Bæjarins besta - 14.09.1994, Blaðsíða 12
Sala Þjónusta
Kælivélar
Kælimiðill
Ventlar
Lokar o.fl.
Uppsetning og viðhald
á kæli- og frystikerfum.
Skráning og eftirlit
á freonkerfum.
POLLINN HF. ® 3092
Sala & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
OHAD FRETTABLAÐ
Á VESTFJÖRÐUM
STOFNAD 74 NÓVEMBER 1984
Sporjárnasett 4 stk. kr. 1.885,-
Rafhlöðuborvél 12 V. í tösku kr. 10.565,-
GVENDUR Á E7RINNI
Hafnarstrx.ti 11 • Ý00 Ísafjördur • sími SlÝ-SISS
Sigurvon ÍS-5QO týndi ptýrinu
Handvöm
skipasmí
stöðvar in
- segir framkvæmdastjóri Fisk-
iöjunnar Freyju sem gerir úl skipið
STÝRI snurvoðarbátsins
Sigurvonar ÍS-500 frá Suður-
eyri datt af skipinu er það var
að veiðum út af Dýrafirði um
hádegisbil á fimnitudag í síð-
ustu viku. Mýrafell frá Þing-
eyri kom Sigurvoninni til að-
stoðar og stýrði henni inn til
Isafjarðar þar sem skipið var
tekið í slipp um kvöldið.
„Mín persónulega skoðun er
að hér sé um að ræða hand-
vömm Skipasmíðastöðvar Mar-
sellíusar hf.. þ.e.a.s. því fyrir-
tæki sem varð gjaldþrota fyrir
stuttu, því 4. október á síðasta
ári fór skipið niður úr slippnum
á Isafirði eftir gagngerar endur-
bætur á stýrisbúnaðinum,”
sagði Óðinn Gestsson, frarn-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Freyju hf., á Suðureyri, en fyrir-
tæki hans gerir út Sigurvonina.
Að sögn Óðins mun viðgerð
taka 10-15 daga og á rneðan
munu krókaleyfisbátar á stað-
num sjá fyrirtækinu fyrir hrá-
efni. Skipið er tryggt fyrir tjóni
Sigurvon ÍS-500 í siippnum á ísafirði. Á innfeiidu myndinni sést að stýrið vantar á skipið.
sem slíku en útgerðin mun þurfa
að bera kostnað vegna sjálfs-
ábyrgðar á tryggingunni sem
og tap vegna stöðvunar skipsins
frá veiðum.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Isvest hf., skipa-
smíðastöð var framkvæmda-
stjóri Skipasmíðastöðvar Mar-
sellíusarhf., sem sá um viðgerð
á Sigurvoninni.
„Það er ekki vitað hvort um
handvömm hafi verið að ræða.
Það má segja að það sé mögu-
leiki en það getur enginn sagt
til um það með vissu. Það er
ekki hægt að sjá það á þeint
hlutum sem eftir eru á skipinu
og því verður að ná stýrinu upp
til þess að hægt sé að ganga í
skugga um það. Hér er því um
hreinar ágiskanir að ræða og ég
get því hvorki borið á móti því
né samþykkt," sagði Sigurður.
Ske/fiskur á Fiateyri
Hefur sett fram-
leiðslu næstu
þriggja ára
VESTFIRSKUR Skelfisk-
ur hf., á Flateyri hefur gengið
frá samningum við bandarískt
stórfyrirtæki, PET Corporat-
ed, um að fyrirtækið kaupi
alla kúffiskframleiðslu fyrir-
tækisins næstu þrjú árin.
Samningurinn við bandaríska
fyrirtækið er Skelfiski lífs-
nauðsynlegur og nánast lyk-
illinn að því að hægt yrði að
hefja frantleiðslu hjá félag-
inu.
Það var Coldwater, dóttur-
fyrirtæki Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sem hafði
milligöngu um samnings-
gerðina og aðstoðaði þá Skel-
fisksmenn á allan hátt. Verð
fyrir afurðina mun vera mjög
viðunandi en ekki hafa verið
gefnar upp neinar tölur í því
sambandi. PET, er stór mat-
vælasteypa vestra og mun
fyrirtækið nota kúfiskinn í
sósur og súpur og fleira.
