Bæjarins besta - 13.05.1998, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
þurrka gleraugun hans og sjá
honum fyrir dóti. Hann er svo
athafnasamur og forvitinn
eftir að heimurinn opnaðist
fyrir honum með þessum
hætti. Það er eins og það sé
hreint ekkert sem fer framhjá
honum. Ég var að gefa honum
skyr og það fór einn dropi á
borðið og hann fór strax að
hræra í dropanum með putt-
anum. Mér var ráðlagt að velja
handa honum litríka hluti að
leika sér að og hafa í kringum
sig, eins og til dæmis rúmföt.
Allt slíkt þroskar sjónina.
Guðmundur læknir sagði við
okkur: Hann er búinn að vera
blindur og þess vegna nýtir
hann þá sjón sem hann fær
mun betur en fullorðinn mað-
ur sem verður sjóndapur, en
sjónin getur aldrei orðið meiri
en 50-70%“, segir Anna.
„Hann sér best nálægt sér,
segir Óttar, en það sem er fjær
sér hann eins og í þoku, þó að
hann sjái hreyfingu. Um
þriggja ára aldur á hann síðan
að fá tvískipt gleraugu, til þess
að sjá bæði nærri sér og frá
sér.“
Fyrsta fjölskyldu-
boðið var áfall...
„En það var eitt sem fylgdi
aðgerðinni“, segir Anna. „Eft-
ir að við komum heim fórum
við í fjölskylduboð og þar var
margt fólk og allir að heilsa
honum og skoða hann og tala
við hann. Þá fékk hann hrein-
lega sjokk, svitnaði og grét
og var alveg óhuggandi. Við
hringdum í Guðmund lækni
og spurðum hvort þetta væri
ekki bara heilbrigt, þar sem
hann væri nýbúinn að fá sjón-
ina. Hann sagði að þetta væri
vissulega mikið áreiti fyrir
hann að vera allt í einu farinn
að sjá og við mættum búast
við að það tæki nokkra mán-
uði fyrir hann að venjast því.
Þess vegna ætti hann að vera
á meðan sem mest í rólegheit-
um í sínu venjulega umhverfi
og við skyldum ekki vera að
fara neitt með hann. Þetta
reyndist alveg rétt hjá Guð-
mundi, því að það er bara eitt-
hvað um einn eða tveir mán-
uðir síðan drengurinn okkar
breyttist í félagsveru, ef svo
má segja. Núna mega allir tala
við hann, hann er glaður og
kátur að hitta fólk og breyt-
ingin er alveg stórkostleg. En
það tók alveg fjóra til fimm
mánuði.“
...en fermingarveislurnar
skemmtilegar
„Ég fór með hann suður um
miðjan mars og fór þar í tvær
fermingarveislur. Ég var í
miklum vafa hvort ég ætti að
fara með hann þangað, því að
við höfðum bara farið með
hann hér á heilsugæsluna en
annars verið með hann hérna
heima. En ég ákvað að taka
hann með, en ætlaði að fara
strax með hann aftur ef honum
virtist líða illa innan um allt
fólkið. Þarna voru tugir af
ókunnugu fólki og mikið
skvaldur og hávaði, en hann
var bara hress og kátur og
klappaði saman höndunum.
Ég fór svo með hann í hina
veisluna líka og þar var sama
sagan og allir máttu tala við
hann. Þá var búið að sýna
þáttinn um hann á Stöð 2 og
þess vegna voru ennþá fleiri
sem vildu heilsa upp á hann
og skoða hann. Þetta var
óskaplega mikil breyting.
Hann er mjög glaðvær og
síhlæjandi og virðist að okkar
mati vera alveg búinn að vinna
upp þann þroska sem skorti á
í upphafi.“
„Hann er búinn að taka út
allan þann þroska á síðustu
mánuðum“, segir Óttar.
Dagamunur á þroska
„Áður en hann fór í aðgerð-
irnar spyrnti hann ekki einu
sinni með fótunum þegar
maður hélt honum uppi. Hann
lá bara og hreyfði sig varla“,
segir Anna. „Nú er hann farinn
að sitja sjálfur og meira að
segja kominn með sex tennur!
Þroskinn kemur mjög hratt um
þessar mundir. Við förum oft
með hann til föðurömmu sinn-
ar og henni finnst hún hrein-
lega sjá mun á honum daglega,
liggur við. Nú er hann ekki
hræddur lengur og orðinn al-
ger félagsvera! Ef hann heyrir
umgang er hann strax hlaup-
inn í göngugrindinni til að sjá
hver er að koma inn.“
Óttar: „Þegar hann verður
kominn á fermingaraldur, þeg-
ar augun eru orðin fullvaxin,
er síðan ætlunin að gera á
honum aðra aðgerð og setja í
hann augasteina úr gleri og
þá á hann að geta hætt að nota
þykk gleraugu. Slíka aðgerð
væri vissulega hægt að gera
fyrr, en þá þyrfti alltaf að gera
það með vissu millibili og
skipta um augasteina eftir því
sem hann stækkaði.“
Notar gleraugun
til að ná athygli
Jón Þorberg er dálítið
óþekkur með gleraugun og
finnst gaman að naga þau,
segja foreldrar hans.
