Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.1998, Síða 3

Bæjarins besta - 13.05.1998, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 3 Til sölu Til sölu er Sólbaðsstofan Hjá Jónu í Bol- ungarvík. Upplýsingar í símum 456 7335 og 456 7079. Félagsfundur Karladeild SVFÍ Ísafirði boðar til félags- fundar í Sigurðarbúð sunnudaginn 17. maí kl. 20:00. Fundarefni: Húsamál og sameining. Stjórnin. Jóna Benediktsdóttir og Jónína Emilsdóttir skrifar Einsetning skóla - lykilatriði Samkvæmt lögum á að vera búið að einsetja alla grunnskóla á Íslandi árið 2002. Nú í haust verða allir grunnskólar í Ísafjarðarbæ einsetnir. Einsetningin er kostnaðarsöm og því er ekki að furða þótt menn velti fyrir sér hvort hún sé nauðsynleg og hvað muni vinnast með slíkri breytingu. En fyrir hverja verður þessi breyting til batnaðar. Fyrir nemendur því að - allir nemendur hefja skóla á sama tíma dagsins, systkini verða þá öll á sama tíma. - aðalstarfstíminn verður frá morgni fram á miðjan dag, þegar einbeitingin er sem best og hugurinn frískastur. Þetta er einn besti kosturinn við einsetninguna. - frjáls tími til leikja og heima- náms nýtist betur þegar allir verða búnir á sama tíma í skól- anum. Fyrir foreldra því að - börnin í fjölskyldunni verða öll á sama tíma í skólanum, þar sem foreldrar eru útivinn- andi fara allir til starfa á sama tíma. - boðið verður upp á lengda viðveru fyrir börn í 1.-4. bekk. Þessi börn munu ekki þurfa að vera ein heima á morgnana eins og nú hefur gjarnan verið eina úrræðið. - Með því að kennslu ljúki á svipuðum tíma hjá öllum kennurum ætti að vera auð- veldara fyrir foreldra að ná sambandi við kennara. Fyrir kennara því að - allir sinna kennslu á sama tíma dagsins þannig að sam- starf utan kennslustunda verð- ur mun auðveldara en nú er. - hver bekkur mun hafa sína skólastofu einn, það breytir miklu varðandi skipulag skólastarfsins. - nægur tími verður fyrir kennarafundi þar sem allir kennarar skólans koma sam- an. Eins og sjá má eru kostirnir við einsetningu mjög margir. Aukið öryggi skapast fyrir yngri börnin í samfélaginu og námshæfni þeirra fær að njóta sín betur. Álag á foreldra minnkar við að vita af börnunum á örugg- um stað meðan þeir eru í vinnu. Auknir samstarfsmöguleik- ar hjá kennurum stuðla að meiri fagmennsku í skóla- starfinu. Jóna Benediktsdóttir, Jónína Ólöf Emilsdóttir. Þórunn Gestsdóttir, verkefnisstjóri skrifar Konur og karlar nýti sér lagalegt jafnrétti Markmið jafnréttisáætlunar Ísafjarðarbæjar 1997-2002 er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Ísafjarðar- bæ. Jafnframt er markmið að bæði konur og karlar nýti sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar í atvinnulífinu, innan fjölskyldunnar, í félagslífi og til menntunar. Þetta er markmið nýsam- þykktrar jafnréttisáætlunar Ísafjarðarbæjar sem gefin hef- ur verið út og verður dreift í hvert hús í sveitarfélaginu á næstu dögum. Jafnréttisáætl- un Ísafjarðarbæjar tekur til stjórnkerfis sveitarfélagsins og starfsmanna bæjarins ann- ars vegar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem veitt er hjá stofnunum hans. Meðal þess sem lesa má í áætluninni er að hvert fyrir- tæki og stofnun, nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins skulu gera starfsáætlun í jafn- réttismálum. Um framkvæmdir og stöðu mála skal gerð grein fyrir í lok hvers árs. Karlar í föstu starfi hjá Ísafjarðarbæ skulu eftir fæð- ingu barna þeirra, njóta 2ja vikna fæðingarorlofs á fullum launum. Þá er því beint til skólayfirvalda og forstöðu- manna uppeldisstofnana að vinna að jafnri stöðu kynjanna og veita börnum og ungling- um hvatningu til að rækta sérkenni sín og jákvæð sam- skipti kynjanna. Framkvæmdaáætlun fylgir jafnréttisáætluninni og þar má sjá nýmæli sem eru um veit- ingu jafnréttisviðurkenningar Ísafjarðarbæjar í fyrsta sinn árið 1999. Árið 2000 skal framkvæmd viðhorfskönnun til jafnréttismála meðal íbúa Ísafjarðarbæjar. Jafnréttisáætlunin er gefin út af félagsmálanefnd Ísa- fjarðarbæjar, unnin af starfs- hópi er sú nefnd skipaði á síðasta ári. Í forsvari fyrir starfshópnum er Jónína Ólöf Emilsdóttir, aðstoðarskóla- stjóri og er hún jafnframt ábyrgðarmaður útgáfu áætl- unarinnar. -Þórunn Gestsdóttir, verkefnisstjóri. Mæður nemenda í 7.-10. bekkjum Grunnskóla Ísafjarðar tóku þátt í grillveislunni sem haldin var á lóð skólans í blíðunni á föstudag. Leiðrétting Í frétt í síðasta blaði af árgangi 1951 var ranglega sagt frá tveimur atriðum. Í fyrsta lagi fermdist árgangurinn 2. maí en ekki 1. maí og í öðru lagi heim- sóttu þau Halldór Mikka- elsson og Guðrúnu Ósk- arsdóttur í Neðri-Breiða- dal en ekki Ásgeir Mikka- elsson og konu hans í Fremri-Breiðadal. Þetta leiðréttis hér með. Í blíðunni á föstudag bauð Grunnskólinn á Ísafirði nemendum 7.- 10. bekkjar grunn- skólana í Ísafjarðarbæ til vormóts. Þetta var í annað sinn sem boðið er til slíks móts í Ísafjarðarbæ á vegum skólans og er markmiðið að fá nem- endur og kennara til að líta á hið nýja bæjarfélag sem eina heild, vinna á fordómum og ,,hreppa- ríg" og gera sér glaðan dag. Á vormótinu í fyrra var keppt í ýmsum íþrótta- greinum með skoplegri útfærslu en í ár var farið í ratleik víðsvegar um Eyrina á Ísafirði. Um hádegisbil söfnuðust síðan allir nemendur saman á lóð grunn- skólans og þáðu grill- aðar pylsur og drykki í boði foreldrafélags skólans. Grillveisla og ratleikur Grunnskólinn á Ísafirði Og feðurnir mættu líka og grilluðu af mikilli snilld.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.