Bæjarins besta - 08.08.2002, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 5
smáar
Hlíðarvegspúkar! Nú er komið
að því! Hið árlega Hlíðarvegs-
púkapartý verður haldið laugar-
daginn 10. ágúst kl. 17. Gleym-
ið ekki góðgætinu á grillið og
góða skapinu. Verð kr. 1.000
fyrir fullorðna. Hlíðarvegspúk-
ar og nágrannar eru velkomnir.
Sjáumst hress og kát! Nefndin.
Til sölu er lítil uppþvottavél til
að hafa ofan á bekk, eins árs
gömul. Uppl. í síma 456 5789.
Óska eftir að kaupa Nintendo
eða Sega leikjatölvu með leikj-
um. Uppl. í síma 840 4010.
Íbúar á Urðvegi! Munið götu-
grillið á laugardaginn. Mætum
hress kl. 17 með borð og stóla
og mat á grillið. Leikir, skemmt-
un, tónlist, flugeldasýning og
fleira. Nefndin (Ingi Þór).
Vegna ofnæmis á heimilinu
verðum við að gefa hundinn
okkar og við vonum að einhver
geti tekið hann að sér. Hann er
hlíðinn og auðvitað heimilisvan-
ur. Hann er að skríða í níunda
mánuðinn í aldri og er blend-
ingur af BorderColly + íslensk-
ur. Uppl. í símum 865 1587,
849 0120 og 846 2710.
Hjartagangan 2002 á Ísafirði
fer fram laugardaginn 10. ágúst
kl. 14. Gengið verður frá sjúkra-
húsinu. Stjórnin.
Hjartagangan 2002 í Bolungar-
vík fer fram laugardaginn 10.
ágúst kl. 14. Gengið verður frá
sundlauginni. Stjórnin.
Óska eftir 2ja herb. íbúð til
leigu, helst á eyrinni. Uppl. í
síma 690 2250.
Til sölu eða leigu er íbúð að
Austurvegi 12. Upplýsingar í
síma 456 4181.
Óska eftir slöngubát og 4-10
hestafla utanborðsmótor fyrir
lítinn pening. Upplýsingar í síma
869 4845.
Til leigu er 3ja herb. íbúð að
Urðarvegi 49, kjallara. Uppl. í
síma 456 3547 og 895 0339.
Til sölu er Zetor traktor, 4x4,
árg. 1999 með ámoksturstækj-
um ásamt flatvagni. Uppl. í s.
892 3652 og 456 7358.
Vantar tvær notaðar útihurðir
með karmi. Uppl. í síma 892
3652 og 456 7358.
Til sölu er 24m² sumarbústaður
í Dagverðardal, utan snjóflóða-
hættusvæðis. Húsgögn fylgja.
Verð kr. 500 þús. Upplýsingar
í síma 456 3663 eftir kl. 19.
Sjóngleraugu töpuðust á brenn-
unni í Tunguskógi. Finnandi
vinsaml. hringi í s. 899 0743.
Vantar sérbýli á Ísafirði á leigu
í gamla bænum. Upplýsingar í
síma 849 0113.
Bæjaryfirvöldum í Ísafjarð-
arbæ barst fyrir nokkru bréf
frá eigendum húss á Flateyri,
búsettum í Noregi, þar sem
þess var krafist að sveitarfé-
lagið keypti húsið á helming
brunabótamats eða rétt tæpar
átta milljónir króna. Bréfið var
lagt fram á fundi bæjarráðs
sem hafnaði erindinu. Í bréf-
inu er Ísafjarðarbær ásakaður
um að hafa eyðilagt fasteigna-
verð á Flateyri með því að
leigja út sumarbústaði allt árið
um kring og selja hús á snjó-
flóðahættusvæði á lágu verði.
