Bæjarins besta

Issue

Bæjarins besta - 26.02.1992, Page 8

Bæjarins besta - 26.02.1992, Page 8
8 BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 26. febrúar 1992 hefðum verið svangir, þá ætti hann nógan mat handa okkur næst þegar við kæm- um. Ég var alltaf að flýta mér þegar ég var með bátinn. Einu sinni var ég að húkka á inn á Melgraseyri. Þá sagði einn karlinn: „Þú ert nú alltaf í orlofi." Þá ætlaði hann að segja „í akkorði". Jón Guðjónsson var einu sinni að láta ullarballa um borð til okkar á Arngerðar- eyri. Þá datt honum allt í einu í hug að fara til þess að vigta ballana. Hann notaði reislu og þurfti að lyfta böll- unum hátt upp en þeir voru stórir. Mér sýndist þetta ekkert vera hægt, að gera þetta svona, hann sá bara upp undir botninn á böllun- um. Þá fauk í mig og ég hljóp afturfyrir og kallaði í hann og sagði: „Heyrðu vin- ur, biddu nú þann eina sem er fyrir ofan þig að lesa af reislunni." Það var Guð al- máttugur. Þá varð hann svo illur að hann sparkaði öllum böllunum út í bátinn og ég slapp frá með bátinn.“ „Stop. stop, pilot“ „1. mars 1974 byrjaði ég í lóðsstarfinu og ég er að hætta vegna aldurs núna um mánaðarmótin febrúar, mars, svo ég er þá búinn að vera í því starfi í nákvæm- lega 18 ár. Þegar ég sótti um starfið þótti mörgum nei- kvætt fyrir mig að ég var lít- ill tungumálamaður. Satt er það að ég var ekki og er ekki mikill tungumálamað- ur. Ég fór á tvö námskeið á Kvöldskólanum og fékk svolitla undirstöðu. Ég man aldrei eftir því að verið hafi árekstrar út af tungumála- kunnáttunni. Ég held að að- alatriðið í þessu starfi sé það að lóðsinn sé nógu ákveðinn í fyrirskipunum og skipstjór- inn treysti honum alveg. Ég hef lóðsað inn Sundin marg- ra þjóða skip og flestir skipstjóranna hafa talað lít- ið í ensku, sérstaklega Rúss- arnir. Það var þægilegra fyr- ir okkur sem töluðum lítið að tala þetta litla sem við kunnum, heldur en það væru Englendingar sem voru að þusa yfir manni. Tungumálakunnátta er náttúrlega ágæt en það þarf að vera líkamlega hraustur maður sem er í þessu starfi. Ég hætti í þessu starfi sáttur við allt og alla því ég hef al- drei hugsað mér að lifa sjálf- an mig og álít að ekki neinn maður ætti að gera það. Oft er erfitt að komast upp í skipin í vondum veðrum þegar þau eru klökuð. Árið 1975 var verið að breikka rennuna í Sundun- um úr 35 metrum upp í 65 metra. Þá var dýpkunar- skipið Hákur að grafa í Sundunum. Ég lenti þá í því að Ióðsa inn rússneskt skip sem var 133 metrar á lengd og 18 metrar á breidd. Vin- ur minn Guðmundur Gísla- son átti þá bát sem hét Þrist- ur og hann bauð mér að vera með hann við innstu baujuna til þess að keyra á skipið og ýta á það ef það næði ekki beygjunni. Það kom nú ekki til greina að það væri hægt. Þegar við svo komum að miðbaujunni sagði rússneski stýrimaður- inn: „Stop, stop, pilot.“ (stoppaðu lóðs) Þá brást ég þannig við að ég stappaði niður fætinum og sagði: „Half ahead,“ (hálfa ferð áfram) og bætti svo við á ís- lensku: „Helvítið þitt.“ Þegar svo ég fór með skipið út Sundin aftur sá ég þegar ég fór fyrir innstu baujuna að þeir á Hák ýttu frá litlum vélbát sem þeir notuðu til þess að fara á í land. Ég sá að báturinn hreyfðist ekkert og var í miðri rennunni. Rússneski skipstjórinn æddi fram og aftur um brúna því hann hélt að við myndum sigla á bátinn og ég hélt það líka. Það var ekkert hægt að gera. Alveg á síðustu stundu skutlaðist báturinn undan bógnum hjá okkur og slapp. Ég þakkaði Guði fyrir það að hafa ekki siglt hann nið- ur. Þetta var í eina skiptið sem lá við óhappi hjá mér í þessi 18 ár.