Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.09.2015, Síða 4

Bæjarins besta - 10.09.2015, Síða 4
4 Fimmtudagur 10. SEPTEMBER 2015 Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715­0740 Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866­7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670­021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Ritstjórnargrein Þing og þjóð Spurning vikunnar Viltu taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi? Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Alls svöruðu 485. Já, sögðu 210 eða 43% Nei, sögðu 275 eða 57% Í þessari viku hefst haustþing Alþingis og vonandi tekst öllum sem þar sitja að vinna með hag almennings að leiðarljósi. Okkar ágæti þingmaður í Norðvesturkjördæmi Guðbjartur Hannesson tekst nú á við krabbamein og við keflinu tekur Ísfirðingurinn Ólína Þorvarðardóttir. Bæjarins besta sendir Guðbjarti batakveðjur og óskar þeim báðum góðs gengis í sínum stóru verkefnum. Ásmund- ur Einar Daðason þingflokksformaður Framsóknarflokksins og al- þingismaður Norðvesturkjördæmis hefur látið í ljós einbeittan vilja til að vinna að byggðamálum á komandi þingi. Það þykir okkur á Bæjarins besta ákaflega góð tíðindi og höfum sent honum erindi þar sem honum er boðið að útlista fyrir okkur hvaða áherslumál hann hefur í huga fyrir okkur hér á hjaranum. Hlutfall kvenna á alþingi verður um 44% á komandi þingi og hefur kynjabilið aldrei verið minna á þeim góða stað. Umræðan um flóttamenn er, merkilegt nokk, enn á dagskrá og af nágrönnum okkar í Svíþjóð er það helst í fréttum að flóttmenn þar hafa tekið upp á að „hverfa“ og er talið að almennir borgarar hafi í stórum stíl tekið heilu fjölskyldurnar upp á sína arma. Þetta er auð- vitað alls ekki samkvæmt lögum og reglum og örugglega ekki besta leiðin, en hugsanlega eina leiðin. Almenningur vill ekki sjá fleiri dáin börn á sólaströndum og tekur nú fram fyrir hendur á stjórn- völdum, hugsanlega erum við að sjá þessa margumtöluðu „gjá milli þings og þjóðar“. Í blaði vikunnar er viðtal við þá bræður Sigurð og Guðmund á Núpi, en þeir hafa boðið húsakynnin þar til móttöku flóttamanna og Ásta hótelstýra er tilbúin að hafa þar vetursetu með fjölskyldu sinni fari svo að þar fái nokkrar hraktar fjölskyldur skjól. Bæjarstjórnir Súðavíkurhrepps og Ísafjarðarbæjar hafa samhljóða ályktað um að hér sé vilji til að taka við hrjáðu fólki og nú er beðið eftir útspili ríkisstjórnarinnar. Um heiminn fer bylgja mannúðar og allt í einu er eins og almenningur segi „hingað og ekki lengra“, blinda augað hefur fengið sýn, við sjáum neyð flóttamanna. Vanir menn í túlkun á orðum Ólafs Ragnars Grímssonar hafa túlkað setningarræðu hans á Alþingi 8. september á þann veg að hann muni ekki bjóða sig aftur fram til forseta. Hvort túlkunin sé rétt eða Ólafur skipti um skoðun á svo eftir að koma í ljós. Annars var það helst í fréttum í vikunni að strákarnir okkar feta í fótspor stelpnana okkar og fara á stórmót í tuðrusparki, virkilega skemmtilegt að eiga svona hæfileikaríka einstaklinga. Gerum ekki lítið úr gildi fyrirmynda því auðvitað voru stelpurnar bæði fyrir- mynd og hvetjandi fyrir þá, það er alltaf auðveldara að fara kjölfarið en vera brautryðjandinn. BS HÚSASMIÐJAN Á ÍSAFIRÐI LEITAR AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott aðgengi að vörum sínum og starfsfólki. Það sem einkennir starfsmenn Húsasmiðjunnar eru eftirfarandi gildi: HLUTI AF BYGMA ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI SÍÐAN 1956 Viljum ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan starfsmann til sölu- og afgreiðslustarfa í verslun okkar Ísafirði. Ábyrgðarsvið • Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini • Önnur tilfallandi störf Hæfniskröfur • Reynsla af verslunarstörfun æskileg • Þekking á byggingavörum kostur • Samskiptahæfni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð Metnaður Þjónustulund Sérþekking Umsóknir berist fyrir 20. september n.k. til Elmars Guðmundssonar, rekstrarstjóra verslunarinnar elmogud@husa.is S: 693-3120 Öllum umsóknum verður svarað. Sími 590 6400 www.idan.is Námskeið fyrir byggingamenn á Ísafirði 24. september. Raki og mygla í húsum Að læra að þekkja og fyrirbyggja rakavandamál í húsnæði Á þessu námskeiði verður fjallað um raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum. Markmið þess að að kenna þátttakendum að þekkja myglu og kynna þeim ráðstafanir gegn henni. Farið verður yfir helstu galla á byggingafræðilegum lausnum og helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Farið verður lauslega í loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingahluta. Fjallað verður um byggingaraka og greiningu rakaskemmda. Fjallað verður um lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast, hvernig má finna þá og uppræta. Námsmat: 100% mæting. Kennarar: Sylgja Sigurjónsdóttir, líffræðingur CMI og CMRC vottun og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingur hjá VSÓ ráðgjöf. Tími: Fimmtudagur 24. september, kl. 10.00 - 16.00. Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði. Lengd: 10 kennslustundir. Fullt verð: 25.000 kr. Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.