Í bréfinu segir meðal annars
um útleigu bæjarins á sumar-
bústöðum: „Þessi útleiga
ykkar hefur eyðilagt sam-
keppnisstöðu okkar um út-
leigu á okkar húsi. Fólk hefur
frekar leigt ódýrt sumarhús
en eitt raðhús, þannig að við
höfum þurft að leigja það
undir kostnaðarverði í 4 og ½
ár. Við viljum líka benda á að
húsin sem Ofanflóðasjóður
keypti, hefur Ísafjarðarbær
verið að selja langt undir sölu-
verðmæti húsanna, þannig að
það vill enginn kaupa á eðli-
legu verði.“
Í niðurlagi bréfsins segir:
„Við gefum ykkur þrjár vikur
frá dagsetningu þessa bréfs
[19.7.2002] til að svara þessu,
ef við fáum ekki svar innan
þess tíma, verður málið sent í
félagsmálaráðuneytið.“
Eigendur íbúðarhúss á Flateyri rita bæjaryfirvöldum bréf
Segja bæinn hafa eyðilagt fasteignaverð
Einar Garðar Hjaltason, fyrrum forseti bæjarstjórnar á Ísafirði
Sótti um sveitarstjórastarf í Súða-
vík en var ráðinn á Stöðvarfirði
Einar Garðar Hjaltason,
sem lengi var búsettur á Ísa-
firði, hefur verið ráðinn sveit-
arstjóri Stöðvarhrepps á
Stöðvarfirði eystra. Einar
starfrækti fiskvinnsluna Sund
ehf. á Ísafirði um árabil og
hlaut eldskírn sína í sveitar-
stjórnarmálum þegar hann var
bæjarfulltrúi og forseti bæjar-
stjórnar Ísafjarðarkaupstaðar
fyrir um áratug. Þá var mikill
átakatími í bæjarmálum Ís-
firðinga, ólíkt því sem verið
hefur síðustu árin. Einar Garð-
ar sótti nýlega um starf sveit-
arstjóra Súðavíkurhrepps en
var ekki ráðinn. Honum kom
því nokkuð á óvart þegar ráðn-
ingarstofa hafði samband við
hann vegna starfs sveitarstjóra
á Stöðvarfirði. „Ég sótti um í
Súðavík en lenti á Stöðvar-
firði. Þetta er dæmigert fyrir
mig. Oftast fer allt á annan
veg hjá mér en ég ætlaði í
upphafi. Niðurstaðan er þó
eins ánægjuleg fyrir því“, seg-
ir Einar Garðar, „og satt best
að segja óska ég Ómari ný-
ráðnum sveitarstjóra í Súða-
vík gæfu og velfarnaðar.“
Einar Garðar segist hafa
sóst eftir sveitarstjórastöðu
Súðavíkurhrepps vegna þess
að hann hafi verið farið að
langa til þess að breyta um
umhverfi og atvinnu, en hann
hefur verið búsettur á Akur-
eyri um nokkurra ára skeið.
„Mig langaði í sveitina að
fá mér ábrystir og lunda úr
Vigur. Þegar ég flutti norður
var ég að hasla mér völl í
innflutningi á hráefni til
rækjuvinnslu og þorski til
fiskvinnslu og því starfi var
betur sinnt frá Akureyri. Nú
er hins vegar umhverfið að
breytast í rækjubransanum og
ekki mikið pláss fyrir smá-
fugla eins og mig þar og því
heillaði sveitarstjórastarfið.
Mig var farið að langa vestur
og því fór svo að ég sótti um í
Súðavík“, segir Einar Garðar
og bætir því við að hann skilji
sáttur við rækjubransann.
„Það er skylda hvers Ísfirðings
að eyða einhverjum tíma í
rækjunni og það er af hinu
góða ef maður kemst óskadd-
aður gegnum það. Rækjan
hefur farið illa með margan
góðan drenginn.“
Það er Einari Garðari til-
Einar Garðar Hjaltason.
hlökkunarefni að takast á við
nýtt starf á Stöðvarfirði. „Þetta
er ögrandi verkefni sem verð-
ur gaman að spreyta sig á. Ég
hef heimsótt Stöðvarfjörð í
nokkur skipti og sé ekki betur
að þetta sé vænsti bær sem
jafnast fyllilega á við sam-
bærileg þorp á Vestfjörðum.“
Aðspurður hvernig honum
líki að vera kominn aftur í
pólitík eftir langt hlé segist
Einar vissulega til í þann slag.
„Það hafa verið að hringja í
mig menn og ýmist óska mér
til hamingju eða votta mér
samúð sína að vera kominn
aftur í pólitíkina. Ég fann ekki
fyrir neinum fráhvarfsein-
kennum þegar ég hætti í póli-
tíkinni á sínum tíma. Hins
vegar kenndi ég rómantíkur
þegar tekið var að auglýsa
sveitarstjórastöðurnar í sumar
og mig langaði að vinna svona
vinnu. Starfið er fjölbreyti-
legra en það var á sínum tíma
í kjölfar þess að grunnskólar-
nir eru komnir inn líka.“
Einar Garðar segir að á
vinnutengdum ferðalögum
um allan heim hafi hann gert
sér grein fyrir því hversu fram-
arlega Íslendingar standa í
sveitarstjórnarmálum. „Til
dæmis hef ég bara á þessu ári
verið í Afríku í tvo mánuði og
heimsótt Austur-Evrópu og
séð nokkuð glöggt hvað menn
eiga þar langt í land með ýmis
mál er varða sveitarstjórnir.
