Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.1997, Page 9

Bæjarins besta - 22.01.1997, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 9 Menningarvaka haldin til heiðurs hinu aldna skáldi Sveitungar Guðmundar Inga efndu til blysfarar að heimili hans á afmælisdaginn og sungu fyrir hann lög við nokkur ljóða hans. Guðmundur Ingi Kristjánsson á Kirkjubóli níræður Guðmundur Ingi Kristjáns- son, skáld og bóndi að Kirkju- bóli í Bjarnardal í Önundarfirði varð níræður 15. janúar síðast- liðinn. Sveitungar Guðmundar efndu til blysfarar að heimili skáldsins á afmælisdaginn, færðu honum gjafir og sungu fyrir hann lag við ljóð hans, Önundarfjörður, en ljóðið samdi Guðmundur árið 1924, þá sautján ára gamall. Bæjar- stjórn Ísafjarðarbæjar heim- sótti skáldið einnig á afmælis- daginn og færði því bók að gjöf. Í ávarpi sem Þorsteinn Jó- Þorsteinn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar- bæjar, færir skáldinu bók að gjöf frá bæjarfélaginu. hannesson, forseti bæjarstjórn- ar flutti við það tækifæri, sagði hann meðal annars að Guð- mundur Ingi hefði ávallt verið maður friðar og sátta. Guð- mundur Ingi, sem var heiðurs- borgari Mosvallahrepps og nú Ísafjarðarbæjar, þakkaði gjöf- ina og fallegi ummæli í hans garð frá hinu nýja sameinaða sveitarfélagi. Hann sagði að margs væri að minnast á þeim níutíu árum sem hann hefði lifað enda hefðu miklar breyt- ingar átt sér stað. Þegar Guð- mundur Ingi var beðinn um góð ráð til reksturs hins nýja sveitarfélags, kvaðst hann ekki hafa tök á því, þrátt fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum til fjölda ára. Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar, sagði að Guðmundur Ingi hefði þann starfa að vera og því kæmi ekki á óvart þótt eitthvað leyndist í pokahorn- inu. Guðmundur Ingi og eigin- kona hans, Þuríður Gísladóttir, sögðu í samtali við blaðið að afmælisdagurinn hefði verið hinn ánægjulegasti fyrir þau hjón. Á laugardaginn var, efndu vinir og vandamenn Guð- mundar Inga til menningar- vöku til heiðurs afmælisbarn- inu að Núpi í Dýrafirði. Yfir- skrift menningarvökunnar var ,,Til þín Guðmundur - 90 ára.” Þar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem komu fram m.a. Sunnukórinn á Ísafirði, kvartett frá Suðureyri og Leik- félag Flateyrar, sem flutti nokkur ljóða Guðmundar, svo fátt eitt sé nefnt. Þá voru haldn- ar fjölmargar ræður til heiðurs hinu aldna skáldi. markavörður bæjarfélagsins. Hann sagði að skáldið hefði að vísu sent sér bréf fyrir stuttu, þar sem hann benti á að kominn væri tími til að fara að huga að nýjum manni til starfsins. Guðmundur Ingi, sem á að baki sex ljóðabækur, mun vera eini núlifandi Íslendingurinn sem á ljóð í gömlu Skóla- ljóðunum. Árið 1993 kom út heildarútgáfa ljóða hans ásamt nýjustu ljóðunum. Bækur Guð- mundar Inga hafa átt það sammerkt að nöfn þeirra hafa allar byrjað á sól, s.s. Sóldögg, Sólstafir o.s.frv. Guðmundur Ingi var kennari að Holti í Önundarfirði til fjölda ára ásamt því að starfa að sveitar- stjórnarmálum í Mosvalla- hreppi, m.a. sem oddviti. Hann hefur mikið starfað að félags- málum og ávallt farið þar fremstur meðal jafningja, meðal annars hjá Stéttarsam- bandi bænda og Búnaðarsam- bandi Vestfjarða. Guðmundur Ingi hefur séð um vísnagerð fyrir þorrablót Önfirðinga um fjörutíu ára skeið, síðast árið 1995. Hann segist lítið yrkja þessa dagana, og þótt innblásturinn hafi verið til staðar áður fyrr, þá sé hann nú búinn að vera. Guðmundur Ingi er þekktur fyrir hógværð Afmælisbarnið, Guðmundur Ingi Kristjánsson ásamt eiginkonu sinni, Þuríði Gísladóttir. Ný upplýsingalög fram á aðgang að gögnum um mál þar sem taka á eða tekin hefur verið ákvörðun um rétt eða skyldu