Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.1997, Síða 2

Bæjarins besta - 22.01.1997, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Magnús Hávarðarson Netfang: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Bæjarins besta Stofnað 14. nóvember 1984 Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. ?Spurning in Eru Vest- firðingar á netflugi? LeiðariLafði Díana Þegar frammámenn hins vestræna heims taka sig hátíðlega, tala þeir af fjálgleik um hversu gott við eigum að búa við lýðræðislegt stjórnarfar, sem svo er nefnt. Þar sé ólíku saman að jafna við löndin þar sem einræðisseggir skammta almúganum skít úr hnefa í skjóli hervalds, meðan þeir sjálfir baða sig í gullhaugum líkt og Jóakim frændi. Þetta er allt saman gott og blessað. Þegar okkar sjálfumglöðu leiðtogar mata okkur á lýðræðisást sinni eru þeir snillingar í að gleyma hversu gjarnt þeim er að hundsa almenning eða gera lítið úr skoðunum hans og afstöðu. Þessi árátta leiðtoganna birtist einkum með tvennum hætti. Í fyrsta lagi með algjörri þögn, þeir þegja hlutina í hel, og í annan stað með yfirlýsingum um þekkingarleysi viðmælanda í viðkomandi máli. Hin eina og sanna lafði Díana vogaði sér fyrir nokkru að hvetja leiðtoga þjóða til að taka höndum saman um að banna notkun jarðsprengja. Árlega örkumlast og deyja um þrjátíu þúsund manns, einkum börn, af völdum þessa hættulega vopns, sem ómögulegt er að forðast. Viðbrögð stjórnmálaleiðtoga við orðum Díönu voru eftirtektarverð. Leiðtogar breska íhaldsflokksins umturnuðust og sökuðu prinsessuna um gáleysislegt tal og þekkingarleysi. Sérfræðingar í stríðsrekstri voru kallaðir til vitnis. Vel má vera að lafðina skorti þekkingu á hagsmunum vopnaframleiðenda og á refilstigum stjórnmálanna. Henni kom gott eitt til og voru ljósar afleiðingar þessa hræðilega vopns, sem börn að leik eru varnarlaus fyrir. Hvað sem líður geðveikiskasti stjórnmálamanna út af orðum prinsessunnar á hún þakkir almennings skilið. Íslenskir stjórnmálamenn hafa í ríkum mæli tileinkað sér þagnar- og þekkingarleysistæknina, þegar afstaða almennings kemur þeim illa. Þegar óþægilegar spurningar eru bornar fram, kjósa þeir að þegja. Bréfum og blaðagreinum er ekki svarað. Fólk er ekki virt viðlits. Komist þeir ekki upp með þögnina er gripið til ásökunarinnar um þekkingarleysi. Hver kannast ekki við þetta algenga svar stjórnmálamannsins: Þú skilur þetta ekki! Þetta er á misskilningi byggt! Þar með er málið afgreitt. Því miður virðast æði margir sveitarstjórnarmenn vera litlir eftirbátar fyrirmyndanna á alþingi og í stjórnmálaflokkunum. Afskipti lafði Díönu komu við kaunin á hagsmunaaðilum, sem voru fljótir að kippa í spottann á stjórnmálamönnunum. Hagsmunaaðilum, sem ráða ferðinni í heimi stjórnmálanna. Það fyrirbrigði þekkjum við vel hér á landi. s.h. Sautján ára bolvískur hjálparsveitarmaður Lenti í snjóflóði í Esjunni Gestur Pálmason, 17 ára bolvískur félagi í Hjálparsveit skáta í Garðabæ, barst um 150- 200 metra með snjóflóði í Grafardal í Esju á sunnudag, er hann var við æfingar með félögum sínum. Gestur var fastur í snjóflóðinu í um hálfa klukkustund en þá tókst félög- um hans að grafa hann upp. Í fyrstu var talið að hópur hjálp- arsveitarmanna hefði lenti í flóðinu, en síðar kom í ljós að fimm höfðu lent í flóðinu og tókst fjórum þeirra að krafla sig úr því strax. Talið er að Gestur hafi verið á nær tveggja metra dýpi er hann fannst. Þar sat hann fastur en hafði samt ákveðið rými til að anda. Gestur var með snjó- flóðaýlu innan á sér og er talið fullvíst að það hafi flýtt mjög fyrir því að hann fannst. Gestur slapp án meiðsla en var nokkuð kaldur fyrst eftir að hann hafði verið grafinn upp úr snjónum. Gestur er sonur leikarans góðkunna Pálma Gestssonar og Soffíu Vagnsdóttur, sem bæði eru fædd og uppalin í Bolungar- vík. Námskeiðahald fyrir atvinnulausa á Þingeyri Ekki hægt að ætlast til þess að við förum að keyra til Flateyrar Í desember s.l. var, að undirlagi félagsmálastjóra