Bæjarins besta - 13.05.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 5
Guðrún Hólmsteinsdóttir, annar maður á lista Framsóknarflokks skrifar
Lítum björtum augum á framtíð Ísafjarðarbæjar
Ágætu bæjarbúar.
Senn líður að kosningum.
Eflaust eru margir sem velta
því fyrir sér hver þessi unga
kona í 2. sæti lista framsóknar-
flokksins er og hvaða erindi
hún telji sig eiga í bæjarstjórn.
Ég fæddist í Reykjavík 13.
maí 1970. Ég ólst upp í Háa-
leitishverfinu og er því Fram-
ari. Ég er stúdent frá Verslun-
arskóla Íslands. Lauk námi í
lögfræði við Háskóla Íslands
vorið 1996.
Þegar Guðni Jóhannesson
talaði fyrst við mig um það
hvort ég væri til í að koma í
framboð fyrir Framsóknar-
flokkinn þá leist mér nú ekki
mjög vel á það. Ég hugsaði
málið í nokkurn tíma og ákvað
svo að slá til þar sem ég taldi
Guðrún Hólmsteinsdóttir.
að ég hefði ýmsar hugmyndir
um stjórn bæjarins. Ég taldi
að ég gæti gert eitthvað gott
fyrir Ísafjarðarbæ.
Ég flutti til Ísafjarðar haust-
ið 1994. Frá þeim tíma til
vorsins 1996 stundaði ég mitt
nám að mestum hluta hér á
Ísafirði. Með þessa reynslu
veit ég að það er möguleiki að
stunda fjarnám einkum þar
sem aðgengi að upplýsingar-
tækninni er orðin almennarri
í dag. Fjarnám skiptir miklu
máli fyrir byggðalag eins og
Ísafjarðarbæ. Ég mun því
beita mér fyrir því að íbúum
Ísafjarðarbæjar standi til boða
bestu hugsanlegu aðstæður til
þess að stunda fjarnám.
Ný fyrirtæki eru að skjóta
upp kollinum hér eins og ann-
arsstaðar á landinu. Ég tel að
ný bæjarstjórn eigi að beita
sér fyrir því að gera Ísafjarð-
arbæ að aðlaðandi stað til að
hefja atvinnurekstur í, ásamt
því sem við verðum að hlúa
að þeim fyrirtækjum sem fyrir
eru. Með því tel ég að við
ættum að geta fjölgað fólki
hér á næstu árum. Það geta
ekki allir búið á stór Reykja-
víkursvæðinu. Hið opinbera
hefur verið að flytja ríkisfyrir-
tæki út á land og ætlar sér að
gera meira af því. Stjórn bæj-
arfélagsins verður að tryggja
okkur væna sneið af þeirri
köku.
Einnig þarf að taka fjármál
bæjarfélagsins föstum tökum.
Ég vil að staðið verði við þær
rekstrar-og fjárfestingaáætl-
ef við hugum að því að með
nýju fólki aukast tekjur bæjar-
sjóðs.
Stjórnsýslan er alltaf að
verða víðáttumeiri. Haldin eru
námskeið hjá Háskóla Íslands
í opinberri stjórnsýslu þannig
að yfirmenn stofnana og aðrir
starfsmenn stjórnsýslunnar
verði betri starfsmenn. Ég er
nú ekki að mælast til þess að
öll bæjarstjórnin fari á slík
námskeið. Bæjarstjórnin á
samt sem áður að vera leið-
andi með virka stjórnsýslu
þannig að allir íbúar séu sáttir
við störf hennar og bæjarins í
heild. Ég mun því beita mér
fyrir því að stjórnsýslan verði
sem best hér í Ísafjarðarbæ
og að öll þjónusta bæjarfé-
lagsins í heild verði aukin og
gerð skilvirkari. Ég tel að unnt
sé að gera þetta án þess að
þurfi að koma til verulegrar
aukningar á rekstarkostnaði.
Við getum alltaf gert betur.
