Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.08.1996, Side 9

Bæjarins besta - 21.08.1996, Side 9
Inngangur að garðinum Skrúði að Núpi í Dýrafirði. Meðai viðstaddra við athöfnina voruþeirHiynurSigtryggsson, veðurfræðingur, sonursr. Sigtryggs Guðiaugssonar og Hjaitiínar Margrétar Guðjónsdóttur og Gunniaugur Jónasson, kaupmaður á ísafirði. Endurreisn garðsins Skrúðs að Núpi í Dýrafirði /okið Ræktunar-, skóla- og guðsmannsins jsr. Sigtryggs Guðlaugssonar minnst í tilefni þess að endurreisn garðsins Skrúðs að Núpi í Dýrafirði er iokið, en liann er einn af elstu skrúðgörðum hérlendis og níutíu ár eru liðin frá fyrstu framkvæmdum við gerð hans, var haldin mikil hátíðarathöfn í garðinum á sunnudaginn var. Vel á þriðja hundrað manns voru viðstaddir athöfnina m.a. Björn Bjarna- son, menntamálaráðherra, for- ystumenn hinna sameinuðu sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum auk heimamanna og annarra gesta. Hátíðin hófst kl. 1 1 um morguninn með messu í Núps- kirkju þar sem séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir þjónaði fyrir altari og minntist guðs- mannsins séra Sigtryggs Guð- laugssonar. Kl. 14 hófst síðan hátíðardagskrá í Skrúð þar sem séra Sigtryggs var minnst sem ræktunarmanns en þar var árið 1906 sem séra Sigtryggur Guðlaugsson, prestur og próf- astur að Núpi, hófst handa við að ryðja urð í nágrenni Núps til að koma þar upp skrúðgarði sem síðar hlaut nafnið Skrúður. Björn Bjarnason, menntamáiaráðherra flutti ávarp við athöfnina í Skrúði. Við athöfnina söng einnig kirkjukór Þingeyrarkirkju og Björn Bjarnason, mennta- inálaraðherra flutti ávarp. Að athöfninni lokinni við Skrúð var gestum boðið í síðdegis- kaffi að Hótel Eddu á Núpi en þar var einnig haldin sýning á starfsemi Núpsskóla í máli og myndum þar sem skólamanns- ins séra Sigtryggs var minnst. Þá var íbúðarhús séra Sig- tryggs og frú Hjaltlínu Guð- jónsdóttur í Hlíð til sýnis fyrir hátíðargesti og blómsveigur var lagður á leiði hjónanna að Sæbóli á Ingjaldssandi. Garð- urinn Skrúður var með tíman- um mjög þekktur og hefur án efa haft jákvæð áhrif á rækt- unarmenningu á Islandi. Með árunum varð viðhald á garð- inum æ erfiðara og var því ákveðið árið 1992 að endur- reisa garðinn. Þá um haustið kontu nemendur og kennarar Garðyrkjuskóla ríkisins á stað- inn og hófu verkið í samvinnu við heimamenn og aðra vel- unnara garðsins. Sérstök nefnd hefur starfað á uppbyggingartímanum, og mun hún væntanlega vinna áfram, en eitt meginverkefni hennar verður að tryggja rekst- ur garðsins um ókomin ár. Til þess að tryggja viðunandi viðhald og uppbyggingu Skrúðs á hverjum tíma er fyrirhugað að stofna opinberan sjóð, sem vonir standa til að verði það öflugur að hægt verði að starfrækjagarðinn fyrir vexti af höfuðstóli. Þeir sem vilja leggja fé í stofnsjóðinn eða koma á framfæri áheitum geta haft samband við fram- kvæmdanefnd Skrúðs sem í eiga sæti þeir Grétar J. Unn- steinsson, formaður, skóla- stjóri Garðyrkjuskóla ríkisins, Sigurður Helgason, deildar- stjóri í menntamálaráðuneytinu og Brynjólfur Jónsson. fram- kvæmdastjóri Skógræktar- félags íslands. Þá er einnig hægt að leggja framlag á bankareikning sjóðsins: Fram- kvæmdasjóður Skrúðs, kt. 420771-0109. Bankanúmer: 0556-14-301909. Einar Kristinn Guðfinnsson, aiþingismaður, Kristján Þór Jú/íusson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar og Haiigrímur Sveinsson á Þingeyri hiýða hér á ávarp menntamáiaráðherra. Eidri borgarar i Dýrafirði mættu að sjáifsögðu tii athafnarinnar. Kirkjukór Þingeyrarkirkju söng við athöfnina. Fegurð og friðsæid við Skrúð. MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996 9

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.