Kosningablað A-listans - 29.01.1934, Síða 2

Kosningablað A-listans - 29.01.1934, Síða 2
það óréttláta kröfu Alþingis, að fyrir ríkisábyrgð þeirri, er samþ. hefir verið til Síldarbræðslu sé krafist baktryggingar bæjarsjóðs, og þá sérstakiega af þeim ástæð- um, að samtímis er ríkið að kaupa og byggja Síidarbræðslu í öðrum landshlutum, án nokkurs framlags eða ábyrgðar frá bæja- eða sveitarfélögum. Þá skal jeg líka leyfa mjer, að minna á, aö þegar Síidarbræðslu- mállð var fyrst tekið til meöfeiö- ar hjer á sl. vori, þá var það eftir ósk þingmanns kjördæmisins, gert á sameiginlegum fundi Atvinnu- rekendafjelagsins og Verslunar- mannafjelagsins, en í þessum fje- lögum er mikill meiri hluti Sjálf- stæðismenn, og var það nefnd úr þessum félögum sem starfaði að öllum undirbúningi málsins hér heima, Þar til á stofnfundi. — Til gamans skal ég lofa fundar- mönnum að heyra nöfn þeirra manna sem nefndina skipuðu, en það voru þeir: Eyjólfur Jónsson, Sigurður Arngrímsson, Benidikt Jónasson, Sigurður I. Quðmunds- son, og Theodór Blöndal. — Efsti maður C-listans talaði um það á fundinum þann 18. þ. m. að hann teldi Garðarshúsin mjög heppileg — minnir mig hann segja — til uppsáturs fyrir smá- bátaútgerðina hér, (trillurnar). — Ég er ekki á sama máli um þetta, þ. e. a. segja, aö ég tel það nauð- synlegt fyrir smáútgerðina, að þar sem henni verður ætlað uppsátur, að þar sé séð svo um, að nægi- legt landrými sé til fiskþurkunar en það fæ ég ekki séð að sé Garðarshúslóðinni eða í grend við hana. ( rafmagnsmálum bæjarins höfum við Sjálfstæðismenn þá ákveðnu stefnu, að aö því tak- marki beri að stefna, að nota svo vatnsaflið hér sem er óþrjótandi, að sem fyrst veröi hægt aö bjóða bæjarbúum svo ódýrt rafurmagn til Ijósa, suðu og hitunar, að þar þoli kolin engan samanburð. Við munum því beita okkur fyrir því, aö þetta mál verði tek- ið til athugunar svo fljótt sem verða má. Um brunavarnir bæjarins hefði ég sérstaka ástæðu til að tala, þar sem ég var á síðastliönu vori skipaður af bæjarstjórninni sem brunaliðsstjóri. Brunaliðsmálin hafa að vísu vcrið til athugunar hjá bæjarstjórn- inni og eru víst allir bæjarstjórn- armennimir á eitt sáttir um það, að nauðsynlegt sé að hefjast skjótra aögerða í þessu máli. — Það er líka mála sannast, að brunamál- um kaupstaöarins er þann veg komið, að til stórrar hneisu er fyrir bæjarfélagið. — Allur útbún- aður og áhöld svo ómerkileg, að þaö mætti heita hreinasta krafta- verk ef hægt væri að slökkva með þeim, ef eldur kæmi upp í með- alstóru hænsnahúsi. — Þótt málið sé nú komið á nokkurn rekspöl, þá er ekki hægt annað aö segja, en það er stór- vítavert af bæjarstjórninni, og að sjálfsögðu fyrst og fremst af meirihluta hennar, hve afskiftalaus hún hefir verið í málinu. Ég skal til að rökstyöja þetta enn betur, benda á, að á fund bæjarstjórnarinnar þann 23. janú ar 1930 var lagt fram bréf frá vegamálastjóra dags 7. desem1 er 1929, þar sem hann tilkynnir, að eftirlitsmaður Brunabótafélagsins „Storebrand", sem er aðal við skiftafélag Brunabótafélsgs íslands, hafi tilkynt ser að öll brunatæki bæjarins sé í megnasta ólagi og skorar hann á bæjarstjórnina, að taka þetta mál til sk ótrar athug- unar. Jafnframt tilkynti vegamála- stjóri, aö ef nauðsynlegustu lag. færingar yrðu gerðar, þá lækkaö iögjaldiö um 15%. Þessi brunatæki sem voru að