Verksmiðjuhús Skelfisks
er að verða tilbúið til frarn-
leiðslu og flestar vélar sem
ætlaðar eru til kúffisksfram-
leiðslu eru komnar til lands-
ins. Ráðgert er að framleiðsla
hefjist í nóvember nk. og að
fyrsta sendingin fari frá fyrir-
tækinu fljótlega eftir það.
Á aðalfundi félagsins sem
haldinn var á laugardag var
ákveðið að auka hlutafé
félagsins upp í 110 milljónir
króna en það er nú 100
milljónir. Á fundinum var
Einar Oddur Kristjánsson,
kjörinn formaður stjórnar en
aðrir í stjóm eru þeir Agúst
Einarsson, Ólafur B. Ólafs-
son, Hreinn Jakobsson og
Guðlaugur Björgvinsson.
-s.
Tiiboð í byggingu á undirstöðum fyrir skíða-
iyftur opnuð
Lægsta tilboðið þrjátíu
prósent hærra en kostn-
aðaráætlun
- ákveðið að ganga til samninga við Eirík og Einar Val hf
Á MÁNUDAG voru opnuð
tilboð íbyggingu á undirstöðum
fyrir þrjár skíðaly ftur sem fyrir-
hugað er að setja upp á næstu
mánuðum í Tungudal og á
Seljalandsdal. Fjóriraðilarbuðu
í verkið og var það lægsta
tæpum 30% hærra en kostn-
aðaráætlun gerði ráð fyrir en
hún hljóðaði upp á kr.
14.302.000.
Þeir sem buðu í verkið voru
Eiríkur og Einar Valur hf., sem
buðu kr. 18.577.600., Naglinn
hf„ sem bauð kr. 18.637.310.,
Vélaverk hf., sem bauð kr.
24.951.000., og Hólsvélar hf„
sem buðu kr. 27.312.800., en
síðastnefnda fyrirtækið sendi
einnig inn frávikstilboð upp á
kr. 26.322.320. Á bæjarráðs-
fundi sern haldinn var síðdegis
á mánudag var ákveðið að
heimila bæjarstjóra að ganga
til samninga við lægstbjóðanda,
Eirík og Einar Val hf.
I fyrsta áfanga verksins er
gert ráð fyrir steypu á sökklum
undir rnöstur og á því verki að
vera lokið eigi síðar en 1.
nóventber nk. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins er ástæða
þess að tilboðin voru hærri en
kostnaðaráætlun, sú að bjóð-
endur hafa gert ráð fyrir rneiri
kostnaði við jarðvegsvinnu
verksins. Ráðgert er að setja
upp þrjár lyftur í vetur, tvær í
Tungudal og eina á Seljalands-
dal. I Tungudal kentur ein 360
metra löng barnalyfta og 870
metra löng lyfta sem mun ná
upp á Sandfellsháls. Á Selja-
landsdal mun síðan verða reist
860 metra löng lyfta sem mun
vera staðsett aðeins innar en
„rauða lyftan" og mun hún ná
upp að utanverðu gilinu.
Lyfturnar þrjár sem eru af
Leitner gerð munu koma í
hlutumtil landsins ogerráðgert
að þær verði tilbúnar til notkun
íjanúaránæsta ári. Hugmyndir
eru uppi um að fá línuhóp frá
Orkubúi Vestfjarða til að sjá
um uppsetningu lyftanna en þar
á bæ eru menn vanir að fást við
erfíðarlínulagniráfjöllumuppi.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær hafist verður handa við
að útbúaaðkeyrslu að lyftunum
sem og að útbúa bílastæði en
ákvörðun þess efnis verður
væntanlega tekin á næstu vik-
um. I haust verðureinnig settur
sjálfvirkur mælir á Seljalands-
dal sem mæla mun snjóþykkt
og hitastig og ætti því að vera
auðveldara að fylgjast með
snjóalögum og snjóflóðahættu
á svæðinu en verið hefur til
þessa. -s.
RITSTJORN V 4560 • FAX ® 4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT « 4570