Kerfi sveitarstjórna hér á landi
er fastmótað og byggt á mjög
traustum grunni en jafnframt
er stjórnkerfið opið og lýðræð-
islegt. Hrifning mín á íslensk-
um sveitarstjórnarmálum
jókst eftir því sem ég ferðaðist
víðar og ég varð stoltur af því
hvernig við rekum þetta hér.“
Einar Garðar byrjar störf í
þessari viku. Hann segir sitt
fyrsta verk þar verða að dusta
rykið af reiðhjólinu sínu.
Einn starfsmaður eftir hjá VoiceEra og sá er launalaus
Starfsfólkið hefur ekki enn fengið launin
að minnka við okkur enda
minni peningur í rekstrinum
nú en áður. Sem stendur er ég
eini starfsmaður VoiceEra og
vinn launalaust í þokkabót en
Hallur Hallsson er enn í Kan-
ada ásamt fjölskyldu sinni.
Við höfum aflað okkur forrit-
ara hér í Reykjavík sem eru
reiðubúnir að vinna fyrir hlut
í fyrirtækinu og búumst því
við að forritunarvinna geti
hafist að nýju fljótlega eftir
verslunarmannahelgina“,
sagði Porter.
Aðspurður hvenær fyrrum
starfsfólk VoiceEra geti vænst
launagreiðslna fyrir vinnu
sína í maímánuði segir Porter
að hann geti ekki sagt til um
það að svo komnu máli. „Ég
vona þó að það verði fyrr en
seinna og helst í þessum mán-
uði. Það veltur allt á því hvern-
ig okkur gengur að selja eigur
fyrirtækisins. Við þurftum að
greiða skatta og lífeyrisgjöld
nýlega sem voru meira aðkall-
andi en launagreiðslurnar og
því urðu þær að sitja á hakan-
um í bili. Það var leiðinlegt að
fresta launagreiðslunum en
nauðsynlegt svo að VoiceEra
fengi starfað áfram“, sagði
Cameron Porter, stjórnarfor-
maður VoiceEra.
Fyrrverandi starfsmenn há-
tæknifyrirtækisins VoiceEra í
Bolungarvík hafa enn ekki
fengið greidd laun fyrir maí-
mánuð. Öllu starfsfólki Voice-
Era var sem kunnugt er sagt
upp frá og með mánaðamót-
um júní-júlí. Í viðtali er bb.is
átti á þeim tíma við Cameron
Porter, stjórnarformann Voice-
Era, sagði hann að stefnt væri
að því að starfsfólkið fengi
greitt innan 30 daga og að
verið væri að selja eignir í
eigu fyrirtækisins til þess að
fjármagna launagreiðslurnar.
Porter sagði þá m.a. að „pen-
ingurinn sem við greiðum
starfsfólkinu er sá eini sem
mun fara úr rekstrinum á næst-
unni“ og tók fram að markmið
fyrirtækisins væru enn þau
sömu og í upphafi: Að byggja
upp öflugt hátæknifyrirtæki í
Bolungarvík.
Þegar blaðið náði tali af
Porter í síðustu viku var hann
að leggja síðustu hönd á flutn-
ing VoiceEra úr starfsstöð fyr-
irtækisins í Reykjavík í minna
húsnæði þar í borg. „Við erum
Veggirnir við olíutankana á hafnarsvæðinu á Ísafirði hafa aldrei þótt sérstök bæjarprýði en nú hefur orðið þar breyting
á. Vinnuskólakrakkarnir í Deild 21 tóku sér fyrir hendur að hreinsa veggina og skrapa og síðan voru þeir skreyttir lit-
ríkum og skemmtilegum myndum. Bandaríska listakonan Holly Hughes hafði umsjón með verkinu. Meðal myndefna
eru víkingaskip og nautið, sem er ein af landvættunum fjórum og verndari Vestfjarða. Olíufélagið Skeljungur lagði til
málninguna í þetta verkefni.
Sæmilega fiskaðist í júlí
hjá bátum sem gera út frá
Suðureyri. Að vísu voru
gæftir frekar lélegar en vel
veiddist þegar gaf á sjó.
Alls komu á land rúm 570
tonn í júlí en í júní komu
775 tonn á land, enda var
veður með eindæmum
gott snemma sumars.
Handfærabátar skiluðu
um 460 tonnum á land í
júlí og var Unnur þeirra
hæst með rúm 28 tonn í
10 löndunum. Línubátar
skiluðu 110 tonnum og
var Hrönn langaflahæsti
báturinn með rúm 62 tonn.
Suðureyri
Sæmileg-
ur afli hjá
bátum í
júlímánuði