Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 26.02.1992, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 26.02.1992, Qupperneq 10
10 BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 26. febrúar 1992 - Meðal annars - - á sýningarsvæði - MMC Pajero stuttur B. '86 Ekinn 114.000 km. Verð 950.000.- Skipti ath. Renault Express '91 Ek. 20.000 km. Verð 750.000.- m. vsk. Bein sala. Subaru Stadion 4x4 '85 Ekinn 85.000 km. Verð 570.000.- Bein sala. MMC Colt '84 Ek. 99.000 km. Verð 360.000.- Skipti ath. Subaru Stadion 4x4. '88 Ek. 105.000 km. Verð 970.000 Skipti ath. Lada Safír '89 Ek. 34.000 km. Verð 290.000.- Bein sala. Lada Stadion '89 Ek. 35.000 km. Verð 390.000.- Bein sala. ★ Um 950 bílar á skrá af öllum stærðum og gerðum. ★ Gott úrval af jeppum og 4x4 fólksbílum. ★ Eigum nokkuð úrval af vélsleðum á skrá ★ Áhersla lögð á traust og örugg viðskipti. ★ Vaktað svæði. ★ MIÐSTÖÐ BÍLAVIÐSKIPTA Á VESTFJÖRÐUM A BÍLASALAN ELDING s/f Skeiði 7, 400 ísafirði sími 94-4455 ■ fax 4466 Ferðapistill: Upplýsingaöflun og upplýs- ingagjóf í ferðaþjónustu — Marín Guðmundsdóttir, forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamála á íslandi skrifar: UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ ferðamála hefur nú verið starfrækt á fimmta ár og hefur sannað að mikil þörf er fyrir starfsemi af því tagi sem þar fer fram. Eins og nafnið gefur til kynna er hlutverk Upplýsingamiðstöðvarinnar að miðla upplýsingum til ferðamanna og aðila í ferðaþjónustu auk þess að annast bæklingadreifingu, ráðgjöf og fleira. Oft hefur verið talað um skrifstofuna í Reykjavík sem „glugga landsbyggðar- innar“ þar sem þar er að finna allar helstu upplýsing- ar um það sem ferðamönn- um stendur til boða í ferða- þjónustu í hverjum landshluta. Þar er að finna mikinn fjölda bæklinga, upplýsingar í Handbók Upplýsingamiðstöðvarinnar og þjálfað starfsfólk sem að- stoðar ferðamenn. Á skrif- stofuna leitar gífurlegur fjöldi ferðamanna ár hvert og ætti það því að vera kappsmál þeim sem bjóða þjónustu ætlaða ferðamönn- um að koma þeim upplýs- ingum á framfæri til skrif- stofunnar. Því miður er enn of algengt að starfsfólk Upplýsingamiðstöðvarinnar þurfi að leggja mikið á sig til að afla slíkra upplýsinga. Auk þeirrar skrifstofu sem nú er rekin í Reykjavík er mjög mikilvægt að upp- lýsingamiðstöðvar séu starf- ræktar úti um land. Slíkar stöðvar hafa nú þegar litið dagsins ljós víða, en nokkuð misjafnlega er að fjármögn- un og rekstri þeirra staðið. Á upplýsingamiðstöðvum úti um land er svæðisbundn- um upplýsingum komið á framfæri og er mikilvægt fyrir ferðamanninn að geta gengið að slíku sem vísu. Starfsfólk Upplýsinga- miðstöðvarinnar hefur orðið vart við aukinn áhuga ferða- manna á Vestfjörðum síð- astliðin tvö sumur og hið sama má segja frá ferðasýn- ingum erlendis. Nauðsyn- legt er að koma til móts við þessa þróun með góðri upp- lýsingagjöf á Vestfjörðun- um sjálfum, ekki síst vegna strjábýlis og þess að