Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.1998, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 13.05.1998, Blaðsíða 1
Blindur fær sýn Bæjarins besta Miðvikudagur 13. maí 1998 • 19. tbl. • 15. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Tignir gestir í heimsókn Margrét Þórhildur Danadrottning sæk- ir Vestfirði heim Á morgun, fimmtudaginn 14. maí, er ráðgert að Margrét Þórhildur Danadrottning og eiginmaður hennar, Hinrik prins, komi til Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur í boði for- setahjónanna, þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Guð- rúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Ráðgert er að flogið verði með hina tignu gesti í Fokker- vél Landhelgisgæslunnar og lent á Þingeyrarflugvelli kl. 14:15. Þar verður tekið á móti Danadrottningu og fylgdarliði hennar og haldið til Þingeyr- arkirkju og komið þangað kl. 14:30 og kirkjan skoðuð undir leiðsögn sóknarprests, sr. Guðrúnar Eddu Gunnarsdótt- ur. Síðan verður haldið að Holti í Önundarfirði og komið þangað kl. 15:20. Þar verður kirkjan skoðuð undir leiðsögn sr. Gunnars Björnssonar. Þaðan verður haldið að minn- isvarðanum við Flateyrar- kirkju og ráðgerður komutími þar er kl. 16:00. Því næst verður haldið til Ísafjarðar og stoppað á Silfurtorgi kl. 16:40. Þaðan verður haldið til Bol- ungarvíkur og komið að Ós- vör kl. 17:10. Frá Bolungarvík verður að nýju haldið til Ísafjarðar og komið að Turnhúsinu í Neðstakaupstað kl. 19:00. Þar verða hús skoðuð og snæddur kvöldverður. Að honum lokn- um halda gestirnir á Ísafjarð- arflugvöll og er brottför þeirra frá Ísafirði áætluð kl. 21:15. ,,Í för með Margréti Þórhildi Danadrottningu verður eigin- maður hennar, Hinrik prins, auk forsetahjónanna. Þótt ekki sé um opinbera heimsókn að ræða eru allir íbúar Ísafjarð- arbæjar og Bolungarvíkur hvattir til að taka vel á móti hinum tignu gestum og safn- ast saman á þeim stöðum, þar sem stanzað verður. Það er ekki á hverjum degi að þjóð- höfðingjar erlendra ríkja heið- ri okkur Vestfirðinga með heimsóknum. Danir eru ein helzta vinaþjóð Íslendinga og Ísfirðingar og Vestfirðingar eiga mikil söguleg tengsl við Danmörku og Dani,” segir í fréttatilkynningu frá sýslu- manninum á Ísafirði, Ólafi Helga Kjartanssyni, vegna komu hinna tignu gesta. Þess má að lokum geta að fimmtudaginn 14. maí er afmælisdagur forseta Íslands, hr. Ólafs Ragnars Grímssonar. Hornvík Þyrla sótti slasað- an vélsleðamann Þyrla landhelgisgæslunnar sótti slasaðan vélsleðamann í Hornvík á Hornströndum síðdegis á laugardag. Maðurinn var ásamt tveim- ur öðrum vélsleðamönnum á þremur sleðum og var á leið niður í víkina er hann rann til í skara og kastaðist af sleð- anum. Hann var fluttur til Ísa- fjarðar og þaðan með sjúkra- flugi til Reykjavíkur. Hann mun hafa hlotið höfuðmeiðsl. -sjá viðtal við hjónin Önnu Kristínu Hauksdóttur og Óttar Jónsson í miðopnu

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.