„Íbúar Ísafjarðarbæjar, við
þurfum að standa saman og
líta björtum augum á framtíð
bæjarfélagsins ef við ætlum
að búa hérna áfram. Við upp-
byggingu bæjarfélags skiptir
bjartsýni og áhugi fólksins á
staðnum miklu máli. Kjósið
því rétt í kosningunum 23.
maí nk. þannig að við stönd-
um uppi eftir kosningar með
góða bæjarstjórn.“
Guðrún Hólmsteinsdóttir, 2.
maður á lista Framsóknar-
flokksins í Ísafjarðarbæ.
anir sem gerðar eru. Þá tel ég
að fjárhagur bæjarsjóðs sé
ekki í stakk búinn fyrir miklar
framkvæmdir á næsta kjör-
tímabili. Í staðin eigum við
að laða fólk til bæjarins. Það
þarf ekki að kosta svo mikið
Kolbrún Halldórsdóttir bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæjar fyrir Sjálfstæðisflokk skrifar
Fjöðrin sem varð
að þremur hænum
Kolbrún Halldórsdóttir.
Ég nota hér sömu fyrirsögn
og oddviti okkar sjálfstæðis-
manna Þorsteinn Jóhannesson
viðhafði í BB þann 29.apríl
s.l. þar sem hann á væntan-
lega við að hann sem fyrrum
leiðtogi og í baráttusætinu sé
skrautfjöður flokksins og
frambjóðendurnir í þremur
efstu sætum þá hænurnar
þrjár.
Það er rétt hjá Þorsteini að
eitt helsta mál fyrrum meiri-
hluta var skólamál og var
unnið ötullega að þeim mála-
flokki sem og öðrum málum
s.s. uppbyggingu Safnahúss-
ins, nýr leikskóli, endurnýjun
miðbæjar á Ísafirði, lokið
byggingu við íþróttahús á
Þingeyri, lokið við gerð aðal-
og deiliskipulag á Flateyri,
ásamt gerð varnagarðar o.fl.
o.fl. hér er ekki verið að tala
um eitt stórverkefni heldur
fjöldan allan. Það má vel vera
að framkvæmdagleði sjálf-
stæðismanna undanfarin átta
ár við uppbyggingu Funa og
Þjónustudeildar á árunum
1991-1994 og svo áður taldar
framkvæmdir á árunum 1994-
1997, séu að kollkeyra fjárhag
bæjarfélagsins, eins og odd-
viti sjálfstæðismanna lætur
liggja að nú fyrir kosningar.
Sá og hinn sami og hljópst á
brott frá vandanum í nóvem-
ber s.l. þegar ekki var fallist á
óútfylltan víxil við breytingar
á gömlu fiskvinnsluhúsi fyrir
skólahúsnæði. Fjárhagsstaða
bæjarsjóðs hefur ekki breyst
neitt til þess verra á þeim sex
mánuðum frá því að þið hlup-
ust undan merkjum við stjórn
bæjarfélagsins.
Ísfirðingar þurfa fólk sem
treystir sér til þeirra verka sem
framundan eru, en ekki fólk
sem gefst upp við mótbyr.
Skógurinn og trén
Það hefur ekki reynst okkur
vel í íslenskri náttúru að hafa
eitt stakt tré á berangri í norðan
garra, þannig að það eru rök í
sjálfum sér að taka ákvörðun
um að færa unglingastig skól-
ans upp á Torfnes, þar sem
skortur er á húsnæði fyrir
skólahaldið á Eyrinni. Við
höfum búið við lélega aðstöðu
til handa nemendum og kenn-
urum á núverandi stað lengi,
þar er lóðarými ekki fyrir
hendi né heldur bifreiðastæði.
Kennarar hafa sýnt okkur
ótrúlega biðlund og í húsnæð-
ismálum og hana ber vissu-
lega að þakka, hvort heldur
er við grunnskólann eða
tónlistaskólann. Húsnæðis-
mál Tónlistaskólans eru leyst
og nú þarf að leysa húsnæðis-
mál Grunnskólans.
,,Þrjú stórverkefni undir”
segir Þorsteinn, það er rétt það
er minna en verið hefur. Odd-
vitinn telur upp þau verk sem
unnin hafa verið í hans tíð og
þar er verið að ræða um verk
upp á um 200 milljónir sem
unnin hafa verið á s.l. tveimur
árum og sumum ekki lokið. Í
fyrri tíð þegar Funi var byggð-
ur þá kostaði hann um 300
milljónir fullbúinn og þjón-
ustudeildin um 30 milljónir .
