Bæjarins besta - 06.03.2002, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2002 11
Á fundi bæjarráðs Ísafjarð-
arbæjar 25. febrúar sl. voru
lögð fram drög að samningi
milli Ísafjarðarbæjar og
Skíðafélags Ísfirðinga um
rekstur þjónustuhúss göngu-
manna á Miðbrún á Selja-
landsdal. Jafnframt voru lögð
fram drög að rekstrarsamn-
ingi milli Ísafjarðarbæjar og
foreldrafélags skíðabarna um
rekstur skíðaskála á efri hæð
og risi skíðaskálabyggingar
á skíðasvæðinu í Tungudal.
Samkvæmt samningsdrög-
unum felur Ísafjarðarbær
Skíðafélagi Ísfirðinga um-
ráðarétt yfir þjónustuhúsinu
á Miðbrún á Seljalandsdal og
mun göngunefnd félagsins
hafa full umráð yfir því fyrir
hönd félagsins. Ísafjarðarbær
mun sjá um greiðslur opin-
berra gjalda, trygginga, raf-
magns og hita á tímabilinu 1.
október til 31. maí ár hvert,
auk þess sem sveitarfélagið
greiðir árlega efniskostnað til
viðhalds hússins að upphæð
kr. 75.000 miðað við núver-
andi vísitölu.
Göngunefndin tekur hins
vegar að sér alla vinnu við
breytingar og lagfæringu á
húsinu við flutning og stand-
setningu þess á Miðbrún
ásamt venjulegu viðhaldi, án
þess að greiðsla komi fyrir.
Einnig mun nefndin taka að
sér að byggja tímatökuturn of-
an á húsið ásamt væntanlegri
stækkun og sjá til þess að
umhverfi hússins verði ávallt
til fyrirmyndar. Þá skal göngu-
nefndin sjá um sölu á göngu-
kortum og renna tekjur af
þeim til nefndarinnar en Ísa-
fjarðarbær fær yfirlit yfir söl-
una. Samkvæmt drögum þess-
um er gert ráð fyrir að samn-
ingurinn komi til endurskoð-
unar í nóvember 2004.
Í samningsdrögum Ísafjarð-
arbæjar og foreldrafélags
skíðabarna kemur fram að Ísa-
fjarðarbær tekur að sér að
greiða fasteignagjöld, hitunar-
kostnað og rafmagnskostnað
allt árið. Þá mun sveitarfélagið
greiða félaginu kr. 300.000 á
ári hverju til viðhalds á öllum
lausafjármunum og innrétt-
ingum í skíðaskálanum. For-
eldrafélagið greiðir hins vegar
tryggingar, viðhald, endur-
bætur og annan kostnað er
greiða þarf vegna skálans.
Þá skuldbindur foreldrafé-
lagið sig til að hafa skíðaskál-
ann opinn frá 1. desember ár
hvert til 1. maí næsta árs þegar
lyftur eru opnar. Ísafjarðarbær
mun sjá um að ráða rekstrar-
aðila, sem samþykktur er af
foreldrafélagi skíðabarna, til
að sjá um greiðasölu og
miðasölu fyrir skíðasvæðið en
að öðru leyti semur foreldra-
félagið við viðkomandi rekstr-
araðila um rekstur hússins.
Rekstrarsamningur Ísafjarð-
arbæjar og foreldrafélagsins
er ótímabundinn en uppsegj-
anlegur með gagnkvæmum
sex mánaða fyrirvara.
Hefur bæjarráð lagt til við
bæjarstjórn að ofangreindir
samningar verði samþykktir
og vísar þeim jafnframt til
kynningar í fræðslunefnd.
