Bæjarins besta - 27.07.2005, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 200518
mannlífið
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Í dag er miðvikudagurinn
27. júlí, 210. dagur ársins 2005
Þennan dag árið1898 var holdsveikaspítalinn
í Laugarnesi vígður með mikilli viðhöfn. Hann var gjöf
til landsstjórnarinnar frá Oddfellowreglunni í Dan-
mörku. Spítalinn var tekinn í notkun 1. október en
húsið brann síðan árið 1943.
Þennan dag árið 1903 var fyrsta kvikmyndasýningin í
Reykjavík. Tveir Norðmenn sýndu „lifandi ljósmyndir“ í
Iðnó. Meðal annars voru myndir úr dýragarði Lundúna,
úr ófriðnum í Suður-Afríku og af krýningu Játvarðs
konungs sjöunda.
Þennan dag árið 1987 stórskemmdist Ísafjarðarkirkja
af eldi, en hún varð bárujárnsklætt timbushús. Kirkjan
var vígð árið 1863.
Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Hvað er að frétta? · Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör
Á þessum degi fyrir 25 árum
Gífurleg aukning í
sælgætisinnflutningi
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Helgarveðrið
Horfur á föstudag:
Hæg vestlæg átt og víða bjartviðri, en skýjað og dálítil
súld V-lands og við norðurströndina. Hiti 10-20 stig.
Horfur á laugardag:
Suðlæg átt með rigningu og síðan skúrum, einkum
sunnan og vestanlands. Hiti 10-17 stig.
Horfur á sunnudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt. Bjartviðri SA-lands,
annars skýjað en úrkomulítið.
Horfur á mánudag:
Snýst líklega í austanátt með rigningu, fyrst S-lands.
Spurning vikunnar
Finnst þér byggðastefna
stjórnvalda vera trúverðug?
Alls svöruðu 309. – Já sögðu 19 eða 6%
– Nei sögðu 290 eða 94%
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Horfið mannlíf í Ósvör
Frá því að innflutningshöftum var aflétt af sælgæti hefur,
eins og vænta mátti, veruleg aukning átt sér stað í innflutningi
á sælgæti. Er nú svo komið, að fyrstu fimm mánuði þess árs
er innflutningur sælgætis meiri í tonnum en hann var allt árið
1979, segir m.a. í greinargerð Verslunarráðs Íslands um
framleiðslu og innflutning á sælgæti. Þá segir: Þetta ástand
verður að teljast afara óeðlilegt og getur varla varað lengi. Af
skiljanlegum ástæðum bera framleiðendur ugg í brjósti vegna
þessarar þróunar. Eru af þessum sökum þegar farnar að
heyrast háværar raddir um nýjar verndaraðgerðir.
Hlutdeild íslenskrar framleiðslu í heildarframleiðslu fyrir ís-
lenskan markað hefur yfirleitt verið á bilinu 80-90% mælt í
magni og t.d. má nefna að hlutdeildin var hin sama árið 1969
og 1979.
„Það er allt þokkalegt að
frétta af Ósvör. Ferðamenn-
irnir koma í hollum og það
hefði nú svo sem mátt vera
meiri straumur en það er ekki
yfir neinu að kvarta. Aðsóknin
er svipuð og í fyrra. Fólk virðist
mjög hrifið af því sem fyrir
augu ber enda er búið að end-
urbyggja verbúðina og gera
að henni betra aðgengi. Gest-
irnir ráða því sjálfir hvort þeir
vilji fá fræðslu um staðinn eða
fá að ráfa um af sjálfsdáðum
og berja staðinn augum í friði.
Hvort tveggja er velkomið. Ég
hef mjög gaman af því hve
mikið af barnafólki kemur
hingað og það eru þá sérstak-
lega innlendu ferðalangarnir.
Þá staldrar fólkið við dágóða
stund enda er enginn að reka
á eftir þeim
Menn eru að gera sér grein
fyrir því hvaða menningar-
verðmæti geymast hér og
möguleikana sem felast í slík-
um minjasöfnum. Það er
margt sem fólk fýsir að vita
um horfið mannlíf. Ferða-
mönnunum finnst oft mjög
merkilegt að fólk hafi lifað við
þessi kjör. Það virðist vera vit-
undarvakning í hugum manna
fyrir því sem eldra er, hvort sem
það er í Ósvör eða annað.
