Bæjarins besta - 08.08.2002, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002
LEIÐARI
Kynslóðaskipti
Umboðs-
aðilar BB
Eftirtaldir einstaklingar sjá um
sölu og dreifingu á BB á þétt-
býlisstöðum utan Ísafjarðar:
Bolungarvík: Nikólína Þor-
valdsdóttir, Hjallastræti 38,
sími 456 7441. Súðavík: Linda
Rut Ásgeirsdóttir, Arnarflöt 9,
sími 586 2192. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson, Aðal-
götu 20, sími 891 7738. Flat-
eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt-
ir, Brimnesvegi 12a, sími 456
7752. Þingeyri: Selma Rut
Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími
456 8269.
Frá útgefendum:
Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892
5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Blaðamenn: Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is, Hálfdán Bjarki
Hálfdánsson, sími 863 7655, netfang: blm@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is •
Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti
Það er mikið í húfi þessa dagana hjá kaupahéðnum. Heilsíðu auglýsingar í dag-
blöðunum, dag eftir dag, í kapphlaupinu um Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis.
Svo langt ganga átökin um drottnunina yfir ,,peningunum sem enginn á“,
að mikils-metnir menn innan forustuflokks ríkisstjórnarinnar eru teknir að
spyrja hvort það sé virkilega stefna flokksins að láta annan ríkisbankann
hrifsa SPRON til sín, meðan hinn húki álengdar og bíði átekta, hver verði
endan-leg örlög bráðarinnar. En sá hinn sami er reyndar farinn að gylla öryggið, sem
fólgið sé í hinum stóra og væntumþykjandi faðmi sínum, fyrir öðrum sparisjóðum.
Eitt er víst: Það yrði mikið áfall fyrir landsbyggðina að missa sparisjóðina.
,,Þingmenn hljóta að virða vilja almennings þó hávær minnihluti sé á móti. Ann-
ars þarf bara nýja kynslóð á Alþingi til að þetta nái fram að ganga. Líkurnar á að
frumvarp mitt verði samþykkt hljóta að aukast með hverjum nýjum kosningum,“
segir Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður, sem hyggst flytja frumvarp sitt um heim-
ild til sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum, í þriðja sinn á komandi þingi.
Hvað sem segja má um hugsjón alþingismannsins er sérstök ástæða til að staldra
við þau orð hans, að ,,þingmenn (hljóti) að virða vilja almennings.“ Yfirlýsingar
þingmanna í þessa átt liggja ekki á glámbekk. Þvert á móti. Nefna má kvótamálið,
þar sem Alþingi hefur hvað eftir annað fótum troðið vilja meirihluta þjóðarinnar.
Enginn þingmanna hefur orðað það svo, að til að aflétta gjafakvótanum og hefja
leiðréttingu á mestu eignatilfærslu og arðráni Íslandssögunnar þurfi ,,bara
(nýja) kynslóð á Alþingi.“ Ábending alþingismannsins, um að skipta um
þing-menn, er einkar athyglisverð, og sérlega vel tímasett orðsending til
kjósenda, þar sem kosningar eru á næsta leyti.
Séra Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur og fyrrv. alþingismaður, lét að sér kveða
í stólræðu, fyrir skömmu, svo eftir hefur verið tekið: Þar komst hann m.a. svo að
orði: ,,Utan frá séð eru hin göfugu markmið ekki mjög áberandi í stjórn-un og
ráðstjórn peningamanna á þessu sumri. Þeirra sem fara með stóra hluti fjár-magns í
okkar landi.“ Og hann bætti við: ,,Hver er fyrst og fremst að hugsa um al-
mannahagsmuni? Hvar er vitundin um að öll séum við á sama báti, hvar er samvit-
undin – öðru nafni samviskan?“ Undir lok hinnar athyglisverðu stólræðu sagði séra
Hjálmar: ,,Markmiðið má aldrei verða það eitt að ná til sín sem mestu, til að sýnast
stór kall og dugandi í baráttunni um brauðið og bankana – matvælamarkaðinn og
peningamarkaðinn.“ Ef til vill er ekki vanþörf nýrrar kynslóðar á fleiri sviðum en
innan veggja Alþingis! s.h.
Ísafjarðarbær
Heildartekjur einstaklinga
í Ísafjarðarbæ voru á síðasta
ári samkvæmt álagningar-
grundvelli rétt liðlega sex
milljarðar króna (kr.
6.033.931.858). Framteljend-
ur voru 3.013 og voru meðal-
tekjur þeirra því um 166.900
krónur á mánuði.
Álagt tekjuútsvar á þessa
framteljendur var krónur
766.309.352 eða um kr.
254.300 að meðaltali á mann
á síðasta ári.
Meðaltekj-
ur um 167
þúsund
Hrafnseyri
Sumarskák-
mót á helginni
Haldið verður sumarskák-
mót á Hrafnseyri við Arnar-
fjörð á sunnudaginn, 11.
ágúst, á vegum Hrafnseyrar-
nefndar og Vestfirska forlags-
ins.
Slíkt mót, kennt við Jón Sig-
urðsson, var haldið í fyrsta
sinn í fyrrasumar. Teflt verður
eftir Monradkerfi. Öllum er
heimil þátttaka, ungum sem
öldnum, konum sem körlum.
Verðlaun verða veitt þremur
efstu mönnum. Teflt verður á
útipallinum við Burstabæ
Jóns Sigurðssonar ef veður
leyfir.
Þátttakendur þurfa að hafa
með sér töfl og skákklukkur.
Þátttökutilkynningar berist til
Sigurðar G. Daníelssonar í
síma 456 8337 eftir kl. 20 á
kvöldin og veitir hann einnig
nánari upplýsingar.
