Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.1997, Page 3

Bæjarins besta - 22.01.1997, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 3 Atvinna Vegna aukinna umsvifa vantar okkur ungt starfsfólk í veitingasali og í önnur störf. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri alla virka daga frá kl. 8:00 - 17:00. Atvinna Starfskraftur óskast til almennra prent- smiðjustarfa. Um er að ræða framtíðarstarf. Nánari upplýsingar gefur Halldór í síma 456 4560. Þakkir Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig á 75 ára afmælinu, með góðum gjöfum, kveðjum og heimsóknum. Einnig þakka ég öllum þeim sem veittu mér ómetanlega aðstoð að þessu tilefni. Óska ég ykkur farsældar um alla framtíð. Arnór Stígsson. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Júpíters hf. Ákæran kom mjög á óvart Fyrrverandi framkvæmda- stjóri Júpíters hf., í Bolungar- vík hafði samband við blaðið og vildi koma eftirfarandi á framfæri vegna opinbers máls sem ríkissaksóknari hefur höfðað á hendur honum, en þar er framkvæmdastjórinn fyrr- verandi ákærður fyrir 22,7 milljóna króna skattalagabrot. ,,Í fyrsta lagi eru liðin tæp fjögur ár frá gjaldþroti Júpíters hf. Þær skuldir sem nú er ákært fyrir voru ljósar þá, og engin tilraun var gerð til að draga þar nokkurn hlut undan, allar skýrslur lágu skýrar fyrir. Í öðru lagi lá fyrir samkomu- lag við Lífeyrissjóð Bolungar- víkur um greiðslu iðgjalda. Jafnframt var í febrúarmánuði 1993 gert greiðslusamkomulag við sýslumanninn í Bolungar- vík um greiðslu þeirra vanskila á staðgreiðsluiðgjöldum og virðisaukaskatti sem þá voru til staðar. Í þriðja lagi er það ljóst að enginn ákveður að biðja um gjaldþrotaskipti fyrr en eftir að allar hugsanlegar leiðir hafa verið reyndar. Í tilfelli Júpíters var hvoru tveggja reynt, að fá nýja hluthafa til liðs, og kannað með sölu skipsins. Hvorug leiðin tókst, og gjaldþrot var staðreynd. Það að biðja um gjaldþrot, er ekki lögbrot. Við gjaldþrot duga ekki eignir fyrir útistandandi skuldum. Í flest- um tilfellum er um vanskil að ræða á ýmsum rekstrargjöldum þ.m.t. launatengdum gjöldum og svokölluðum vörsluskött- um. Í túlkun laganna heitir það fjárdráttur ef fyrirtæki skilar ekki inn lífeyrisiðgjöldum. Þar er ekki um það að ræða að fjármunum hafi verið stungið undan af framkvæmdastjóra eins og einhverjir gætu skilið fréttaflutning af slíkum málum. Algengara er að það sé eins og í mínu tilviki, að framkvæmda- stjóri verði fyrir fjárhagslegu tjóni með því að hluti af launum hans tapast, en hann er eini starfsmaðurinn sem ekki fær þau bætt við gjaldþrot. Það er því sjaldnast af ásetningi að umrædd gjöld eru ekki greidd. Rekstrartekjur duga einfald- lega ekki fyrir öllum þeim greiðslum sem standa þarf skil á, peningarnir eru ekki til staðar. Því verður ekki trúað að tilgangur lagasetningarinnar hafi verið að lögsækja menn við aðstæður sem þessar. Í fjórða lagi er hægt að fullyrða að í tilviki Júpíters hf., er ekki hægt að ásaka stjórnendur fyrir að of seint hafi verið beðið um gjaldþrota- skipti, eins og reyndin er í sumum tilvikum. Í sjávarút- veginum eru oft meiri sveiflur en í öðrum greinum. Ekki síst hvað varðar uppsjávarfiska. Þótt lægð hafi verið í verði loðnuskipa á vormánuðum 1993, var stutt í uppsveifluna. Þannig má benda á, að 1. júlí 1993, aðeins tæpum þremur mánuðum eftir gjaldþrotið, hófst mesta ævintýrið til þessa í loðnuveiðum Íslendinga. Það má því til sanns vegar færa að aðeins hefði þurft þrjá mánuði til viðbótar til að bjarga fyrir- tækinu frá gjaldþroti og lána- drottnum frá skaða þeirra. Þess skal getið hér að skipið var selt eftir gjaldþrotið á kr. 225.000.000.