Tríóið Drýas er skipað
þremur tónlistarnemum úr
Listaháskóla Íslands; Ísfirð-
ingnum Herdísi Önnu Jónas-
dóttur sópransöngkonu, Þor-
björgu Daphne Hall sellóleik-
ara og Laufeyju Sigrúnu Har-
aldsdóttur píanóleikara. Það
var stofnað í vor og flytur ein-
göngu íslensk tónlist. Tríóið
hefur komið „Við ákváðum
að sækja um sumarstarf í Hinu
húsinu þegar auglýst var eftir
umsóknum því þetta yrði
spennandi tækifæri. Um 50
umsóknir bárust og aðeins 16
hópar voru valdir.
Síðan höfum við haldið tíu
tónleika á hinum og þessum
söfnum í Reykjavík eins og
Kjarvalsstöðum og Árbæjar-
safninu. Við vorum að spila
fyrir hóp sem var í listfræðslu
á vegum vinnuskólans eitt sinn
í Hafnarhúsi, að tónleikum
loknum fórum við að spjalla
við leiðbeinendur hópsins og
úr því varð að við spiluðum
fyrir hópa í listfræðslu á hverj-
um degi“, segir Herdís Anna
sem er Ísfirðingum vel kunn
og hefur margsinnis komið
fram við ýmis tækifæri í
heimabæ sínum.
Þjóðlegt nafn
fyrir þjóðlegt tríó
– Hvaðan kemur nafnið
Drýas?
„Mamma mín sem er grasa-
fræðingur stakk upp á því. Öll
fjölskyldan mín sat við kvöld-
verðarborðið og ég var að
reyna finna nafn á hópinn.
Mamma fannst nafnið viðeig-
andi því það er fyrri hlutinn af
latneska heitinu af Holtasóley
sem er þjóðarblóm Íslands.
Okkur fannst það smellpassa
þar sem við flytjum eingöngu
íslenska tónlist. En einnig
þýðir orðið Drýas skógardís-
ir“, segir Þorbjörg.
– Var það hluti af starfinu
hjá Hinu húsinu að flytja ein-
göngu íslenska tónlist?
„Nei við lögðum upp með
það sjálfar að gera það og sett-
um það í umsóknina. Hóparnir
ráða alveg sjálfir hvað þeir
ætla að gera og Hitt húsið velur
svo úr. Vandinn er sá að það
eru ekki svo mörg lög á ís-
lensku fyrir þessa samsetn-
ingu; söng, selló og píanó. Við
höfum því fengið Jónas Tóm-
asson, föður minn til að útsetja
fyrir okkur nokkur lög og
einnig Hreiðar Ingi Þorsteins-
son sem er ungt tónskáld sem
við þekkjum úr Listaskólanum
sem útvegaði okkur þrjú lög.
Einnig höfum við einfaldlega
bætt sellói við nokkur söng-
lög“, segir Herdís.
– Verður framhald á sam-
starfinu hjá ykkur eða verður
þetta einungis í eitt sumar?
„Það væri mjög gaman að
halda áfram en Herdís Anna
fer til Salzburgar sem skipti-
nemi eitt ár í haust svo það
verður ekki meira úr sam-
starfinu í bili. En það er aldrei
að vita hvernig það verður í
framtíðinni. Þetta hefur svo
sannarlega verið góð og
skemmtileg reynsla. Reyndar
hefur þetta verið mun meiri
vinna en við bjuggumst við
alls kyns skipulagning og
fleira sem fylgir starfinu en
það er eitthvað sem við mun-
um búa að alla ævi“segir Þor-
björg.
„Góð og skemmtileg reynsla“
Drýas að tónleikum loknum. Laufey Sigrún Haraldsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir og Þorbjörg Daphne Hall.
30.PM5 6.4.2017, 09:4318