sam- göngukerfið t.d. með áætl- unarbílum þykir nokkuð flókið. Upplýsingar um samgöngur er viðamikill þáttur í allri upplýsingagjöf og verður ekki hjá því kom- ist að minnast á mikilvægi bættra samgangna á Vest- fjörðum og þá sérstaklega með áætlunarbílum. Fjöldi ferðamanna sem ferðast á eigin vegum er afar óánægður með að komast ekki áfram landleiðina með áætlunarbíl frá Vestfjörðum og norður í land öðru vísi en að þurfa oftast að fara fyrst í Borgarnes til að geta haldið leið sinni þaðan áfram! Þetta er nokkuð sem gerir það að verkum að ferða- menn hætta við að heim- sækja Vestfirði. Enn sem komið er geta Vestfirðingar stýrt ferðamannastraumi um Vestfirði og gert ráðstaf- anir áður en viðkvæm land- svæði hafa orðið fyrir of miklum átroðningi. Upplýs- ingamiðstöðin á ísafirði hef- ur þar mikilvægu hlutverki að gegna. Miðstöðvar í landshlutun- um þurfa einnig að geta veitt upplýsingar á landsvísu t.d. með hvaða hætti ferða- maðurinn getur haldið áfram leið sinni um landið. Að vissu marki þarf að sam- ræma ýmsa þætti í starfsemi upplýsingamiðstöðva úti um land, en margar þeirra hafa notið faglegrar aðstoðar og ráðgjafar frá Upplýsinga- miðstöð ferðamála. Þó hafa aðeins fyrstu skrefin verið stigin í þessa veru og mun Upplýsingamiðstöð ferða- mála standa fyrir námskeiði sem ætlað er starfsfólki upp- lýsingamiðstöðva um land allt í vor. Að lokum vil ég minna á mikilvægi samvinnu hags- munaaðila í ferðaþjónustu og að sú reynsla sem fengist hefur af starfsemi upplýs- ingamiðstöðva sé höfð að leiðarljósi við uppbyggingu ferðaþjónustu um landið. ísafjörður: Kennarar mótmæla skerðingu kennslutíma ENNARAFUNDURí Grunnskólanum á Isa- firði sem haldinn var 11. febrúar síðastliðinn harmar þau áform ríkisstjórnarinnar að skerða kennslutíma grunnskólanemenda í 4.- lO.bekk og fjölga nemendur í bekkjardeildum. Fundurinn mótmælir því harðlega að mikilvæg á- kvæði nýsamþykktra grunn- skólalaga séu að engu höfð (75.gr. og 46.gr.). Verður það að teljast undarleg framkvæmd að ætla að breyta svo nýjum lögum til hins verra og lítt til þess fall- in að auka traust þjóðarinn- ar á ráðamönnum þessa lands. -fréttatilkynning. Hnífsdalur: Kútfmaoakvöld Lions ARLEGT kúttmaga- kvöld Lionsklúbbs ísa- fjarðar verður haldið í Fé- lagsheimilinu í Hnífsdal á laugardaginn. Húsið opnar kl. 19 og er öllum fullveðja karlmönnum heimil þátt- taka, meðan húsrúm leyfir. Rúturferðir verða til og frá félagsheimilinu og verð- ur ekið hefðbundna strætis- vagnaleið. Lagt verður af stað frá Stórholti kl. 18.45. Þeir sem ekki hafa þegar skráð sig er bent á að hafa samband við Ernir Ingason í símum 3696 og 3744 (vinna), Heiðar Guðmunds- son í símum 3277 og 3211 (vinna), Kristin Haraldsson í símum 4740 og 4758 (vinna) og Magnús Guð- mundsson í símum 4046 og 3611 (vinna). ísafjörður Vitni óskast GUNNVÖR Rósa Mar- vinsdóttir kom til okk- ar á ritstjórn BB og óskaði eftir því að blaðið lýsti eftir vitnum að því er ekið var á bifreið