Auðvitað hafa allar þessar
framkvæmdir áhrif á fjárhags-
stöðu sveitarfélagsins. Við
munum klára þau verk sem
ókláruð eru í dag og leysa
húsnæðismál skólans.
Bráðabirgðarhúsnæði á
Torfnesi næstu tvö árin skerðir
ekki æfingasvæði knatt-
spyrnumanna á grasvellinum,
hugsanlega skerðir það afnot
þeirra af malarvelli næsta
sumar, en þá er til staðar svæði
við Skeið sem lagfæra þarf
sem malarvöll, sparkvellir
verði áfram við Skeið eins og
undanfarin ár. Baðaðstaða
verður til staðar hvort heldur
er í íþróttahúsi við Austurvöll
eða í íþróttahúsi við Torfnes.
Viðræður við íþróttahreyfing-
una mun leiða í ljós á hvern
hátt sé hentugast að standa að
uppbyggingu svæðisins í
Tungudal til framtíðar.
Og þannig skapað heilstætt
íþrótta- og útivistarsvæði þar
sem allir geta fundið eitthvað
við sitt hæfi við íþrótta- og
útivistarveru.
Hvað varðar að leysa hús-
næðisvanda Byggðasafnsins,
þá teljum við það mjög góða
lausn að nýta fjármagnið á
þann hátt að húsnæðið verði
byggt sem bráðabirgðar-
kennsluhúsnæði og nýtt síðar
fyrir Byggðasafnið okkar.
Húsið er teiknað með það í
huga að það falli vel að gömlu
húsaþyrpingunni í Neðsta-
kaupstað, en að innra fyrir-
komulagi fullnægi það öllum
kröfum um kennsluhúsnæði.
Við hefðum getað farið þá
leiðina að kaupa lausar
kennslustofur og sett þær
þarna niður og selt síðan með
einhverjum afföllum síðar
meir, en þessi kostur var val-
inn og mun húsið verða nýtt
til þess að varðveita muni
Byggðasafnsins sem nú eru
ekki aðgengilegir almenningi
til sýnis vegna aðstöðuleysis
á lofti Sundhallarinnar við
Austurveg.
Að taka ábyrgð
á gjörðum sínum!
Já Þorsteinn minn, það er
nú með ábyrgðina eins og ann-
að í lífinu, okkur er ekki alltaf
gert kleift að standa við hlut-
ina. Þannig var það í mínu
tilfelli að mér var boðið
ótiltekið sæti á lista sjálf-
stæðismanna og ég lýsti mig
reiðubúna til að taka eitt af
þremur efstu sætum listans,á
grundvelli þess að við værum
þrjú af starfandi bæjarfulltrú-
um listans sem ekki væru búin
að gefa út að við værum hætt
í pólitík. Ég fékk svör nokkr-
um dögum síðar, að ekki væri
fylgi við mig innan uppstill-
ingarnefndar í neitt af þeim
sætum, en mér boðið að skipa
17 sæti listans. Því boði hafn-
aði ég, þar sem ég taldi þá
rétt að draga mig í hlé þar
sem minna starfskrafta væri
ekki óskað.
Ég vil minna á að það varst
þú og Kristján Þór, fyrrum
bæjarstjóri sem hélduð opinn
blaðamannafundur þann 27.
nóvember s.l. þar sem þar
sem þið slituð meirihluta-
samstarfinu en ekki ég eða
Jónas Ólafsson.
Þannig að öllum má ljóst
vera að, þær dylgjur sem þú
og aðrir sjálfstæðismenn
viðhafið nú um ábyrgðar-
leysi núverandi bæjarfulltrúa
eru vísvitandi rangar og þar
að auki ódrengilegur mál-
flutningur.
Á framboðslista sjálfstæð-
ismanna er Jónas Ólafsson í
heiðurssætinu, á lista fram-
sóknar er Kristinn Jón Jóns-
son, á lista bæjarmálafélags-
ins eru Guðrún Á. Stefáns-
dóttir og Sigurður R. Ólafs-
son. Þeir bæjarfulltrúar sem
ekki eru á framboðslistum
eru; Smári Haraldsson, sem
var löngu búinn að taka sínar
ákvarðanir , ég er þetta rita
og Halldór Jónsson.
Kolbrún Halldórsdóttir,
bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæj-
ar fyrir Sjálfstæðisflokk.