Gisp! - 01.10.1990, Blaðsíða 3

Gisp! - 01.10.1990, Blaðsíða 3
PICASSO (nokkuð þekktur listdúllari i Suður - Evrópu) : Eina eftirsjá lífs míns er að hafa aldrei gert myndasögur." ANDERS AND (danskur rikisborgari af bandariskum uppruna): 'Ah, ah, jeg fár kvalme.' Þegar myndasagan er nefnd dettur sumum kannski í hug fílapenslar og félagsmiöstöövar. Myndasagan gæti verið bráöþroska unglingur í vandræðum meö þreytta foreldra sína og skilningsvana umhverfi. Hann væri jafnvel stundum og sums staöar gerður að vandræðaunglingi eöa þá markhópi í nýrri sölusókn. Svo myndi hann náttúrlega þroskast smátt og smátt og veröa kannski fullorðinn fyrir rest. Nema þá aö innbyggðir erfiðleikar lífsins reyndust honum um megn eða hann lenti í rugli og gerðist eilífðarunglingur (sem er alls ekki eins slæmt og það hljómar því þá slæist hann í fjölmennan hóp öndvegismanna þar sem mikið er trallað). En um þetta vitum við lítið eða eins og Store stygge Ulv sagði: Jeg kommer pludselig i tanker om noget meget vigtigt!” Eina sameiginlega og meðvitaða markmið okkar sem að GISP! stöndum er að blaðið komi út alla vega einu sinni, eða tvisvar en helst reglulega á þriggja mánaða fresti. Einnig að innihald og frágangur sé þannig að forfeður okkar þurfi ekki að skammast sín. Og loks að einhver lesi blaðið. Síðustu árin hefur myndasagan tekið miklum breytingum, bæði vestan hafs og austan og mun halda því áfram. Þeir sem greina í GISP! eitthvað af RAW, Moebius, tæru línunni, pönki, dúkristu eða þjóðlegum fróðleik eru ekki alveg á villigötum hvað varðar áhrifavalda, en gætu um leið leitað miklu víðar. í GISP! munu fyrst og fremst birtast myndasögur en einnig, eftir því sem efni og aðstæður leyfa, greinar erfjalla um þær eða yfirleitt annað sem okkur finnst sériega áhugavekjandi. Við hvetjum þá sem lúra á góðum myndasögum að hafa samband, sérstaklega kvenmenn, því þrátt fyrir að við höfum ekkert á móti drengjamenningu viljum við heidur ekki breytast í rótarí - klúbb. Að lokum skulum við staldra við orð Sigurðar lngólfssonar:"Gisp! er samnefnari yfir allt það sem einhver persóna segir í Andrési Önd, sérstaklega þegar hann kemst í hann krappann. Eins og Jóakim orðaði það svo snilldarlega þegar hann komst að raun um að Fætter Hojben hafði unnið sér fyrir 25-eyringi einhvertímann og Andrés spurði hvort hann hefði eitthvað um málið að segja. Þá sagði onkel Jóakim ekkert sem hægt væri að prenta í barnablaði. Þetta væri alveg prýðilega hægt að orða með "Myndasagan er merkasta 5i„ framlag tuttugustu aldarinnar til heimsmenningarinnar því frásagnarkraftur hennar tengir hana sigrinum sem fólst í listnámi Giottos." gispi 1. MEDIOS REVUELTOS, SUMARHEFTI 1988 (MADRID) 2. ANDERS AND PA GR0NLAND, 3. ÚTGÁFA 1977 (KAUPMANNAHÖFN) 3. ANDERS AND & CO., NR 31,4. ÁGÚST 1964 (KAUPMANNAHÖFN) 4. KVIKSJÁ, 11. SEPTEMBER 1990 RÍKISÚTVARPIÐ (REYKJAVlK) 5. MEDIOS REVUELTONS, SUMARHEFT11988 (MADRID)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Gisp!

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.