Golfvöllurinn í Tungudal
Tvö mót um helgina
Tvö golfmót verða á Tungu-
dalsvelli við Ísafjörð um helg-
ina. Á laugardag verður opið
sumarmót Bylgjunnar, Texas
Scramble, og til mikils að
vinna.
Fyrstu verðlaun eru ferð til
Portúgals með Terra Nova Sól
en önnur verðlaun eru Play
Station 2 leikjatölva. Glæsi-
legur Hyundai Terracan er í
boði fyrir holu í höggi. Einnig
eru ferðagrill frá CharBroil,
áskriftir að Stöð 2 og margt
fleira. Niðri í miðbæ verður
svo skemmtun á sviði þar sem
fram koma Írafár, Venni töfra-
maður, trúðar o.fl. Sprell-leik-
tæki fyrir börnin og Bylgjan í
beinni útsendingu.
Hægt er að skrá sig í mótið
í golf.is eða í golfskálanum í
síma 456 5081 og með tölvu-
pósti á gi@snerpa.is. Á
sunnudaginn verður svo Ís-
landssögumótið á Tungudals-
velli og hefst kl. 10. Leiknar
verða 18 holur með og án for-
gjafar. Skráning í Golfskálan-
um í Tungudal.
Tölvuþjónustan Snerpa
Þráðlaust internet-
samband við Flateyri
Fyrir helgina var gengið
frá uppsetningu á fastlínu-
sambandi Snerpu til Flateyr-
ar, sem er fimmti staðurinn
utan Ísafjarðar þar sem
Snerpa setur upp hnútpunkt.
Fyrir voru slíkar tengingar í
Bolungarvík, á Suðureyri, í
Súðavík og á Hólmavík en
næst kemur röðin að Súða-
vík og Þingeyri. Nú þegar
hefur fyrsti viðskiptavinur-
inn á Flateyri verið tengdur
við hnútpunktinn en síðar í
mánuðinum verður settur upp
örbylgjubúnaður fyrir þráð-
laust internet sem þjóna mun
íbúum Flateyrar með sítengt
internet.
Að sögn Snerpumanna er
þráðlaust net Snerpu fyllilega
sambærilegur kostur við
ADSL. Mánaðargjald er svip-
að en stofnkostnaður getur
orðið hærri þar sem notendur
þurfa í sumum tilfellum að
koma fyrir loftnetsgreiðu á
húsþaki fyrir móttöku.
Töluverð fjárfesting fylg-
ir hverjum hnútpunkti og er
það ástæða þess að upp-
bygging á þessu sviði hefur
ekki verið mjög hröð.
Snerpumenn reikna með því
að í haust eða vetur fái Súð-
víkingar aðgang að ör-
bylgjusamböndum. Sömu-
leiðis er á döfinni að koma
upp hnútpunkti á Þingeyri.
Stórkostlegur árangur HSV á unglingalandsmóti UMFÍ í Stykkishólmi
Þór Sveinsson vann sex
gull í sundi og eitt í fótbolta
Fulltrúar Héraðssambands
Vestfirðinga á unglingalands-
móti Ungmennafélags Ís-
lands, sem fram fór í Stykkis-
hólmi um helgina, sneru það-
an klyfaðir verðlaunapening-
um og bikurum. Voru ung-
mennin sér og byggðarlögum
sínum á allan hátt til sóma og
hlutu auk þess verðlaunasæti
í fjórum íþróttagreinum af
þeim sex sem HSV átti kepp-
endur í. Knattspyrnulið 15-
16 ára drengja gerði sér lítið
fyrir og sigraði í knattspyrnu-
keppni mótsins í sínum ald-
ursflokki. Jafnöldrur þeirra
náðu viðlíka árangri og urðu í
öðru sæti eftir harða baráttu.
Athygli vekur að einn drengj-
anna úr knattspyrnuliðinu, Þór
Sveinsson, var einnig sigur-
sæll á öðrum vettvangi, þar
sem ásamt því að spila til sig-
urs með knattspyrnuliðinu
vann hann til sex gullverð-
launa í sundi.
Vestfirskt sundfólk sýndi
annars góða frammistöðu á
mótinu líkt og á öðrum mótum
þar sem það hefur keppt und-
anfarið. Hin 14 ára gamla
Kristjana Pálsdóttir vann til
þrennra silfurverðlauna og
einna bronsverðlauna, Hanni-
bal Hafberg, 11 ára, fékk fjög-
ur gull, eitt silfur og eitt brons,
Gísli Kristjánsson, 14 ára,
fékk eitt gull, þrjú silfur og
eitt brons og Páll Janus Þórð-
arson, 15 ára, hlaut gull-,
silfur- og bronsverðlaun.
Golfarar innan vébanda
HSV þóttu standa sig með
ágætum í Stykkishólmi. Best-
ur var árangur Sigurðar Grét-
arssonar sem varð í 1. sæti
13-14 ára drengja án forgjafar,
en Gunnlaugur Jónasson sigr-
aði í riðli 15-16 ára drengja
með forgjöf og varð í öðru
sæti án forgjafar. Körfuknatt-
leiksfólk HSV lét einnig finna
fyrir sér á mótinu. Lið 13-14
ára drengja varð þar í öðru
sæti og jafnöldrur þeirra hlutu
það þriðja í sínum riðli. Er
hinu unga íþróttafólki hér með
óskað til hamingju með þenn-
an stórkostlega árangur.
Knattspyrnulið 15-16 ára drengja frá HSV gerði sér lítið fyrir og sigraði í knattspyrnukeppni
mótsins. Sundkappinn Þór Sveinsson (sem fékk líka sex gull í sundi) er fyrir miðju á mynd-
inni. Ljósmynd: Guðbjartur Ásgeirsson.