Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.1997, Síða 7

Bæjarins besta - 22.01.1997, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 7 Sveinbjörn var spurður hvort hann hafi nokkuð velt fyrir sér kvótakerfinu þegar það var sett á 1984 og hvort það hafi nokkuð komið við smábáta þá? „Ég tók strax við mér þegar ég sá hvað var að gerast. Við Vestfirðingar höfðum búið í nokkur ár við sóknarstýringu þar sem engin aðför var gerð að yfirburðum okkar til fiski- miða. Við búum við það eins og flestir vita, að hér eru gjöful fiskimið. Það var stór þorsk- torfa hérna 30 mílur fyrir utan og reyndar er svo enn í dag. Það voru auðvitað stór forrétt- indi, fyrir daga kvótans, að búa nálægt þessari torfu, miklu meiri forréttindi en í dag þegar allar þessar takmarkanir eru í gildi. Ég áttaði mig mjög snemma á hvert þetta myndi leiða og ég held að það hafi verið ´85 eða ´86 sem ég gerði skýrslu fyrir Útvegsmanna- félag Vestfjarða þar sem ég spáði fyrir um hver þróunin yrði. Orðalagið í skýrslunni var reyndar með hátíðlegra móti því að á þessum árum aðhylltist ég kenningar Lao Tse og Fritz Schumacer. Ég orðaði þetta á þann veg, að kvótakerfið myndi hygla hinum stóru og centrölsku á kostnað hinna dreifðu og smáu og að það myndi leiða til samþjöppunar aflaheimilda. Það myndu sem sagt verða hinir dreifðu sem byggju í útjöðrum þjóðfél- agsins sem yrðu fórnarlömb þessa kerfis. Ég á reyndar skýrsluna ekki til lengur en mér hefur fundist athyglisvert hvað margt sem þar kom fram hefur ræst.“ Enginn smábátur ef kerfið fengi að ráða En hvernig kom Sveinbjörn að stofnun Félags smábátaeig- enda? „Það er 1985 sem Arthur Bogason gengst fyrir stofnun Sambands smábátaeigenda og var ég einn af stofnfélögum og var m.a. í stjórn ein 6 eða 7 ár með þátttöku í þeim baráttu- málum sem uppi voru hverju sinni. Það hafði sýnt sig að það var greinilegur ásetningur kvótakerfisins að útrýma öllum smábátum og það má eiginlega segja að þetta félag hafi bjargað því sem bjargað hefur verið, bæði hvað varðar frelsi til útgerðar þannig að aðrir en stórtækar útgerðir gætu sótt sjóinn og einnig til bjargar ýmsum byggðarlögum eins og t.d. þorpinu mínu Suðureyri, sem væri ekki til í dag ef þetta landssamband hefði ekki orðið til. Við höfum frá upphafi barist með markmið einstaklings- frelsis í huga og mottó félagsins hefur verið; krókaveiðar frjáls- ar. Að vísu hafa menn orðið að semja um eitthvað til að afstýra styrjöldum sem þeir treysta sér ekki í, en megin inntakið hefur verið einstaklingsfrelsi, réttur og að smáir aðilar hefðu ákveðinn forgang. Í raun má segja að smábátum hafi fjölgað meira vegna kvótakerfisins heldur en ef kvótakerfið hefði aldrei verið til. Viðbrögð manna og sjálfsbjargarhvöt urðu til þess að menn fóru meira og meira inn í kerfið. Þetta var ákveðinn öryggis- ventill og við getum borið þetta saman við gufuvél sem hleypti út þrýstingnum meðal sjó- manna og jafnvel byggðarlaga sem gátu bjargað sér á þennan hátt. Ég trúi því að ef kerfið hefði fengið að ráða baráttu- laust, þá væri nánast ekki til smábátur á Íslandi í dag. Sýknaður af kröfum ákæruvaldsins En hvað er Sveinbirni minn- isstæðast úr baráttunni? „Ég er búinn að starfa mikið að fél- agsmálum í gegnum tíðina og hef m.a. verið formaður verka- lýðsfélagsins og oddviti sveit- arfélagsins. Reyndar var ég alþýðubandalagsmaður á árum áður og einn af stofnendum