Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.1998, Side 2

Bæjarins besta - 13.05.1998, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Netfang prentsmiðju: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Netfang ritstjórnar: bb@snerpa.is Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Ísafjarðarkirkja Pólskur gítarleikari Sunnukórinn Tvennir tónleikar Junior Chamber Pólitískur bíódagur Pólski gítarleikarinn Irenusz Strachocki heldur tónleika í Ísafjarðarkirkju nk., mánudagskvöld 18. maí. Á efnis- skránni eru verk eftir Dowland, Bach, Fernando Sor, Villa Lobos og Albeniz. Tónleikarnir eru aukatónleikar á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar. Aðgangseyrir er kr. 1.000 en ókeypis er fyrir skólafólk. Sunnukórinn á Ísafirði heldur tvenna tónleika í næstu viku, í Ísafjarðarkirkju og á Þingeyri. Nánar verður greint frá tónleikunum í næsta blaði, en óhætt er að fullyrða að tónleikarnir verða með fjölbreyttasta móti og ætti því enginn unnandi góðs söngs að láta þá fram hjá sér fara. Junior Chamber Vestfjarða hefur ákveðið að efna til opins framboðsfundar í Ísafjarðarbíói og hefst hann kl. 16 á laugardag. Þar munu fulltrúar flokkanna þriggja sem bjóða fram í Ísafjarðarbæ flytja framsögu, svara fyrir- spurnum og fleira. Junior Chamber hvetur alla kjósendur í Ísafjarðarbæ til að fjölmenna á fundinn. Kærkomnir gestir Leiðari Margrét Þórhildur Dana- drottning, Hinrik prins, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og frú Guðrún Katrín, koma í heimsókn til Vestfjarða á morgun, 14. maí, á afmælisdegi forsetans. Það er vel til fundið hjá forseta Íslands að bjóða þjóðhöfðingja Dana vestur á afmælisdegi sínum. Með því áréttar forsetinn ræktarsemi við bernskustöðvarnar á Ísafirði og á Þingeyri. Um leið á hann þess kost að gefa Margréti Þórhildi innsýn í daglegt líf þess fólks sem býr á þeim stöðum þar sem rætur hans liggja. Vestfirðingum er í senn mikill heiður og sönn ánægja að þessari góðu heimsókn. Kóngur vill sigla en byr ræður, segir gamalt máltæki. Vonandi verða veðurguðirnir hliðhollir forseta vorum og Danadrottingu svo þau geti notið heimsóknarinnar til Vestfjarða sem ríkulegast. Forseti Íslands, Margrét Þórhildur Danadrottning og fylgdarlið eru boðin velkomin til Vestfjarða um leið og þökkuð er sú velvild í garð íbúa þessa landssvæðis, sem í heimsókninni felst. Aldarminning ,,Hér hefur söguna af Einari Guðfinnssyni, manninum, sem hófst af sjálfum sér úr fátækt til mikilla eigna og ríkis í því byggðarlagi, þar sem hann haslaði sér völl, réði síðan þar án ráðríkis, gætti eigna sinna og jók þær án yfirgangs, barðist hart og sigraði án þess að aðrir töpuðu og varðveitti í róti mikilla umsvifa og harðrar lífsbaráttu, gott upplag sitt og hjartalag.” Svo segir í upphafi Einars sögu Guðfinnssonar, mannsins sem stærstan þátt átti í því að breyta Bolungarvík í nútímalegan kaupstað úr litlu, einangruðu sjávarþorpi. N.k.sunnudag eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Bolvíkingar ætla að minnast þessara tímamóta með ýmsu móti og hyggjast reisa þessum fyrrum helsta máttarstólpa byggðarlagsins veglegan minnisvarða. Fyrirtæki Einars Guðfinnssonar heyra sögunni til. EG eru ekki lengur einkennisstafir Bolungarvíkur. Maðurinn á bak við ævintýrið er allur. Það breytir því ekki að svo lengi sem byggð helst í Bolungarvík mun nafn Einars Guðfinnssonar lifa meðal íbúanna. -s.h. Frá þinginu sem haldið var í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði um helgina. Ársþing Körfuknattleikssambands Íslands Haldið í fyrsta sinn á Ísafirði Ársþing Körfuknattleiks- sambands Íslands var haldið á Ísafirði um síðustu helgi. Þingið, sem haldið í Stjórn- sýsluhúsinu, var hið 38. í röð- inni og það fyrsta sem haldið hefur verið á Ísafirði. Fjölmargir gestir mættu til bæjarins vegna þessa, bæði þingfulltrúar og gestir auk þess sem landslið Íslands og Noregs komu og léku lands- leik í íþróttahúsinu á Torfnesi á sunnudagskvöld. Sá leikur reyndist fremur slakur af hálfu beggja liða og lyktaði honum með sigri Íslendinga 65-53. Liðin léku að nýju í Laugar- dalshöll á mánudag og sigr- uðu Íslendingar þá 75-73. Friðrik Stefánsson í harðri baráttu við norsku leikmennina í leiknum á sunnudagskvöld. Á mánudagskvöld var dregið um töfluröð í úrvals- deildinni í körfuknattleik fyrir næsta keppnistímabil. Í fyrstu umferð mætast eftirtalin lið: Njarðvík- Keflavík, Þór-KR, Snæfell- Tindastóll, KFÍ-Haukar, Skallagrímur-Grindavík og Valur-ÍA. Gert er ráð fyrir að Íslandsmótið hefjist í byrjun október. KFÍ mætir Haukum Körfuknattleikur Áður en þingið hófst var þingfulltrúum boðið að þiggja létt- ar veitingar í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað í boði Básafells.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.