Samið um rekstur skíðaskála
Skíðasvæðin í Tungudal og á Seljalandsdal
Kristján Rafn Guðmunds-
son varð fyrstur Ísfirðinganna
í mark í Vasagöngunni sem
haldin var í Svíþjóð á sunnu-
dag. Hann rann skeiðið á ríf-
lega 5 klst. og 35 mín. og varð
í 1276. sæti. Elías Sveinsson
gekk á rúmlega 8 tímum og 4
mínútum og varð nr. 6646, og
Gunnar Pétursson, sem nú
fagnar því að 50 ár eru liðin
síðan hann tók fyrst þátt í
þessari keppni, kom í mark á
rúmlega tíu og hálfum tíma
og varð nr. 11507. Fjórði Ís-
firðingurinn, Guðmundur
Rafn Kristjánsson þurfti hins
vegar að hætta keppni.
Sigurvegari varð heima-
maðurinn Daniel Tynell, en
hann gekk á rétt tæpum fjórum
klukkustundum. Andrus Verp-
aluu frá Eistlandi, nýbakaður
gull- og silfurhafi af Ólympíu-
leikunum varð að gera sér 8.
sætið að góðu og sigurvegar-
inn í Vasagöngu síðasta árs,
Henrik Eriksson varð í 9. sæti.
Um 25 Íslendingar voru skráð-
ir til leiks, þar af fjórir Ísfirð-
ingar.
Það var jaxlinn Haukur Ei-
ríksson sem kom fyrstur Ís-
lendinga í mark, gekk á 5 tím-
um og tveimur mínútum og
varð í 515. sæti.
Kristján Rafn varð fyrst-
ur Ísfirðinganna í mark
Vasagangan í Svíþjóð
Margt góðra gesta á
opnu húsi VoiceEra
VoiceEra ehf. fagnaði
eins árs starfsafmæli sl.
föstudag og í tilefni þess
var opið hús hjá höfuð-
stöðvum fyrirtækisins að
Lambhaga í Bolungarvík
frá klukkan 16 til 19. Þar
gafst bæjarbúum og
öðrum gestum tækifæri til
þess að kynna sér starf-
semina og hugbúnað-
arlausnir fyrirtækisins
ásamt því sem boðið var
upp á léttar veitingar.
Formleg dagskrá hófst
klukkan 17, en þá flutti
Hallur Hallsson, forstjóri
VoiceEra, stutt ávarp þar
sem hann greindi frá því
helsta sem fyrirtækið
hefur fengist við á sínu
fyrsta starfsári og hvað
væri framundan hjá því. Á
eftir honum hélt Kristinn
H. Gunnarsson, alþingis-
maður, stutta tölu um
mikilvægi þess að há-
tæknifyrirtæki eins og
VoiceEra kjósi að starfa í
Bolungarvík og nauðsyn
þess að efla nýsköpun í
atvinnulífi á Vestfjörðum.
Á skrifstofum fyrir-
tækisins voru helstu
hugbúnaðarlausnir
keyrðar, m.a. íslenskur
raddþekkir og talgervill,
og kynntu starfsmenn
lausnirnar og svöruðu
spurningum. Þá var einnig
íbúð búin búnaði sem
gerir kleift að nota radd-
skipanir við stjórnun
raftækja til sýnis, en það
er verkefni sem fyrirtækið
vinnur nú að í samstarfi
við Öryrkjabandalag
Íslands.
VoiceEra hefur á sínu
fyrsta starfsári náð að
festa sig vel í sessi og
skapað sér afgerandi
forskot í hagnýtingu
raddtækni hér á landi en
upphaflega var markmið
fyrirtækisins fyrst og
fremst að útvega íslenska
markaðinum tungu-
tæknivörur, þ.e. íslenskan
raddþekki og íslenska
texta í talvél. Fyrirtækið
hefur síðan gengið til
samstarfs við önnur
fyrirtæki og beint spjótum
sínum að íslenskum
samtökum sem geta
hagnast á gagnvirku
upplýsingarkerfi byggðu á
tungutækninni. Fyrirtækið
býður nú m.a. upp á
raddstýrt notendaviðmót í
gegnum símkerfi með
eðlilegum íslenskum
setningum og upplýs-
ingarkerfi.
Starfsfólk VoiceEra í afmælisfagnaðinum.
Ólafur Kristjánsson bæjastjóri í Bolungarvík og Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður
voru á meðal gesta í afmælinu.