk Guðjóns eru í
nefndinni þeir Helgi
Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, Arnar
Sigurmundsson og Stur-
laugur Sturlaugsson fyrir
SF, Kristján Ragnarsson
og Sigurður Einarsson af
hálfu LÍÚ, Arthúr Boga-
son fyrir hönd LS, Þor-
steinn Gíslason fyrir Fiski-
félagið, Óskar Vigfússon
fyrir SSÍ, Snær Karlsson
fyrir VMSÍ og Árni Bene-
diktsson frá ÍS hf.
TOYOTA BÍ LASÝN I NG
DRAUMURINN
ORÐINNAÐ
VERULEIKA!
NÝR HILUX DOUBLE CAB MEÐ BENSÍNVÉL ■ KOMDU OG REYNSLUAKTU HILUX SR5
► Nú er nýr Hilux Double Cab kominn á markaðinn
með 114 hestafla bensínvél og sjálfstæðri fjöðrun
að framan. Sannkallaður draumabíll og
ekki spillir verðið ánægjunni! Verð á Hilux
Double Cab SR5 kr. 1.650.000 á götuna.
Verð á Hilux Double Cab DX kr. 1.570.000 á götuna.
Hilux Double Cab DX kr. 1.570.000 á götuna.
OPIÐ:
LAUGARDAGINN 15. FEBRÚAR KL. 11.00-18.00
SUNNUDAGINN 16. FEBRÚAR KL. 13.00-16.00
SUÐURGOTU 9 • ISAFIRÐI
S 3800 • 4580 • FAX 4580
SYNUM EINNIG:
TOYOTA 4RUNNER B/s
TOYOTA COROLLA 4x4 XLI
TOYOTA
Tákn um gceði