- með öllum afla- heimildum sínum. Með því misstu Vestfirðingar eina loðnukvóta sinn. Þar að auki er mikið horft til aukinnar síld- veiði, þar sem stór og öflug skip eins og Júpíter duga best. Vegna góðrar afkomu í veiðum og vinnslu loðnu og síldar hefur verð nótaskipa og aflaheimilda í síld og loðnu hækkað veru- lega. Varlega áætlað er sölu- verðmæti Júpíters nú með þeim aflaheimildum sem skipið hafði, 800-900 milljónir króna.” Björgunarskóli Landsbjargar og SVFÍ Fyrirlestur um mat á snjóflóðahættu við snjóflóði og öryggisbúnað. Fundurinn er ætlaður öllum sem ferðast utan alfaraleiðar að vetri til, hvort sem þeir eru gangandi, á skíðum, á vélsleð- um eða öðrum ökutækjum. Í frétt frá skólanum segir að atburðir síðustu helgar, þar sem a.m.k. þrír aðilar lentu í snjó- flóði hér á landi, sýni svo ekki verði um villst, að full ástæða er til að ferðamenn auki þekk- ingu sína á snjóflóðum sem og þeim hættum sem þau hafa í för með sér. Þátttökugjald fyrir fyrirlest- urinn er 1.000 krónur og er veglegt fræðslurit innifalið. snjóflóðahættu fyrir ferðamenn í Skátaheimilinu á Ísafirði, á morgun, fimmtudaginn 23. jan- klukkustund, verður meðal annars fjallað um snjóþekjuna, leiðarval í fjalllendi, viðbrögð úar og hefst fundurinn kl. 20. Á fræðslufundinum, sem áætlað er að standi yfir á þriðju Ísafjörður Hljómsveitin Rós tekur til starfa Hljómsveitin Rós, sem er nýtt innlegg til tón- listarflutnings á Ísafirði, hefur nú hafið starfsemi og hyggst hasla sér völl á öldurhúsum Ísa- fjarðarbæjar og ná- grennis. Hljómsveitina skipa þau Þórunn Snorradóttir, Jón H. Engilbertsson og Alfreð Erlingsson en þau léku m.a. með hljómsveitinni Dolby um árabil við góðan orðstír. Alfreð Erlingsson, Jón H. Engilbertsson og Þórunn Snorra- dóttir. Að sögn Alfreðs Erlingssonar, hljóm- borðsleikara sveitarinnar, er ætlunin að leika tónlist í víðasta skilningi þess orðs og verður hún ætluð öllum aldurshópum. Hljómsveitin, sem form- lega var stofnuð í haust, hefur verið við æfingar í nokkrar vikur og er nú tilbúin í slaginn. Alfreð segir að hljómsveitin hafi tekið tæknina í þjónustu sína til að fá meiri breidd í hljóðfæraleikinn og að það muni gefa mun meiri möguleika bæði í hljómi og lagavali. Þeim sem áhuga hafa á að nýta sér þjónustu hljómsveitarinnar er bent á að Alfreð sér um bókanir í síma 456 4027. Björgunarskóli Íslands og Slysavarnafélag Íslands standa fyrir fræðslufundi um mat á Hótel Ísafjörður Andblær liðinna tíma Menningarmiðstöðin Edinborg, Litli Leik- klúbburinn, Hótel Ísa- fjörður og Byggðasafn Vestfjarða hafa ákveðið að efna til þorrablóts á Hótel Ísafirði, laugar- daginn 8. febrúar nk. Á þorrablótinu verða flutt fjölbreytt skemmtiatriði, tónlist, rímur og fleira auk þess sem stiginn verður léttur dans við undirleik harmonikku-hljómsveitar. Í frétt frá Hótel Ísafirði segir að þorra verði blótað í þjóðlegum stíl, með trogi á borðum, fullu af hákarli, harðfiski, súrmat, sviðum og fleira góðgæti sem tilheyrir þessum árstíma. Miðasala og upplýsingar um þorrablótið fást á Hótel Ísafirði. Sama dag munu Vesturferðir á Ísafirði efna til ,,smakkferðar” um Ísafjarðarbæ og nágrenni. Farið verður í söfnin í Ósvör og Neðstakaupstað og í hákarls- og harðfisk- verkun þar sem smakk- aður verður vestfirskur þorramatur. Skráning í ferðina er hjá Vestur- ferðum í síma 456 5111. Hótel Ísafjörður hefur ákveðið að efna til vestfirsks þorra- blóts í samvinnu við þrjá aðra aðila.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.