Bæjarins besta - 22.01.1997, Blaðsíða 1
Blaðsíða 12Blaðsíða 9
Stórsigur KFÍ gegn Breiðablik
Bæjarins besta
Miðvikudagur 22. janúar 1997 3. tbl. 14. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
Fyrrum framkvæmdastjóri Júpiters hf.
Ákærður fyrir 22,7 millj-
óna króna skattalagabrot
Ríkissaksóknari hefur höfð-
að opinbert mál fyrir héraðs-
dómi Vestfjarða á hendur fyrr-
um framkvæmdastjóra Júpiters
hf., í Bolungarvík, sem úr-
skurðað var gjaldþrota 16. apríl
1993, fyrir brot á lögum um
virðisaukaskatt, brot á lögum
um staðgreiðslu opinberra
gjalda og fjárdrátt. Nýtt þing-
hald í málinu fer fram 26.
febrúar nk., og er málflutningur
ráðgerður í mars.
Ákærða er gefið að sök að
hafa eigi staðið innheimtu-
manni ríkissjóðs skil á virðis-
aukaskatti sem félagið hafði
innheimt á árunum 1992 og
1993, samtals að fjárhæð kr.
11.184.010. Þá er ákærða gefið
að sök að hafa eigi staðið
ríkissjóði skil á kr. 8.978.419,
sem haldið hafði verið eftir af
launum starfsmanna félagsins
á árunum 1992 og 1993, sam-
kvæmt ákvæðum laga um stað-
greiðslu opinberra gjalda nr.
45/1987, sbr. lög nr. 90/1987.
Ákærða er einnig gefið að sök
að hafa eigi staðið Lífeyrissjóði
Bolungarvíkur skil á lífeyris-
sjóðsgjöldum, samtals kr.
2.630.575, sem haldið var eftir
við útborgun launa starfsmanna
félagsins á árunum 1992 og
1993, til greiðslu iðgjalda
þeirra til lífeyrissjóðsins.
Ríkissaksóknari hefur krafist
þess að ákærði verði dæmdur
fyrir framangreint brot. Ákærði
kvaðst fyrir héraðsdómi ætla
að halda uppi vörnum í málinu,
en sagðist engu að síður vera
reiðubúinn að tjá sig stuttlega
um ákæruna. Hann taldi sig
ekki hafa gerst brotlegan við
þau ákvæði laga, sem tilgreind
eru í ákæru, en varðandi 1. og
2. kafla ákæruskjals, er lítur að
broti á lögum um virðisauka-
skatt og broti á lögum um
staðgreiðslu opinberra gjalda,
sagði ákærði hafa verið í gildi
samkomulag milli Júpiters hf.,
og innheimtumanns ríkissjóðs
um skil á umræddum gjöldum.
Þá hafi einnig verið fyrir hendi
samkomulag milli félagsins og
Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur
um skil á lífeyrissjóðsgjöldum.
Ákærði kvaðst því hvorki
hafa gerst sekur um fjárdrátt,
né brotið gegn lögum um
virðisaukaskatt, lögum um
staðgreiðslu opinberra gjalda
eða 262. gr. almennra hegn-
ingarlaga. Sigmundur Hannes-
son hrl., hefur verið skipaður
verjandi ákærða í málinu en
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Ísafirði, sækir
málið af hálfu ákæruvaldsins.
Lið KFÍ vann stórsigur á botnliði úrvalsdeildar, Breiðabliki, í íþróttahúsinu á Torfnesi á laugardag. Lokatölur
leiksins urðu 92-63 fyrir heimamenn. Með KFÍ lék nýjasti leikmaður liðsins, Kanadamaðurinn Chiedu Odiatu, og stóð
hann sig vel, þrátt fyrir að hafa aðeins náð að mæta á eina æfingu fyrir leik. Ungir áhangendur KFÍ flykktust að Chiedu
í leikslok og hafði hann í nógu að snúast við að gefa þeim eiginhandaráritanir.
Suðureyrarhreppur
Rannsókn á viðskiln-
aði sveitarstjóra
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur nú til meðferðar beiðni
lögmanns Ísafjarðarbæjar, um
opinbera rannsókn á viðskiln-
aði og fjárreiðum fyrrverandi
sveitarstjóra á Suðureyri.
Málið kom upp þegar unnið
var að milliuppgjöri á reikn-
ingum hjá sveitarfélaginu en
þá komu í ljós atriði sem
stjórnendur Ísafjarðarbæjar
vildu fá nánari skýringar á.
Sveitarstjórinn sem um ræðir
lét af störfum á síðasta ári og
tók þá við starfi sparisjóðs-
stjóra á Þórshöfn. Hann mun
hafa sagt upp því starfi í byrjun
þessa árs.
Héraðsdómur Vestfjarða
Málum fækkaði
á síðasta ári
Málum sem bárust til héraðs-
dóms Vestfjarða á síðasta ári
fækkaði lítillega frá árinu 1995,
samkvæmt upplýsingum sem
blaðið fékk frá dómnum fyrir
helgi. Árið 1995 bárust dómn-
um 317 mál en á síðasta ári
voru þau sextán færri, eða 301
talsins.
Gjaldþrotamálum fjölgaði
um fjögur mál á milli áranna
1995 og 1996, úr 50 málum í
54. Einkamálum fækkaði hins
vegar um 28, úr 199 málum í
171 mál. Sjóprófsmálum fjölg-
aði um sex mál, úr átta málum
í fjórtán og ákærumálum fjölg-
aði um tvö mál, úr 60 í 62 mál.
Ísafjarðarflugvöllur
Beintengd vefsíða með nýj-
ustu upplýsingum um flug
Flugleiða og Flugfélags Norð-
urlands til Ísafjarðar er komin
á Internetið. Á vefsíðunni eru
upplýsingar um komu- og
brottfarartíma flugvéla framan-
greindra flugfélaga og endur-
nýjast upplýsingarnar á þriggja
mínútna fresti.
Á vefsíðunni eru flug Flug-
leiða merkt með bláum lit og
flug Flugfélags Norðurlands
með rauðum. Ef ófært er til
Ísafjarðar koma fram athuga-
semdir, þar sem greint er frá
því hvenær flug skuli athugað
næst. Þá er á vefsíðunni að-
gangur að nýjustu veðurspá
sem og að upplýsingum um
flug til og frá Keflavíkur-
flugvelli. Vefsíðunni er haldið
við af starfsmönnum Flugleiða
á Ísafjarðarflugvelli en um-
sjónarmenn hennar eru þeir
Gunnar Atli Jónsson og Björg-
vin Arnar Björgvinsson.
Þegar blaðið skoðaði vefsíð-
una á mánudagsmorgun, höfðu
694 heimsóknir borist á síðuna.
Netfang upplýsingasíðunnar er:
http://www.ismakk.is/flugleidir/
Upplýsingar um
flug á Netinu
Blaðsíða 6
Kvótakerfið
er eins og
krabbamein
Sólarskáldið
Guðmundir Ingi
níræður
Kaupir Ísa-
fjarðarleið
keppinautinn?