manna skal beiðni beint til stjórnvalds sem tekið hefur eða taka mun ákvörðun í málinu. Annars skal beiðni beint til þess stjórnvalds sem hefur gögnin í sínum vörslum.” Í 11. grein laganna er fjallað um málshraða og málsmeðferð. Þar segir að stjórnvald skuli taka ákvörðun um það hvort það verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Um málsmeðferð fer að öðru leyti eftir stjórnsýslu- lögum. Í 12. grein laganna er fjallað um ljósrit eða afrit af gögnum. Þar segir: ,,Stjórnvald tekur ákvörðun um hvort umbeðin gögn skuli sýnd eða hvort ljósrit skuli veitt af skjölum eða afrit af öðrum gögnum sé þess kostur. Sé farið fram á að fá ljósrit af skjölum skal orðið við þeirri beiðni, nema skjölin séu þess eðlis eða fjöldi þeirra svo mikill að það sé vand- kvæðum bundið. Þegar fjöldi skjala er mikill getur stjórnvald ákveðið að fela öðrum að sjá um ljósritun þeirra. Hið sama á við hafi stjórnvald ekki aðstöðu til að ljósrita skjöl. Þá skal aðili greiða þann kostnað sem hlýst af ljósritun skjalanna. Forsætisráðherra er heimilt að ákveða með gjaldskrá hvað greiða skuli fyrir ljósrit sem veitt eru samkvæmt lögum þessum. Reglur 2.-4. mgr. eiga einnig við um afrit af öðrum gögnum en skjölum eftir því sem við á.” Í 13. grein laganna segir að ákvörðun stjórnvalds um að synja beiðni um aðgang að gögnum eða um ljósrit eða afrit af þeim skuli tilkynnt skriflega ef beiðni hefur verið skrifleg. Lögin eru af hinu góða ,,Ég vona að við getum orðið við óskum íbúa og annarra þeirra sem þurfa að leita upplýsinga hjá okkur. Við erum með sæmilega vel skrásett skjalasafn og við höfum aldrei legið á upplýsingum, en hins vegar vil ég hafa þann fyrirvara á að allt sem snýr að persónulegum samskiptum og persónulegum málum, myndi ég ekki afhenda nema að ég yrði neyddur til þess,” sagði Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, aðspurður um hvernig Bolungarvíkurkaupstaður væri í stakk búinn til að fram- fylgja hinum nýju lögum. ,,Ég vil meta friðhelgi íbúanna en allt sem snýr að stjórnkerfinu, ákvarðanatöku, tillögugerð og samþykktum er opið fyrir alla og hefur alltaf verið. Það hefur ekkert reynt á þessi nýju lög enn. Allir sem hafa leitað til okkar hafa fengið upplýsingar. Þessi lög eru af hinu góða að mínu mati,” sagði Ólafur. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, sagði í samtali við blaðið að bæjarfélagið myndi reyna að vinna eftir lögunum eftir bestu getu. ,,Ég held að það sem kannski helst myndi þvælast fyrir okkur væri skjalavarslan. Hún er ennþá svo þvælin vegna þess að skjalasöfn sveitarfélaganna sex sem sameinuðust á síðasta ári, hafa ekki verið sameinuðu enn. Það mun eflaust taka sinn tíma að finna skjöl. Það hefur ekki reynt á þessi lög enn og ég held að upplýsingagjöfin frá sveitarfélaginu geti gengið snurðulaust. Það hefur hún gert að mestu leyti og ég held að það verði ekki nein breyting á því við þessa lagasetningu,” sagði Kristján Þór. Ekki náðist í Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóra Súðavíkur vegna þessa, en eitt mál hefur borist úrskurðar- nefnd um upplýsingamál vegna Súðavíkurhrepps vegna nýju laganna, en í því neitaði hreppurinn fréttastofu ríkisútvarpsins um gögn varðandi málefni hreppsins og Frosta hf. veita ljósrit af skjölum eða afrit af öðrum gögnum. Nefndin er sjálfstæði í störf- um sínum og verður úrskurð- um hennar samkvæmt lögum þessum ekki skotið til ann- arra stjórnvalda. Heimilt er samkvæmt lögun- um að bera synjun stjórnvalds um aðgang að gögnum sam- kvæmt lögum þessum undir úrskurðarnefnd um upplýs- ingamál sem úrskurðar um ágreininginn. Hið sama gildir um synjun stjórnvalds um að

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.