áliti umboðsmanns brunabótafé- lagsins „Storebrand" ónothæf 1929 eru þau sömu, sem hér eru enn að ég ekki tali um að á Vest- dalseyri hefir ekki verið séð fyrir svo miklu sem vatnsfötu til bruna- varna af bæjarins hálfu. Þá tel ég óhjákvæmilegt að bæjarstjórn sú, sem kosin verður, verði að taka fræðslumál kaup staðarins til athugunar. Ég tel fræðslumálum bæjarins í ýmsu ábótavant, og verð ég þar að skella skuldinni á meirihluta bæjarstjórnar, Framsóknar- og jafnaö&rmenn, því eins og allir vita er skólanefnd kosin af bæjar stjórn, og verður því meirihluta bæjarstjórnarinnar kent um þær misfellur sem á fræðslumálum kunna að vera. Það er nú þannig höguru hátt- að hér á Seyðisfirði, bæöi hvað efni og annað snertir, aö flestir hafa engin tök á að kosta börn sín til mentunar í öðrum skólum, og verður því sú undirstöðument- un, sem börn og unglingar fá hér við barnaskólann einasta vega- nesti þeirra út í lffsbaráttuna. — En þá er að athuga hvort þessi mentun sé nægileg, og hvort skólinn hér uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru í skólamálum þessa lands. — Ég fyrir mitt.Ieyti tel að svo sé ekki. Ég er því fastráðinn í því, ef mér gefst tækifæri til þess, aö sitja sem fulltrúi í bæjarstjórn þessa kaupstaöar, aö beita áhrif- um mínum til þess, aö koma betra og fullkomnara fyrírkomu- lagi á fræðslumál bæjarins. — Ég geng þess ekki dulinn, að þetta er hið mesta vanda verk, og verð- ur að sjálfsögðu misjafnlega tekið, en ég vænti að það verði eigi vanþakkaö af aðstandendum barna og unglinga. Fulltrúi Kommunista, Þorkell Björnsson, gerði þá kröfu hér á úndinum þann 18. þ. m. að upp- liituð sundlaug yrði bygð í sam- bandi við barnaskólann. Ég skal benda þessum Komm- unista á það, að þessi krafa þeirra er, eins og svo margar aðrar kröfur þeirra, ekki neitt nýtt mál, sem þeir hafa fundið upp. íþróttafélagið „Huginn" hefir mörg undanfarln ár barist fyrir þessu máli, og hefir einu sinni komist svo vel á veg með það að aðeins stóð á 2000 króna á- byrgð bæjarstjórnarinnar fyrir bráðabyrgðarláni. Um nauðsyn þessa máls þar ekki að ræða, ailir vita hve afar þýðingarmikið sundnámiö er, og vart mun sá maður hér í þessu bæjarfélagi, sem ekki veitir málinu - tt fulla fylgi, því svo sorglegir al- !>rðir hafa hér gerst, sem vekja menn til umhugsunar um hve sundkunnátta er nauðsynleg og sjálfsögð. íþróttaféiagið „Huginnw mun á- reiðanlega ekki skilja viö þetta mál fyr en það er til lykta leitt, >g hefi ég sérstaka ánægju af því, að mér gefst tækifæri til þess, að styðja að fran.gar.g; málsins sem bæjarfulltrúi, samtímis þvf, sem ég mun að sjálfsögðu, hér eftir sem hingað til, vinna í félagsskap allra þeirra mörgu féiaga i Hug inn sem áhuga hafa á málinu. Ég hefi nú hér á undan bent á nokkur mál sem munu koma til athugunar fyiir væntanlega bæjar- stjórn, og mætti að sjálfsögðu á mörg fleiri benda ef tími væri til. — Áður en ég lýk máli mínu get ég ekki látiö vera aö beina nokkr- um orðum til Vestdalseyringa sérstaklega, ef einhverjir eru hér. Ég hygg að með sanni megi segja, aö með kjörfylgi ykkar hafið þið gefið meirihluta bæjar- stjórnarinnar, Framsóknar- og jafnaðarmönnum tækifæri til þess að sýna sína ágætu stjórnarhæfi- leika, undanfarin ár, já sennilega alt frá árinu 1920. En hvað hafa )á þessir menu gert fyrir ykkur? lafa þeir yfirleitt munað