Bæjarins besta - 24.09.2003, Side 16
ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk
Sævar Óskarsson annar frá hægri ásamt starfsmönnum Pólsins.
þetta. Það eina sem hefur
komið manni á óvart er að
allar pappírslegar yfirfærslur
þessu tengdar ganga á hraða
snigilsins. Þannig erum við
fyrst núna að klára þessa
pappírsvinnu.“ Aðspurður
segir Sævar Pólinn mestmegn-
is hafa starfað á norðanverðum
Vestfjörðum. Fyrirtækið sé
hins vegar stöðugt að líta í
kringum sig eftir verkefnum.
„Við höfum verið að gera
tilboð bæði í Fáskrúðsfjarðar-
og Héðinsfjarðargöng en eins
höfum við verið að skoða
verkefni hjá virkjanaaðilum.
Ennþá hafa verkefni þar ekki
fallið okkur í skaut en við
ætlum að fylgjast vel með.
Ætlunin er að reyna að vera
svolítið „aggressífir“ og sjá
hvort við náum ekki einhverj-
um verkum þarna. Við erum í
sambandi við rafverktakafyrir-
tæki fyrir austan og myndum
með þeim ansi gott teymi“,
sagði Sævar Óskarsson.
– kristinn@bb.is
breytingar nú að fullu um garð
gengnar. Sævar segir verk-
efnastöðu hafa verið góða og
er ánægður með gang rekstrar-
ins í sumar.
„Ég er þokkalega kátur með
gamla Pólsins og sér um
rekstur fasteigna hans og
Pólinn ehf. sem tók við rekstri
gamla félagsins. Sævar Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækjanna, segir þessar
Snemma sumars var greint
frá að skipta ætti rafþjónustu-
fyrirtækinu Pólnum hf. á Ísa-
firði upp í tvö fyrirtæki, eignar-
haldsfélagið Gamla kompaníð
sem starfar undir kennitölu
Prýðilegur gangur í
rekstrinum í sumar
grasið ætti þetta að liggja í
hlutarins eðli“, segir Björn.
Samningaviðræður standa
nú yfir milli Ísafjarðarbæjar
og Boltafélags Ísafjarðar um
rekstur íþróttasvæðisins.
„Gæslan hefur ekki verið mjög
góð þar sem ekki er búið að
ganga frá fyrirkomulagi rek-
strarins þó að Boltafélags-
menn hafi verið liðlegir við
að hjálpa okkur“, segir Björn.
Aðspurður segir hann nokk-
urn byrjendabrag einkenna
umgengnina um íþróttasvæð-
ið. „Eitthvað hefur verið um
að keppt sé á hjólum á hlaupa-
og stökksvæðunum sem hefur
skilið eftir sig gúmmírákir frá
dekkjunum. Að öðru leyti held
ég að þetta sé í lagi. Það tekur
dálítinn tíma að koma á réttum
umgengnisvenjum.
– kristinn@bb.is
Nýi gervigrasvöllurinn á
Ísafirði var þrifinn fyrir
skemmstu og kom þá ýmislegt
óvænt upp. Innan við tveir
mánuðir eru liðnir frá því að
völlurinn var tekinn í notkun
en þegar höfðu safnast fyrir
tyggjóklessur og drykkjarrör í
sandinum undir gervigrasinu.
Einna mest komu þó á óvart
allmargir sígarettustubbar sem
þar leyndust en bannað er með
öllu að reykja á svæðinu.
Björn Helgason, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi Ísafjarðar-
bæjar, segir þetta ekki gott
mál. „Við þurfum greinilega
að herða á umgengnisreglun-
um, tyggjó fer til dæmis ekki
vel með völlinn. Á þessu þarf
að skerpa hjá notendum. Það
eru tvö skilti á íþróttasvæðinu
sem banna reykingar en þó að
þau séu ekki akkúrat við gervi- Nýi gervigrasvöllurinn á Torfnesi á Ísafirði.
Snjórinn er kominn
Norðanáhlaupið sem reið
yfir Vestfirði um síðustu helgi
kom mörgum í opna skjöldu
enda var síðasti vetur í raun-
inni enginn vetur. Fjallvegir
urðu ófærir og víða var leiðin-
leg færð jafnvel á láglendi. Á
Vestfjörðum urðu verulegar
truflanir bæði á rafmagni og á
útsendingum útvarps og sjón-
varps eins og fram kemur
annars staðar í blaðinu.
Ekki er skyndileg vetrar-
koma þó öllum til ama. Börnin
fagna snjónum eins og börn
hafa gert frá örófi alda enda
fylgja honum nýir leikir og ný
viðfangsefni. Þar er ekki verið
að hafa áhyggjur af vetrar-
dekkjum eða útvarpsleysi.
Jafnvel er tímabundið raf-
magnsleysi kærkomin og
spennandi tilbreyting og þá
auðvitað helst þegar myrkur
er úti.
Myndin að ofan var tekin
á mánudagsmorguninn á
leiksvæðinu við Grunnskól-
ann á Ísafirði þar sem heimur-
inn hafði skipt mjög um svip
frá því á föstudag. Renni-
brautin í leikjakastalanum
var óspart notuð ásamt því
sem mannskapurinn veltist í
snjónum og hnoðaði kúlur.
– hlynur@bb.is
Kærkomin tilbreyting
fyrir yngsta fólkið
Börnin leika sér á lóð Grunnskólans á Ísafirði.
Tyggjóklessur og sígarettu-
stubbar og fleira ósæmilegt
Nýi gervigrasvöllurinn á Torfnesi á Ísafirði hreinsaður
Skiptingu Pólsins á Ísafirði í tvö fyrirtæki lokið
38.PM5 18.4.2017, 11:4816