hennar. Fimmtudaginn 20. febrú- ar sl. kl 14:50 var ekið á bifreið Gunnvarar á bíla- stæðinu við Landsbankann á ísafirði meðan hún skrapp inn í apótekið. Sá sem olli tjóninu stakk af. Vinstri hurð bifreiðarinnar er mikið skemmd. Bifreiðin er af Mazda gerð, grá að lit ogber einkennisnúmerið f-5717. Vitni eru beðin að snúa sér til lögreglu eða til Gunnvar- ar sem hefur síma 4282. -GHj. Hlíðarvegur m/bílskúr Til sölu er góö 4ra herbergja, ca. 100 m2 efri hæö í fjórbýlishúsi ásamt ca. 35 m2 bílskúr. Góöar innréttingar og parket. Áhvílandi eldra húsnæöislán 2,2 milljónir og 1,4 milljónir húsbréfalán. Æskileg skipti á 3ja herbergja íbúö í Reykjavík. Upplýsingar veitir Fasteignasalan Ásbyrgi, Borgartúni 33, Reykjavík, sími 91-623444. SMÁ Til sölu er Polaris Indy Trail vélsleði '89, ekinn 3200 mílur. Verð u.þ.b. 380.000.- Skipti á bil eða skuldabréf ath. Upplýsingar í 0 3197. Óska eftir að taka herbergi eða einstaklingsíbúð á leigu frá 1. mars nk. Þarf að vera á Eyrinni. Upplýsingar í 0 3089 á kvöldin. Til sölu er Kawasaki LTD 550 mótorhjól '84. Skipti mögu- leg á bíl. Uppl. í 2? 7506. Óska eftir húsi eða (búð í Bol- ungarvík í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð í Reykjavík. Upp- lýsingar í 0 7055. Til sölu er Lada Sport '80 m. '87 vél.Verð 77.000,-Upplýs- ingar í 0 7488. Til sölu eru 2 stk. Chevrolet, 6 og 8 cyl., Suzuki bitabox ’83, timbur 1x6”, heflað, 600 m., nýleg Robland trésmíða- vél, sjálfvirk hagiabyssa og raðhús i byggingu ( Bolung- arvík, gott verð og kjör. Upp- lýsingar (0 7577 og 7139. Til sölu er Atari 520ST FM tölva m. 60 leikjum, stýri- pinnaog mús. Uppl. í 0 7334. Læknir óskar eftir lítilli (búð í 4 mánuði.'Upplýsingar gefur Sigurbjörg í 0 4500. Til sölu er MMC Lancer 4x4 '87. Upplýsingar í 0 4447. Varahlutir ( Yamaha MR50 skellinöðru óskast. Upplýs- ingar í 0 4201. Til sölu er lítið ekinn Skoda Favorit til niðurrifs eða við- gerðar. Upplýsingar gefur Berglind í 0 3742. Til sölu eru Lewis 501 galla- buxur, stærð W34 - L34. Upplýsingar gefur Aldís í 0 7280 eftir kl. 19. Til sölu er M. Benz 190 '85. Upplýsingar í 0 3055. Til sölu er Lada Sport '82, 5 gira upphækkaður á góðum dekkjum. Uppl. í 0 4201. Til leigu er 2ja herb. íbúð á Eyrinni. Upplýsingar í 0 4792 á kvöldin. Til sölu eru 4 jeppadekk á 5 gata Whitespoke felgum. Passa undir Lödur o.þ.h. Upplýsingar í 0 7741. Til sölu er blár Silver Cross barnavagn m. stálbotni. Upplýsingar í 0 7522. Til sölu erDatsun 260Z sportbíll 74,5 gíra, 6 cyl. verð 100.000.- í sæmilegu standi. Einnig Datsun 280 ZX '83. Verð 700.000 kr. stgr. Upp- lýsingar í 0 7190 á kvöldin. Vil kaupa notað MIG/TIG suðutæki og rafsuðu. Upp- lýsingar i 0 4353. Til sölu er Laser XT3/8086 tölva með svart/hvítum skjá, 40 mb hörðum diski, drifi og mús. Forrit fylgja s.s. Windows, Word Perfect 5.0, o.fl. Gott verð. Uppl. gefur Snorri í 0 3457 eða 4571. Til sölu er baðborð. Upplýs- ingar í 0 4667.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.