“ Pólitík og störf fyrir þroskahefta „Ég sat í bæjarstjórn ísa- fjarðar í 12 ár eða þrjú kjör- tímabil. Það var frá 1962 til 1974. Ég ætlaði aldrei í póli- tík og hafði ekkert verið í pólitík áður. Símon heitinn Helgason var að hætta í bæj- arstjórn og það hafði verið regla hjá flokknum að hafa sjómann í baráttusætinu. Ég tók sætið og hef stundum grobbað mig af útkomunni í kosningunum 1962 þegar ég var í fyrsta skiptið í fram- boði. Við fengum 47,5% at- kvæða á móti öllum vinstri flokkunum sem buðu fram einn sameiginlegan lista. Ég á afskaplega góðar minning- ar frá þessum tíma. Ég fór ekkert viljugur í þetta og ætlaði svo að hætta eftir fjögur ár en það varð úr að ég framlengdi þetta upp í 12 ár. Ég á mjög góðar minn- ingar um marga menn og ekki síst andstæðingana. Ég hef aldrei séð eftir þessum kafla í lífi mínu því ég kynntist mörgum mönnum. Þessar persónulegu deilur sem settu svip á pólitíkina á ísafirði í gamla daga voru að mestu búnar þegar ég byrj- aði í þessu, sem betur fer. Ég hef aldrei metið mann- gildi fólks eftir pólitískum skoðunum. Ég mætti einu sinn vini mínum og komm- únista við gamla tugthúsið. Ég sagði við hann: „Jón, alltaf erum við nú kunningj- ar þó að ég sé íhald og þú kommi.“ Ég hélt síðan áfram og karlinn elti mig inn í búðina Raf. Þar segir hann: „Ég skal segja þér Kristján minn, að það eru til fífl í öll- um flokkum.“ Svo bætti hann við: „Það er bara mis- jafnt hvað þau ráða miklu.“ Þetta er nákvæmlega eins og ég hugsa. Það sem mest heldur upp mannorði mínu í mínum huga er þátttaka mín í Styrktarfélagi vangefinna á Vestfjörðum. Félagið var stofnað 1976 og var ég ekki stofnandi vegna þess að ég var ekki í bænum. Ég gekk í þennan félagsskap 1977. Árið 1978 var sett á laggirn- ar að minni tillögu nefnd sem kölluð var Byggingafé- lag Styrktarfélagsins og var ég formaður hennar. Fram- kvæmdasjóður þroskaheftra var stofnaður með lögum 1980 og var Bræðratunga byggð eftir þeim lögum. Við vorum sem áhugafólk um þetta málefni búin að koma þessu af stað áður og leggja kjölinn að heimilinu. Líka vorum við búin að afla mál- efninu stuðnings og fjár. Ég tel mig vera einn af frum- kvöðlunum og er afskaplega glaður yfir að hafa tekið þátt í því.“ Það er einhver sem aðstoðar mann „Ég tel mig hafa lagt þessu málefni mikið lið því þegar ég var innan Lions- hreyfingarinnar fór ég tólf sinnum á sjó sem skipstjóri á Guðnýju til fjáröflunar fyrir Styrktarfélagið og seinna Bræðratungu. Sjó- ferðin var fastur liður einu sinni á ári. Lionbræður be- ittu línuna og fóru með mér á sjóinn nem Rósmundur Skarphéðinsson, stýrimaður á Guðnýju, hann fór alltaf með. Sigurður Sveinsson lánaði alltaf bátinn fyrir ekki neitt og á hann þakkir skildar fyrir það. Við fórum 11 sinnum á Guðnýju og einu sinni á Víking III því þá Guðný var hætt þá um vorið. Venjulega var þetta sunnudagsróður. Alla róðr- ana nema einn var búið að segja mér nákvæmlega hvar ég ætti að leggja. Það var eins og því væri hvíslað að mér. Þegar ég var á sjó í gamla daga mátti ég passa mig á því að framkvæma alltaf það sem mér datt í hug fyrst. í fyrsta róðrinum var búið að segja við mig löngu áður: „Þú ferð í 40 mílur í austur hálft suður frá Kögri.