Bæjarins besta - 26.02.1992, Blaðsíða 4
4
BÆJARINSBESIA • Miövikudagur 26. febrúar 1992
Óháð vikublað
á Vestfjörðum.
Útgefandi: H-prent hf.
Sólgötu 9,
400 ísafjörður
S 94-4560. Ritstjóri:
Siguijón J. Sigurðsson
S 4277 & 985-25362
Ábyrgðarmenn: Siguijón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjömsson ® 4101 & 985-31062.
Blaðamaður: Gísli Hjartarson S 3948.
Útgáfudagur: Miðvikudagur.
Ritstjómarskrifstofa og auglýsingamóttaka að
Sólgötu 9, S 4570 • Fax 4564.
Setning, umbrot og prentun: H-prent hf.
Bæjarins besta er aðili að
samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og
annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.
Leiðarinn:
Því verður
ekki breytt
í gömlum skræðum ku mega lesa þá veðurspádóma,
að grimmur skyldi Góudagurinn fyrsti, annar og hinn
þriðji og þá muni Góa góð verða. Stutt er í Öskudaginn
sem á sér átján bræður. Það er því eins gott að dagurinn
sá beri annað yfirbragð en óskin um fyrstu þrjá dagana í
Góu ber með sér, ef veðurfarið fram að Einmánuði á
ekki að vera öllum til ama.
En hvað sem líður veðurspám fyrri tíma, sem áreið-
anlega hafa átt það sameiginlegt með veðurspám nútím-
ans, að vera öruggastar eftir á, þá er það svo að Þorrinn
og Góan, hinn fjórði og fimmti mánuðir vetrar að fornu
tímatali, hafa löngum reynst þungir í skauti. Öldum
saman reyndu forfeður okkar að búa vel í haginn til að
þreyja Þorrann og Góuna og tókst misvel.
Að þessu sinni höfum við ekki þurft að kvarta yfir
Þorranum. Að minnsta kosti ekki til landsins þótt rysj-
ótt hafi reynst til sjávarins. Það fór þó ekki svo að hann
léti ekki kveða áður en hann kvaddi.
Og Góan gaf ekki eftir er hún heilsaði á Konudegin-
um. Á það vorum við svo sannarlega minnt á miðum úti
fyrir Vestfjörðum síðastliðinn sunnudag.
Allar götur síðan ísland byggðist hefur baráttan við
Ægi verið þáttur í lífsbaráttunni. Á því verður engin
breyting. Um ókomin ár munum við fyrst og síðast lifa á
því sem hafið gefur af sér. Af þeim sökum sækjum við
áfram á miðin. Grimmur Konudagur eða fornir spá-
dómar um veðurfar fá þar engu um þokað.
m
Seljalandsdalur:
Vestfjarðamót í
stórsvigi um helgina
LAUGARDAGINN 29.
febrúar næstkomandi
fer fram á Seljalandsdal,
Vestfjarðamót í stórsvigi í
flokkum 13-14 ára og 15-16
ára. Mótið hefst kl. 11.00.
og þurfa keppendur því að
vera komnir á svæðið eigi
síðar en kl. 10.00. Nafnakall
verður kl. 10.30.
Skráning í mótið fer fram
í Sporthlöðunni en henni
lýkur kl. 18.00. á föstudag.
Bikarmót í göngu 13 ára og
eldri fer fer einnig fram á
laugardaginn, á Akureyri.
Þar verða 6-7 ísfirðingar
meðal keppenda.
Á sunnudag fer síðan
fram á Seljalandsdal Vest-
fjarðarmót í stórsvigi 9-12
ára barna og hefst keppni
kl. 11.00. Keppendur eru
beðnir að mæta til leik hálfri
klukkustund fyrr en skrán-
ing fer fram í Sporthlöðunni
og lýkur á sama tíma og of-
angreind mót.
-s.
• Eigendur Frábæjar, Jakob Ólason og Eygló Eymundsdóttir í nýja salnum.
ísafjörður:
Frábær breytir um svip
SKYNDIBITASTAÐURINN Frábær á ísafirði opnaði
síðastliðinn föstudag eftir gagngerar breytingar. Með
opnuninni hefur staðurinn stækkað mikið því tekinn hefur
verið í notkun nýr salur sem rúmar um 40 manns í sæti.
Að sögn Jakobs Ólason-
ar, annars eiganda Frábæjar
verður nýi salurinn aðskil-
inn skyndibitastaðnum og
eiga því gestir að geta notið
góðrar máltíðar í notalegra
ísafjörður:
Landsf undur Hvíta-
sunnuhreyfingarinnar
— haldinn á
ísafirði
um helgina
ANDSFUNDUR
Hvítasunnuhreyfingar-
innar á íslandi verður hald-
inn á Isafirði dagana 28. og
29. febrúar næstkomandi.