Þjóðarflokksins sem litlu mun- aði að kæmi inn manni á sínum tíma. Landsamband smábáta- eigenda er í raun eina félagið sem ég er tiltölulega ánægður með hvernig virkaði. Það er voðalega erfitt að tilgreina eitthvað eitt atriði sem er minnisstæðast. Ég gæti samt vel trúað að ef baráttuaðferðir, saga Landssambandsins, sem er 10-12 ára gamalt félag, og árangur væri skráður, þá kæm- ust menn að raun um að þar hefur verið unnið eitt mesta þrekvirki í varnarbaráttu sem þekkist í Íslandssögunni. Eftir að ég hætti í stjórn félagsins, fór ég að byggja meira á eigin forsendum en þó í fullum tengslum við félagið. Ætli mér sé þá ekki minnis- stæðast þegar við fórum í þennan fræga steinbítsróður. Hann byggðist á því að við höfðum alltaf varið rétt okkar með tilvísun í stjórnarskrána. Það eru ákvæði í stjórnarskrá um athafnafrelsi annars vegar og ákveðin jafnræðisregla hins vegar. Við teljum að kvóta- kerfið í heild sé á mörkum vel- sæmis gagnvart stjórnarskránni og í raun jafnvel brot á henni. Í þessu tilviki létum við reyna á ákveðinn þátt sem byggði á að smábátaflotanum var úthlutað ákveðnum leyfilegum sóknar- dagafjölda og var það gert vegna verndunar á þorski. Þar sem þær aðstæður eru stundum fyrir hendi, ákveðinn tíma árs, að hægt er að veiða nánast hreinan steinbít, sem ekki var í kvóta þá, þá fórum við á banndegi og veiddum steinbít. Við auglýstum vel hvað við hyggðumst gera í trausti þess að stjórnvöld myndu kæra, og við fengjum reynt á rétt okkar gagnvart lögunum. Ekki stóð á málssókninni því Fiskistofa kærði og í kjölfarið fylgdu skýrslutökur og yfirlýsingar. Þegar upp var staðið þá var ég reyndar einn kallaður fyrir dóm því þetta var gert að einskonar prófmáli. Það er skemmst frá því að segja að ég var sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins sem þýðir raunverulega að við vorum ekki að brjóta lög á þeim heldur voru þeir búnir að brjóta lög á okkur í mörg ár.“ Varð þetta þá kannski til þess að kvóti var settur á steinbít? „Þetta er kannski eitt af þeim atriðum sem varð þess vald- andi, en það sem skiptir höf- uðmáli er að þegar menn búa til valdakerfi í kringum svona kvótakerfi þar sem sjávar- útvegsráðuneytið, í þessu til- felli, fær umboð frá Alþingi til þess að stýra út á einhver markmið, þá mega menn ekki gleyma stjórnarskrárbundnum rétti einstaklinga og jafnvel rétti bundnum alþjóðalögum.“ Kvótakerfið hefur stolið af okkur milljón tonnum En hefur þetta ekki orðið til að þrýsta á að vel flestar ef ekki allar tegundir verði kvóta- settar? „Það er auðvitað mark- miðið hjá þeim, en ef þeir ímynda sér að hægt sé að búa til tölvuleik sem líkir það vel eftir náttúrunni að hægt sé að nota hann til löggjafar um það hvernig á að starfa, af hverju hleypa þeir þá ekki mönnum til veiða í tölvunni hjá sér? Það er fáranlegt að ætla að stýra fiskveiðum, í lífríki eins og er hér við land, með kvótasetn- ingu tegunda. Það er efni í heila bók að fara út í líffræðileg áhrif t.d. kvótans á þorskstofninn. Ég held því fram að kvótakerfið sé búið að stela af okkur milljón tonnum í veiði á þorski á s.l. 12 árum. Ef við hefðum stýrt með sókn og tekið á þeim málum sem okkur fannst koma upp eins og að fyrirbyggja útkast á fiski og annað slíkt, og reynt að stýra sóknarmynstrinu eftir þörfum stofnsins, þá hefði afrakstursgeta þorskstofnsins orðið milljón tonnum meiri en hún varð. Þetta byggi ég einfaldlega á því