“ Þetta var á sunnudegi og Jón Egg- ert Sigurgeirsson var á sjó á Heiðrúnu frá Bolungarvík. Hann var á útilegu og kall- aði á mig. Hann vissi að ég var að koma út því hann er Lionmaður. Hann sagði í talstöðina. „Stjáni, nú hagar fiskurinn sér svipað hér út af Geirhólminum eins og þeg- ar þú varst með hann Vin.„ Ég gerði að gammni mínu og sagði: „Ég veit þú vilt mér vel Jón minn en ég er hér með stóran siglinga- fræðing mér við hlið, hann er á fjórðu alin, og hann er búinn að teygja sig upp og setja staðinn inn í lóraninn sem ég ætla að leggja á og ég legg þar. En ég þakka þér fyrir.“ Ég fékk 10 tonn og hann 6 þar sem hann lagði. Svona var þetta alltaf. Mín lífsskoðun er sú að sé maður að gera eitthvað já- kvætt og vinna að góðu mál- efni er alltaf einhver sem að aðstoðarmann. Ég hef þá trú. Ég sagði alltaf við strák- ana: „Hafið engar áhyggjur, ég veit að þetta lánast, drengir.“ Og það lánaðist." Eftir að þlaðamaðurinn hafði þegið kaffi hjá þeim hjónum eftir skemmtilegt kvöld laumaði Inga kona Kristjáns að honum þessari vísu: Lóðsinn er ekki lengur þarfur, þegar lengdur var Mávagarður. Skipin þau sigla sjálf um Sundin, á þessu öllu er lausnin fundin. Blaðamaðurinn þakkar fyrir kaffið og meðlætið og fer út í nóttina og snjófjúk- ið. -GHj. SMÁ Lyklakippa, merkt Italia '90 er I óskilum á afgreiðslu BB. Reglusamur aður óskar eftir húsnæði. Uppl. í 0 4071. Félagar, skotæfingarnar eru byrjaðar. Verða framveg- is á mánudagskvöldum kl. 20 í nýja íþróttahúsinu. Nýir fé- lagarvelkomnir. Skotfélag ísafjarðar. Til sölu er Subaru XT Turbo '88. Einn með öllu. Skipti á ódýrari. Upplýsingar í 0 4102 eftirkl. 19. Óska eftir litlu húsnæði m. eldhúsi og baði til skamms tíma. Upplýsingar í 3350. Óska eftir nýlegum kerr- uvagni undan einu barni. Uppl. gefur Iris ICC 3338. Til söluerrauðurSilverCross barnavagn, vel með farinn. Upplýsingar í <C 3945. Tilboð óskast í Mazda 323 '82. Upplýsingar í C 4787. Slysavarnarkonur. Munið föndrið í Sigurðarbúð laugar- dag kl. 14-17. Nefndin. Til sölu er Nissan Sunny ’85. Góður bíll. Einnig ársgamalt vatnsrúm á góðu verði. Upp- lýsingar f CC 3699. Til sölu er Polaris Indy Sport GTvélsleði ’91, ek. 1.200 mílur. Mjöggóðurstaðgreiðs- luafsláttur. Upplýsingar í CC 96-41432 eða 96-41144. D.S.S. 14039-2011 O.B.S. 73130-2001 Til sölu er Willy’s Jeep '84 m. V8 vél. Upplýsingar í 0 4170 ákvöldin. Til sölu er Chevrolet Blazer K5 m. 6,2 diesel vél. Ekinn 100.000 km. Mikið af auka- hlutum. Skipti athugandi. Upplýsingar í 0 4704. Til sölu er Sims snjóbretti Verð nýtt 30.000.- Selst á 15.000,-Uppl. 0 91-611032. Til sölu er Saab 90 '87, ekinn 25.000 km. Upplýsingargefur Benedikt í 0 3433 á kvöldin. Til sölu er Victor tölva m. prentara. Uppl. í 0 3829. Til sölu er Subaru Justy 4x4 '85. Uppl. I 0 3434 á kvöldin. Til sölu er eldhúsborð og 4 stólar. Selst ódýrt. Upplýs- ingar í 0 7800. Óska eftir hamstri, helst unga. Upplýsingar gefur Erla Rán í 0 7146. Óska eftir að kaupa vél í vél- sleða, helst ódýrt. Upplýsing- ar í 0 7362. Við erum með 2 börn og ósk- um eftir 3-4ra herb. ibúð til leigu frá og með 1. júní nk. Upplýsingar veita Önundur og Gróa í 0 3929. Til sölu er bastsófasett 2+1+1, hringlaga bastborð með glerplötu og drottn- ingarstóll. Einnig sófi sem hægt er að breyta í tvíbreiðan svefnsófa og Galant GLX '86. Upplýsingar í 0 4469.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.