eftir því, að þið væruð hluti af bænum, nema þegar þeir hafa þurft á kjörfylgi ykkar að halda. Fyrir atbeina eins Sjálfslæðis- mannsins í bæjarstjérn, Sigurðar Arngrímssonar, og flokksmanna hans, hefir verið ák eðið að láta ransaka og gera ár 'un um kostn- að við aö leiða ra agn til ykkar. Við Sjálfstæðisme teljum sjálf- sagt aö þetta k verði fram- kvæmt svo fljótt m verða má. Þá teljum við ,a sjálfsagt að athugað verði og áætlun gerö um kostnað við vatnsveitu hjá ykkur sem við teljum að eigi að koma svo fljótt sem efnf og ástæður bæjarféiagsins leyfa Við þessar kosni.igar haffð þiO tækifæri til að koma að ykkar eigin fulltrú 5 manni A-listans Benedikt Jónasson, sam áreiðan- lega mun gæta hagsmuna ykkar í hvívetna. Þó að þið gafið Benedikt Jónas- syn; utkvæði ykkar, þá eru fyrver- andi fulltrúar ykkar þeir Gunnl., Karl og Emil vissir, og ennfrem- ur efsti maður C-listans Haraldur Guðmundsson. Ég v’l því gefa ykkur þetta ráð, lofið ium Guðmundi Beaedikts- syni í) hvfla sig eftir alt stritið fyrir > <ur, og takið þið Bene- dikt J nasson í hans staö, en það j ið þið með því að kjósa A-Iistenn. — Að endingu skal tekið undir það sem Jafnaðarmaðurinn sagði þann 20. þ. m. að „mörg verk- efni eifið og vandasöm bíða bæj- arstjórnar þeirrar, sem kosin verður". I1eir sem treysta jafnaðarmönn- um og kommunistum best til að eysa þau, kjósa B og C-lista „og taka sér Eskifjörð til fyiir- myndar." Það voru nefnilega Framsókn- armenn og jafnaðarmenn og <ommunistar, sem í sameiningu settu Eskifjörð á hausinn. Áhugamál Vestdalseyringa, Á þessu tímamótum, þegar velja um allar framkvæmdir og fram- nýja bæjarstjórn fyrir Seyðis- fjarðarkaupstað, er ekki óviðeig- andi að minst sé eitthvað á þau verkefni er á komandi árum mur.i liggja fyrir bæjarstjórn til úrlausn- ar. Þetta hefir og verið gjört að nokkru leyti, af efstu mönnum framboðslistanna, á hinum tveim- ur umræðufundum um bæjarmál, sem haldnir hafa verið hér í bæn- um undanfarna daga. Þó er það einn liður bæjarmálanna, sem aðeins lftillega hefir verið minnst, á þessum fundum, og það eru áhugamál Vestdalseyringa. Eins og öllum er kunnugt, þá er Vest- dalseyrin einn hluti bæjarins og greiðir að sjálfsögðu, sem slíkur, öll gjöld til þarfa bæjarreksturs- ins, eins og aðrir partar bæjarins eftir efnum og ástæðum. Hltt vita Iíka allir, að þessi partur bæjar- ins hefir orðið herfilega útundan farir frá öndverðu, af hálfu bæjar- félagsins, og má þar sérstakle a minnast á vatnsveitu og rafvei u, auk margs annars er minnu má'i skiftir. Vatnsveita bæjarins er nú oröin 30 ára gömul og rafveitan 20 ára, og virðist þvf vera fylli- lega kominn tími til þess að at- huga hvort ékki mætti tr.eð góöu móti veita þessum bæjarhluta þessi hlunnindi. Það þarf ekkert að lýsa því hér, hver þægindi eru að báðum þessum framkvæmdum, þvl það vita allir, bæði þeii sem hafa þau, og ekki síðui hinir.sem hafa farið þeirra á mÞ en við- víkjandi vatnsveitunni má einnig geta þess, hve miklaþýðingu hún hefir gagnvart brunavörnum, sem aldrei hafa verið neinar á Vest- dalseyri, frá bæj^rii s hálfu, og sem þó allir vita aö er gagnstastt öllum lögum. því sambandi má

x

Kosningablað A-listans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað A-listans
https://timarit.is/publication/1530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.