Blik - 01.12.1941, Page 7

Blik - 01.12.1941, Page 7
B L I K ' 21 menntun sína, svo að þær geti fremur orðið dugandi og nýtar konur í þjóðfélaginu. Við lærum hér matreiðslu, sauma vefnað og yfirleitt allt, sem að hússtjórn lýtur. Auk þess lærum við heilsufræði, næringarefnafræði, uppeldisfræði, íslenzku og leikfimi. Á kvöldin sitjum við allar við handavinnu og hlustum á útvarp- ið. Stundum eru lesnar upp sög- ur, eða sungið og spilað, og er þá oft glatt á hjalla. Þetta minnir á kvöldvökurnar í gamla daga, þeg- ar allt heimilisfólkið sat við vinnu sína og einn eða fleiri heimilis- mannanna skemmtu hinum. Það hefir mikið færzt í vöxt nú hin síðari ár, að fólk leitaði skemmtana utan heimilis síns og því finnist það yfirleitt ekki geta skemmt sér heima eða fundið á- nægju þar. Þetta er vitleysa. Fólk getur vel skemmt sér heima, ef það aðeins vill. Það er svo ótal- margt, sem hægt er að iðka sér tií skemmtunar og fróðleiks á heimili sínu, en það yrði of langt niá að fara út í það hér. Skólinn hér er eitt stórt heimili, þar sem hver einstckur leggur sig fram til þess að gera allt vist- legt ogsskem'mtilegt. Kostnaðurinn við dvölina í svona skója er auðvitað nokkur, og ekki eru það allir, sem geta kostað sig í þá. Með góðum' vilja geta menn þó oft gert stórvirki auralitlir, og margar stúlkur gætu sparað það mikið við sig, að þær eignist á tiltölulega stuttum tíma þá fjárhæð, sem til þess þarf að stunda nám í þessum skólum. Við viljum því hvetja allar ung- ar stúlkur, sem eiga þess kost, að fara í húsmæðraskóla, því að þær munu vissulega aldrei iðrast bess. Með beztu kveðjum. Magnea Hannesdóttir. Gunnþóra Kristmundsd. Sigurína Friðriksdóttir. Við þökkum þessum stúlkvm okkar innilega fyrir bréfiðog ósk- um þtim blessunar í námi og starfi. Við vonum, að bréfið verði öðrum ungum stúlkum til hvatning ar og húsm^ðraskólamáli Eyjanna til nokkurs framdráttar. Ég vil geta þess persónulega, að mér er ánægja að því að geta greitt götu ungra og efnilegra stúlkna hér að húsmæðraskólunum í svejtum landsins. Etn stúlka héð- ar. stunda nú nám í Hallormsstaða skóla og getur sér góðan orðstír, eftir því sem frézt hefir. Það er vissulega gleðilegt. Þ. Þ. V.

x

Blik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.