Holtsbúinn - 24.06.1934, Side 2

Holtsbúinn - 24.06.1934, Side 2
2 Holtsbúinn munamál, sem alþýðan þarf að berjast fyrir og það eirta, sem hann lofar alþýðunni, er að standa alltaf í broddi fylking- ar í baráttu hennar. Yið bendum alþýðunni hér á Holtinu og í Skerjafirði á eftirfarandi mál, sem hún þarf að sameinast um og knýja í framkvæmd: 1. Að hinar mjög ófull- komnu götur, sérstaklega a Holtinu, verði þegar fullgerð- ar, og að vatn veröi leitt að að öllum húsum á kostnað bæjarins og sömnleiðis frá- rennsli. 2. Að byggðir verði barna- leikvellir. 3. Að atvinnuleysingjaruir á þessum stöðum fái vinnu við þessar framkvæmdir. 4. Að skólabörn fái ókeyp- is ferðir til og frá skólunum með strætisvögnunum. Verkafólk! Þið hafið í gegn um pöntunarfélögin fundið hverju við getum áorkað með samtök- um í því að bæta lífskjör okk- ar, í þessu hafið þið einnig fundið forystu kommúnistanna og þeirra óeigingjarna starf. Á sama hátt verðum við að sam- einast um þessi hagsmunamál okkar og ef við gerum það þá er sigurinn vís. Yfirstéttin veit það ósköp vel að Kommúnistaflokkurinn einn skipuleggur baráttu verka- lýðsins, þessvegna liræðist hún ekkert eins mikið og vaxandi fylgi hans. Yið kjósum Komm- únistaflokkinn einmitt vegna þess, að hann er okkar flokk- ur. Við kjósuin öll D-listann. Við sendum fél. Brynjólf Bjarnason á þing en hindrum kosningu fasistans Sigurðar Kristjánssonar —- hindrum meirihluta íhaldsins á þingi. Er gengislækkun yfirvofandi. Gengislækkun þýðirallsherjar kauplækkun fyrir verkalýðinn. Kommúnistaflokkurinn hefir sent þá fyrirspurn til Alþýðu- flokksins hvort hann vilji á- samt KFÍ og Verkalýðssam- bandi Norðurlands hindra all- ar tilraunir til gengislækkunar með allsherjarverkfalli. Ef Alþýðuflokkurinn ekki svarar fyrir kosningar (eins og um er beðið) hlýtur allt gasp- ur um að liann sé á móti geng- islækkun að vera kosninga- blekkingar og ekkert annað. Klofningslygar borgaranna. Út af þvættingi borgaraflokk- anna um »innbyrðis valdabar- áttu« í KFÍ, er rétt að taka þetta fram: KFl hefir háð bar- áttu gegn röngum skoðunum og starfsaðferðum innnan sinna vébanda. Bardagaaðferðir flokksins og SUK gegn hinum röngu skoð- unum bafa að ýmsu leyti ver- ið rangar, sem hefur gefið andstæðingum flokksins frekari átyllu til óliróðurssagna um flokkinn og einstaka félaga, sbr. skeytafölsun Alþýðubl., að KFÍ sé »í upplausn», Hjalti Árnason sé »keyptur af íhaldinu« o.s.frv. Hinsvegar hafa ýmsir félagar haft fél. Einar Olgeirsson fyrir rangri sök, en hann nýtur fulls trausts flokksstjórnarinnar. Ábyrgðarm. E. S. — Prentsmiðjan Dögun.

x

Holtsbúinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Holtsbúinn
https://timarit.is/publication/1532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.