Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1994, Page 11

Bæjarins besta - 14.09.1994, Page 11
I - við Norðurveg i ..Jt) SMMBÐUICNTIBAUI LITll I ÆVINmUM í HSNNISTÓW AM£- XÍKU! NOKm BALTIMOmAK cmusrsvo IUTLAUSIK AT) WNA AO mAHANNOOBERJA-ENSÖCU- HETJA OKKAK SVAWIRÚMLECA í SÖMU MYNT OC MANNCTLEYIN EW VAKT TIL mSÖCU LENCUR! AS SÖCN EBI06 CIA NÁDIST PESSIATBUWUR EKKIÁ VÍDEÓ ENDA EKKISÝNINCAR- H/EFUR HVOKT ED EK. EINN SJÓNAK- VOTTA NÁDIPÓ AD TEIKNA PESSAMYNDATVETTVAN6I. - honungleg myndbandaleiga yf rl Á ÍSAFIRÐI SÍAAI 5267 Jafntefh' í síðasta leiknum BOLTAFÉLAG ísafjarðar og Víðir frá Garði skildu jöfn í síðasta leik 3. deildar í knattspyrnu sem fram fór á Torfnesvelli á laugardaginn. Jafnræði var með liðunum framan af og sóttu þau til skiptis á að sækja. Á 16. mínútu fengu ísfirðingar vítaspyrnu sem Baldur Jónasson lét verja frá sér. Undir lok fyrri hálfleiks tókst gestunum að skora mark og var þar að verki Guðmundur Valur Sigurðsson. í síðari hálfleik bættu Víðismenn öðru marki við en þarvar að verki þjálfari liðsins Njáll Eiðsson. ísfirðingar gáfust þó ekki upp og uppskáru mark stuttu síðar en þar var að verki markahrókur liðsins, Sindri Grétarsson. Leikmaður ársins hjá BÍ, Haukur Benediktsson, jafnaði síðan leikinn rétt fyrir leikslok. Víðismenn þurftu á jafntefli að halda til að eiga möguleika á að komast upp í aðra deild og það hafðist og það verða því Skallagrímur og Víðir sem leika í 2. deild á næsta keppnistímabili. ísfirðingar enduðu í 5. sæti deildarinnar með 28 stig. í 4. deild féllu Tindastóll og Reynirfrá Sandgerði. Mesta þátttaka miðað við íbúafjöida ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Höfr- ungur á Þingeyri og Ung- mennafélagið Fjölnir í Graf- arvogi fengu sérstök verð- laun til ungmenna- og íþróttafélaga fyrir þátttöku f Lýðveldishlaupinu sem stóð yfir í 99 daga, frá 15. maí til 21. ágúst sl. Ungmennafélagið Fjölnir var með mesta þátttöku á landinu en frá félaginu tóku 9.830 manns þátt í hlaup- inu. íþróttafélagið Höfr- ungur á Þingeyri var með mesta þátttöku miðað við íbúafjölda, þ.e. 13 þátt- tökur á hvern íbúa. Hvort félag fékk verðlaunabikar að launum auk 100.000 króna peningaverðlauna. Rúnar og Kristinn sigruðu BRIDSDEILD Ung- mennafélagsins Geisla í Súðavík stóð fyrir opnu tví- menningsmóti í brids laug- ardaginn 3. september sl. Nokkur vonbrigði voru hve fáir sáu sér fært að mæta til keppninnar, en aðeins tóku 16 pör þátt þrátt fyrir vegleg verðlaun. Mótið heppnaðist þó vel undir öruggri stjórn Sveins Rún- ars Eiríkssonar. Lengi vel leit út fyrir að enginn ætlaði að ógna þeim Rag- nari Torfa Jónas- syni og Tryggva Ingasyni í barátt- unni um toppsætið en þeir leiddu mótið allt þar til í lokaum ferðunum. Undir lokin misstu þeir hins vegar flugið og eftir harða keppni sem stóð í um 10 klst., stóðu þeir Rúnar Vífilsson og Kristinn Kristjánsson uppi sem sigurvegarar með tæplega 61 % skor en Ragnar Torfi og Tryggvi féllu niður í 5. sæti. Röð efstu para urðu sem hér segir: 1. Rúnar Vífils- son og Kristinn Kristjáns- son, 112 stig. 2. Júlíus Sigurjónsson og Hrannar Erlingsson, 98 stig. 3. Óskar Elíasson og Friðrik Egilsson, 65 stig. 4. Jóhann Ævarsson og Pétur Júlíus- son, 60 stig. 5. RagnarTorfi Jónasson ogTryggvi Inga- son, 46 stig. 6. Frank Guð- mundsson og Þorsteinn Geirsson, 44 stig. Veiði iokið í Laugar- daisá VEIÐI í Laugardalsá lauk á sunnudag. Það voru þeir Skúli Skúlason og Jóhann Pétur Ragnarsson sem lokuðu ánni með því að reyna síðasta daginn en aflinn varenginn. Alls komu 150 laxar á land úr ánni í sumar og 7 úr vatninu. Á síðasta ári veiddust 266 laxar og er aflinn því 109 löxum minni en þá. Minnsta veiði í ánni var á síðasta áratug en þá komu 125 laxar á land að sögn Sigurjóns Samúelssonar á Hrafnabjörgum. Aðaifundur KFIverður hald- inn laugard. 1. okt. kl. 14 í.sal Sjálfstæðisfélagsins á Isa- firöi. Venjuleg aðalfundar- störf. Mætum oli, Stjórnin. Haglabyssa til sölu. Ný Browning pumpa, svört með svörtu plastskafti. 2 3' og 22" hlaup. Sutt og flott. Verð kr. 60.000,- Uppiýsingar í síma 5339. Óska eftirað kaupasófasett, 3+1+1, og 2ja manna svefn- sófa. A sama stað er til sölu nýttsófaborðúrbeykí. Upp- lýsingar í síma3732a kvöldin. Til söluScout II árg.77, ekinn ca. 110.000 km. sjálfskíptur, véi 304. Orifið þarfnast lag- færingar. Ný33 dekk.Tilboð óskast. Uppl. í síma4039. Tii sölu 3ja herb. íbúð meö sér inngangi í hjarta bæjarins. Dagmamma! Get bætt vtð mig börnum. Hef ieyfi. Uppl. gefur Jónína í síma 4565. Auður Yngvadóttir ökukennari Heimasími: 94-5477 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 11

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.