að í kvóta- kerfinu er innifalinn hvati til að veiða stóran fisk. Þetta helg- ast af því að verðgildi kvóta er það sama á kíló hvort sem kílóið er af eins kílóa fiski eða tíu kílóa fiski. Verðgildi kílós af tíu kílóa fiski getur verið þrefalt miðað við kíló af eins kíló fiski, undirmálið er kann- ski þrefalt ódýrara en stór- fiskurinn. Þetta þýðir það að sóknin beinist í stærsta fiskinn og þar komum við inn á líf- fræðilega þáttinn sem er ein- faldlega sá, að fræðimenn hafa reiknað út afrakstursgetu stofn- sins nánast eingöngu út frá vaxtarhraða árganga en þeir gleyma því gjörsamlega að lífið er hringrás. Holdmyndun 7-8 ára fisks fyrir stofn í formi frjósemi er margföld á við holdmyndun þriggja ára fisks í formi vaxtar og ef við skoðum, þegar hrygning hefur átt sér stað, hvað það muni leiða til mikillar nýliðunar eftir þrjú ár, þá getur það verið margfeldi eigin þyngdar hjá átta ára fisknum en það er ekkert hjá hinum. Þetta þýðir að með ímyndaðri verndun á smáfisk höfum við verið að halda of miklu vægi á sókn í hrygn- ingarfisk og komið í veg fyrir að íslenski þorskstofninn skil- aði góðri nýliðun. Ég fullyrði að ef það hefði verið beitt hagkvæmustu aðferð við sókn- arstýringu sem hefði tekið tillit til þarfa stofnsins, frjósemi hans og samsetningar, þá hefði stofninn gefið að minnsta kosti milljón tonnum meira af sér en hann hefur gert á undanförnum 10-12 árum og væri betri en hann er. Til þess að stofn geti vaxið þá er frjósemi lykilatriði, það er málið í hnotskurn. Það er ekki meiri ofætlun hjá mér að setja fram fullyrðingu um þessi milljón tonn en það væri hjá fiskifræðingum að afsanna hana með þeim verkfærum sem þeir hafa notað.“ Veiðar með skilju hefðu stútað stofninum Þrátt fyrir allt þá samþykkir Sveinbjörn að meiri fiskur sé á ferðinni nú en fyrir nokkrum misserum. „Þessi talningavís- indi sem fiskifræðingar nota eru svona 30% vísindi og sem betur fer held ég að hafið sé réttu megin við vísindin í dag því að ef tölur þeirra væru réttar þá væru menn að ganga frá hrygningarstofninum núna.“ En myndi Sveinbjörn treysta sér til, í ljósi sannfæringar sinnar, að gefa út hvað mætti veiða úr stofninum? „Ég ætla ekki að segja að það sé allt í lagi að veiða 100 þús. tonnum meira en ég get sagt að ef við hefðum veitt 30-50 þús. tonn- um meira, og öll viðbótin hafði verið sá fiskur sem við hentum og að síðan hefðum við nýtt úr þriggja ára nýliðun í stað stórfiskjar, þá myndi stofninn framleiða meira. Ef við hefðum hinsvegar veitt þessi 50 þús. tonn með skilju, þá hefðum við gjörsamlega stútað frjó- semi stofnsins. Ef við yfir- færum þetta á fjárhús, og við skulum gefa okkur að við ætlum að hafa viðkomu ár eftir ár, þá myndum við ekki ávallt slátra bestu gripunum. Hvort myndum við frekar taka einn fjórða úr þriggja ára nýliðun og vernda hitt, eða vernda þennan fjórðung nýliðunar og stúta öllu hinu? Menn verða að vita um hvað málið snýst. Frjósemi er meiri forsenda holdsköpunar en vaxtarhraði í stofni og það þýðir einfaldlega það að á bilinu 6-8 ára þá verður verðgildi fisks, sérstaklega í stofni sem búið er að eyði- leggja, margfalt meira heldur en vaxtarhraði árgangs, það verður miklu meiri stofnþyngd- ar aukning vegna frjósemi en vaxtar.