Að því tilefni verða sér-
stakar samkomur haldnar í
Hvítasunnukirkjunni Sal-
em, fimmtudagskvöldið 27.
febrúar og laugardagskvöld-
ið 29. febrúar kl. 20,30 og
einnig sunnudagskvöldið 1.
mars kl. 17.00.
Mikill og fjölbreyttur
söngur verður á þessum
samkomum og margir
þekktir ræðumenn Hvíta-
sunnumanna víðs vegar af
landinu taka til máls. Allir
eru hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
-fréttatilkynning.
ísafjörður:
Göngu-
námskeið
HINN kunni skíða-
göngumaður Einar'
Ólafsson frá ísafirði
hyggst standa fyrir skíða-
göngunámskeiði fyrir
byrjendur á Seljalandsdal
og á Torfnesi dagana 3.-17.
mars næstkomandi.
Námskeiðin verða hald-
in á þriðjudögum, mið-
vikudögum og fimmtudög-
um frá kl. 20:15-21:15 og á
laugardögum kl. 14:00-
15:00. Þeirsem hafaáhuga
á að láta skrá sig á nám-
skeiðið geta hringt í síma
3522.
slf.
TIL SÖLU
Seljalandsvegur 77, ísafirði. Hús-
ið er á tveimur hæðum, 144 m2 hvor
hæð, og er innbyggður bílskúr á
neðri hæð.
Frekari upplýsingar veitir Sigur-
borg í síma94-3765, eftirkl. 18.00.
umhverfi. í nýja salnum
verður boðið upp á sömu
rétti og á skyndibitastaðnum
auk þess sem smáréttum
verður fjölgað og boðið upp
á rétt dagsins. Þá verður
gestum þar þjónað til borðs
og hægt verður að bjóða
upp á lifandi tónlist.
Gert er ráð fyrir að í nýja
salnum verði boðið upp á
vínveitingar sem væntanlega
geta hafist um næstu helgi.
Beðið er eftir því að úttekt
fari fram á staðnum svo að
leyfið fáist og eru aðilar úr
Reykjavík væntanlegir til
Isafjarðar í þessari viku til
þess verks.
Með opnun nýja salarins
breytist opnunartími Frá-
bæjar. Framvegis verður
opið alla daga frá kl. 11.30
til 23.30. Það var Arkitekta-
stofan Batteríið í Reykjavík
sem hannaði hinn „nýja“
Frábæ.
ísafjörður:
Á krossgötum
með Kristi
Æskulýðsdagur
kirkjunnar verður
víðast hvar haldinn hátíð-
legur næstkomandi sunnu-
dag, 1. mars. Við það tæki-
færi eru guðs|)jónustur
gjarnan með léttu yfirbragði
og sniðnar að þörfum barna,
unglinga og fullorðinna.
Að þessu sinni er yfir-
skrift dagsins „Á krossgöt-
um með Kristi". Daglegt líf
okkar verður sífellt fjöl-
breytilegra. Við rekumst á
ýmis konar tilboð bæði á
lífsnauðsynjum, afþreyingu
og andlegri leiðsögn. Það er
margt sem keppir um hug-
ann. Segja má að við stönd-
um á krossgötum. Kirkjan
vill benda fólki á að það
stendur ekki eitt í barátt-
unni. Jesús Kristur er upp-
risinn frelsari. Hann er hjá
okkur í anda sínum og
reiðubúinn að hjálpa okkur.
Við getum snúið okkur til
Jesú Krists í bæn og leiðsögn
þegar við fetum krossgötur
lífsins.
-fréttatilkynning.
Nýbílasala
með notaða bíla
Toyota Corolla XL
Árgerð 1989 ■ Ek. 36.000 km.
Verð 950.000.- stgr.
MMC Lancer Sedan
Árgerð 1988 ■ Ekinn 50.000 km.
Verð 750.000.- stgr.
MMC Lancer Sedan
Árgerð 1985 ■ Ekinn 70.000 km.
Verð 450.000,- stgr.
Toyota HiLux
Árgerð 1989 ■ Ekinn 83.000 km.
Verð 1.180.000.-stgr.
Subaru 1.8 Sedan
Árgerð 1987 ■ Ekinn 59.000 km.
Verð 710.000.- stgr.
Mercedes Benz 190 Ei
Ekinn 96.000 km.
Verð 1.300.000,- stgr.
Nissan Pulsar Sedan
Árgerð 1989 ■ Ekinn 31.000 km.
Verð 700.000,- stgr.
Feroza DX
Árgerð 1990 ■ Ekinn 26.000 km.
Verð 1.030.000.-stgr.
Peaugeot309 GR1.6Sedan
Árgerð 1987 ■ Ekinn 68.000 km.
Verð 530.000.- stgr.
MMC Tredia 4x4
Árgerð 1987 ■ Ekinn 88.000 km.
Verð 610.000.- stgr.
Mazda 323 Sedan
Árgerð 1987 ■ Ekinn 55.000 km.
Verð 430.000,-stgr.
Skoðið notaða bíla,
meðal annars inni
í rúmgóðum sal.
Vantar bíla á skrá.
S3800