Ísafjarðar- bæjar, sett á stofn nefnd atvinnulausra á Þingeyri. Að sögn Val- dísar B. Kristjánsdóttur, eins nefndarmanna, stendur nefndin fyrir opnu húsi einu sinni í viku þar sem fólk kemur saman til skrafs og ráðagerða. „Við erum búin að vera á fullu við að setja á laggirnar tölvunámskeið fyrir atvinnulausa sem byrjaði 20. janúar. Það eru tveir 13 manna hópar í gangi og verður til að byrja með kenndur vélbúnaður tölvunnar og ritvinnsluforritið Word. Við höfum einnig sett upp aðstöðu fyrir fólk sem hefur áhuga á smíðum og þess háttar og höfum opið þar tvisvar í viku. Einnig er í bígerð ýmislegt annað sem ekki hefur verið endanlega ákveðið og get ég nefnt í því sambandi fyrirhugað vélavarða- námskeið og fiskvinnslunámskeið.“ Valdís var innt álits á gagnrýnisröddum sem hafa beinst að Þingeyringum vegna trega þeirra til að sækja vinnu t.d. á Flateyri þar sem skortur hefur verið á starfsfólki. „Það er ekki hægt að ætlast til að við förum að keyra til Flateyrar, - fólk sem er með börn hér á leikskóla þarf að fara fyrr af stað og kemur seinna heim. Fólk er heldur ekki hrifið af að keyra t.d. Gemlufallsheiðina þar sem nýlega varð alvarlegt slys eins og flestir vita, og Hvilftarströndina út á Flateyri sem er þekkt snjóflóðasvæði.“ Valdís sagði að hún vissi til að einhverjir Þingeyringar væru komnir í vinnu á Suðureyri en taldi upp á að einhverjir þeirra væru þar að staðaldri. „ Bæði Freyja á Suðureyri og Bakki í Bolungarvík hafa auglýst eftir fólki hérna en ég veit ekki til þess að Flateyringar hafi auglýst.“ Nýtt söluumboð fyrir bifreiðar frá Heklu hf. Bílagarður tekur til starfa Nýtt fyrirtæki á Ísafirði, Bílagarður ehf., hefur tekið við söluumboði nýrra bifreiða frá Heklu hf., í Reykjavík. Bíla- garður, sem er í eigu þeirra Sævars Hjörvars- sonar og Sigurðar Ósk- arssonar, eigenda Eyrar- steypu ehf., verður til húsa að Grænagarði á Ísafirði, og hefst starf- semin með mikilli bíla- sýningu, laugardaginn 1. febrúar nk. Samhliða opnun bílasölunnar, opnar Bílagarður nýja varahluta- verslun, þar sem boðið verður upp á algengustu bílavarahluti frá Stillingu hf., í Reykjavík. Að sögn Sævars Hjörvarssonar, verður í fyrstu einungis boðið upp á nýjar bifreiðar en áætlanir standa til að hefja sölu á notuðum bílum innan eigi langs tíma. Viðgerðarþjónusta fyrir bifreiðar frá Heklu verður áfram sem hingað til hjá Bílaverksæði Sigurðar og Stefáns á Ísafirði. Bílagarður verður til húsa að Grænagarði á Ísafirði. Kópavogur Til heiðurs skáldinu Guð- mundi Inga Sunnudaginn 26. janúar mun Önfirð- ingafélagið í Reykjavík efna til afmælishátíðar í tilefni 90 ára afmælis Guðmundar Inga Krist- jánssonar, skálds og bónda á Kirkjubóli í Bjarnardal, en það var 15. janúar s.l. Hátíðin, sem haldin verður í Digraneskirkju í Kópa- vogi, hefst kl. 20 og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá til heiðurs hinu aldna skáldi.Mikill fjöldi lista- manna mun koma fram m.a. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Anna Guðný Guðmunds- dóttir og Karlakór Reykjavíkur. Önfirð- ingafélagið skorar á sem flesta að mæta en forsala aðgöngu- miða verður laugar- daginn 25. janúar kl. 10-14, í Álfaborg, Knarrarvogi 4 í Reykjavík. Arnór Jónatansson, umdæmisstjóri Flug- leiða á Ísafirði: „Þetta er sett upp sem prufa til að byrja með og ætlunin er að gefa fólki færi á að fylgjast með fluginu með hjálp þess- arar síðu. Þarna eru upp- lýsingar er varða flug dagsins t.d. hvort það er fært eða ekki, veðurspá og eins hvort flug er á áætlun. Við byrjuðum á þessu 16. janúar og viðbrögðin hafa verið nokkuð góð og menn sem eru mikið á netinu eru mjög ánægðir með þetta.“ Netfarar hér vestra eiga þess nú kost að fylgjast með áætlunar- flugi Flugleiða og Flug- félags Norðurlands á Internetinu. Viðbrögðin hafa verið mjög góð og hafa um 100 heimsóknir verið á síðuna daglega frá uppsetningu hennar. Síðan er einkaframtak starsfsmanna Flugleiða á Ísafjarðarflugvelli.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.