“ Verkalýðshreyfingin brást gjörsamlega Þegar talið berst að öðrum þáttum kvótakerfisins og þeirri togstreitu sem virðist ríkja milli sjómanna á smábátum og stærri skipum verður Sveinbjörn harðorður mjög. „Það sem gerðist þegar kvótakerfið var sett á var að veiðiheimildir á stærri skipum voru settar á hendur útgerðarmanna sem voru ekki nema kannski fjórð- ungs þátttakendur þeirra sem fengust við sjávarútveg áður fyrr. Réttur fiskvinnslufólks og sjómanna var gjörsamlega hunsaður sem þýðir að ef þetta er verðgildi þá var því stolið frá þessu fólki. Munurinn á smábát og stóru skipi er yfirleitt sá að á smábátnum er yfirleitt sjómaðurinn og útgerðarmað- urinn sami aðilinn sem þýðir að á smábátnum tókst mannin- um að verja rétt sinn sem sjómaður með því að vera útgerðarmaður. Verkalýðs- hreyfingin, bæði sjómanna- félögin og félög landverkafólks brugðust gjörsamlega þegar kvótakerfið var sett á. Þau gerðu sér ekki grein fyrir að það var verið að verðleggja frelsi sem var undirstaða lífsviðurværis þegna þeirra. Það var ekki um neina baráttu að ræða frá verkalýðshreyf- ingunni gegn kerfinu hvorki fyrir hönd verkafólks né sjó- manna. Svo eru menn að klóra í þetta núna sem augljóst var að myndi gerast. Togstreita í hagsmunamálum sjómanna og útgerðarmanna á stóru skipun- um er svo augljós að hún ætti ekki að koma neinum á óvart. Þar er fólk sem búið er að ræna rétti sínum og er síðan farið með eins og hverja aðra leigu- liða. Það sættir sig ekki við þetta en ég spyr; hvað voru menn að hugsa ´85-´87 þegar þetta var að skríða yfir?“ Ég myndi segja bless Nú hafa borist fregnir af að viðmiðunarpottur smábáta sem eru á dagakerfinu svokallaða, sé búinn fyrir þetta fiskveiðiár. Ef á heldur sem horfir gæti þetta leitt til þess að þessi tegund smábáta fái einungis að róa nokkra daga á næsta fiskveiðiári. Hvaða lausn sér Sveinbjörn á þeim vanda og mun þetta ekki hafa alvarleg áhrif á byggðarlög eins og t.d Suðureyri, sem byggir nær eingöngu á smábátaútgerð? „Það eru nú reyndar ekki nema þrír bátar á Suðureyri sem falla undir þetta kerfi en þeir eru allir í alvarlegasta hópnum sem er línu hópurinn. Hinir eru flestir á aflamarki sem helgað- ist af því að þeir voru með góða aflareynslu og völdu því aflamarkið til þess að eiga möguleika á að bjarga sér á steinbít, ýsu og öðru slíku. Nú hafa aðeins verið notaðir um 20% afladaga á yfirstandandi fiskveiðiári í þessu kerfi en úthlutaður heildarafli er búinn. Mér skilst að lögin séu þannig að á þessu ári veiða þeir aðeins í þá daga sem þeir fengu úthlutað en mega veiða eins og þeir geta. Meðalafli á sóknar- dag verður síðan notaður til að reikna út þá daga sem þeim verður ætlað næsta ár til að veiða það magn sem þeir fá að veiða. Ef ég tek dæmi: Veiði þessir bátar helmingi meira á þessu fiskveiðiári en þeim var úthlutað, þá fækkar dögum á næsti ári, sem þeir mega stunda veiðar á, um helming. Ég er sannfærður um að stjórnvöld- um verður ekki stætt á að nota þessa reglu fyrir næsta ár vegna þess, að þegar í ljós kemur hvað skerða þarf mikið, þá muni menn einfaldlega standa frammi fyrir því að uppgötva að skerðingin er of mikil til þess að hægt sé að bjóða einstaklingum í þjóðfélaginu upp á hana. Ég held að það sé orðið lífsnauðsynlegt að fundin Þegar forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson og eiginkona hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heimsóttu Vestfirði á síðasta ári, komu þau meðal annars við hjá Sveinbirni Jónssyni á hafnarkantinum á Suðureyri.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.