Óttar: „Hann notar þau til
þess að ná athygli. Þegar
enginn er að tala við hann, þá
rífur hann af sér gleraugun og
fer svo að kalla. Þá veit hann
að einhver kemur til hans.“
Anna: „En þegar ég tek þau
af honum til að þurrka af þeim,
eins og auðvitað þarf að gera
oft á dag, þá fer hann aftur á
móti að gráta. Eins og Guð-
mundur læknir sagði, þá elska
þessi börn gleraugun sín ofar
öllu, og þegar þau eldast, þá
eru gleraugun það fyrsta sem
þau grípa til þegar þau vakna
á morgnana.“
Fleiri á skurðstofunni
en þar sáust?
Umsjónarmaður þáttanna
Hver lífsins þraut á Stöð 2 var
Kristján Már Unnarsson
fréttamaður, en hann heitir í
höfuðið á ömmubróður sín-
um, Kristjáni heitnum Sveins-
syni augnlækni. Hann mun
hafa verið fyrsti maðurinn í
heiminum til þess að fram-
kvæma líffæraflutninga, því
að hann byrjaði á því að græða
hornhimnur í fólk. En svo vill
til, að þegar föðuramma Jóns
Þorbergs litla var ung, þá var
hún heimilishjálp hjá Krist-
jáni augnlækni í Reykjavík.
Svona er heimurinn lítill. „Og
einmitt á meðan við vorum
með drenginn fyrir sunnan“,
segir Anna, „þá bar svo við að
hún hallaði sér aftur á bak í
sófanum eftir hádegið og dott-
aði og dreymdi þá Kristján
heitinn, en hefur annars aldrei
dreymt hann, hvorki fyrr né
síðar á lífsleiðinni. Okkur datt
í hug að ef til vill hefðu verið
fleiri á skurðstofunni og vakað
yfir verkinu en við sáum.“
Hlýjan og stuðningurinn...
Þau Anna Kristín og Óttar
vilja koma á framfæri þakk-
læti til hinna fjölmörgu sem
hafa hugsað hlýlega til þeirra
á þessari erfiðu göngu litla
drengsins og höfðu samband
við þau meðan á þessu stóð
og eftir það. „Hlýjan og
umhyggjusemin og stuðning-
urinn sem við höfum mætt
hjá fólki er alveg ótrúleg. Við
vitum líka að það var beðið
fyrir honum þegar hann var í
aðgerðunum. Margir sem við
höfðum aldrei hitt og þekktum
ekkert hafa tekið okkur tali á
förnum vegi og óskað okkur
til hamingju með þetta krafta-
verk.“
Þessu spjalli skal lokið með
ljóði, sem Daniella Holm,
þrettán ára bróðurdóttir Önnu
samdi og sendi frænda sínum
litla um jólin. Ljóðið er inn-
rammað í stofunni á heimili
þeirra:
Ljós lífsins
Eins og fugl sem byrjar
lífsgöngu sína,
lítill og óreyndur.
Svona komstu í heiminn,
lítill og óreyndur.
Þú komst í heiminn án ljóss.
Ekkert ljós þú hafðir.
Þú fékkst alla þá ást og
umhyggju
sem þú gast óskað.
Þetta ljós sem þú ekki hafðir
í fyrstu, kom með smá hjálp.
Núna sérðu, en alltaf muntu
minnast er ekkert þú hafðir.
Og þegar tímar líða mun
Jón Þorberg sjálfur geta lesið
með eigin augum þetta litla
ljóð frænku sinnar frá fyrstu
jólunum sínum, hátíð ljóssins,
þökk sé guði og góðum mönn-
um.
– Hlynur Þór Magnússon.
KARTÖFLURÆKTENDUR ATHUGIÐ!
Nú líður senn að því að fólk fari að
huga að kartöflugörðum sínum. Þeir
sem ekki ætla að vera áfram með
garðland á vegum kaupstaðarins, er
vinsamlegast beðið að láta garðyrkju-
stjóra vita svo hægt verði að úthluta
öðrum garðinum.
Svæðin verða plægð um leið og hægt
verður að komast um þau með vinnu-
vél. Athugið að ganga snyrtilega um
og skiljið ekki eftir plast eða drasl í og
við garðlöndin. Mikilvægt er að fólk
setji einungis viðurkenndar útsæðis-
kartöflur í garða sína til að komast hjá
hættu á sjúkdómum og smiti.
Hægt er að hafa samband við garð-
yrkjustjóra milli kl. 08:00 og 09:30 á
morgnana í síma 456 3443. Einnig er
hægt að skilja eftir skilaboð hjá Ölmu
og Þórdísi í síma 456 3722.
Garðyrkjustjóri Ísafjarðarbæjar.
ÍSAFJARÐARBÆR
Auglýsingar og áskrift sími 456 4560