Bæjarins besta - 13.05.1998, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 13
Sjóminjasafnið á Ísafirði
Líkan af elsta
Fagranesinu
Sjóminjasafnið á
Ísafirði hefur fengið að
gjöf vandað líkan af
fyrsta Djúpbátnum sem
bar nafnið Fagranes.
Gefendur eru Hf. Djúp-
báturinn, Ísafjarðarleið,
Vélbátaábyrgðarfélag
Ísfirðinga og Vélsmiðjan
Þrymur og var gjöfin
afhent sl. laugardag.
Líkanið smíðaði hag-
leiksmaðurinn kunni,
Grímur Karlsson í Ytri-
Njarðvík. Þetta skip
annaðist Djúpferðir í fulla
tvo áratugi, frá 1943 til
1963, og reyndist alla tíð
mikil happafleyta.
Skipið var byggt í
Molde í Noregi árið 1934
sem farþega- og flutn-
ingaskip fyrir Leif Böðv-
arsson og fleiri á Akra-
nesi og mældist þá 60
rúmlestir. Fimm árum
síðar var það stækkað
og mældist þá 70
rúmlestir. Upphaflega
var í skipinu 150 ha vél
en 1946 var sett í það
240 ha vél. Á árunum
1934-1942 var skipið í
póstferðum milli Akra-
ness og Reykjavíkur, en
þá festi Hf. Djúpbáturinn
kaup á því og árið eftir
hóf það áætlunarferðir
um Ísafjarðardjúp, til
Jökulfjarða, norður á
Strandir og vestur á firði
og flutti farþega, vörur
og póst. Einnig var
skipið oft í vöruflutning-
um á milli Ísafjarðar og
Reykjavíkur. Fagranesið
elsta eyðilagðist í bruna
árið 1963 og bar beinin
inni í Reykjafirði í Djúpi.
Framkvæmdastjóri Hf.
Djúpbátsins allan
þennan tíma var Matt-
hías Bjarnason, en
skipstjórar á Fagra-
nesinu eftir að það kom
til Ísafjarðar voru Halldór
Gunnarsson, Gísli
Júlíusson, Ásberg
Kristjánsson og fleiri.
Fulltrúar gefenda ásamt Matthíasi Bjarnasyni, fyrrum framkvæmdastjóra Hf. Djúpbátsins, alþingismanni og ráðherra.
Frá vinstri: Reynir Ingason, núverandi framkvæmdastjóri Hf. Djúpbátsins, Jónas Pétursson frá Vélsmiðjunni Þrym,
Hinrik Matthíasson frá Vélbátaábyrgðarfélagi Ísfirðinga, Kristinn Ebenezersson frá Ísafjarðarleið, Engilbert Ingvarsson,
stjórnarformaður Hf. Djúpbátsins og Matthías Bjarnason.
Matthías Bjarnason afhendir Jóni Sigurpálssyni safnstjóra
Sjóminjasafnsins á Ísafirði gjöfina.
Ísafjörður
Dánargjöf
Hildar S.
Jordan
Í nóvember í vetur lést
Hildur S. Jordan flugfreyja
af völdum slyss sem hún
varð fyrir á heimili sínu í
Reykjavík, fimmtug að ald-
ri. Hún var Ísfirðingur að
uppruna og hafði mælt svo
fyrir, að listaverkasafn henn-
ar skyldi að henni látinni
ganga til Listasafns Ísafjarð-
ar, gamlar brúður til
Byggðasafns Vestfjarða og
bækur til Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins á Ísafirði.
Á sunnudag afhenti móðir
Fimm ísfirskar vinkonur við hluta listaverkagjafar Hildar heitinnar Jordan. Frá
vinstri: Jónína Einarsdóttir, Geirþrúður Charlesdóttir, Lára Gísladóttir, Amalía Kristín
Einarsdóttir og móðir Hildar, Ásthildur Sigurðardóttir.
Hildar heitinnar, Ásthildur
Sigurðardóttir, sem búsett er í
Bandaríkjunum, hluta af
listaverkasafninu hér á Ísa-
firði, þ.e. þær myndir sem eru
tiltölulega litlar og meðfæri-
legar, en hin stærri verk verða
send síðar. Meðfylgjandi
mynd er tekin við það tækifæri
og er Ásthildur þar í hópi
nokkurra vinkvenna sinna frá
fyrri tíð á Ísafirði.
Faðir Ásthildar og afi
Hildar heitinnar var Sig-
urður Sigurðsson, kennari
á Ísafirði, kunnur borgari á
sinni tíð.
145 íbúar í Súgandafirði,
12 ára og eldri, hafa skrifað
undir áskorun til bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar um að byggt
verði heppilegt íþróttahús á
Suðureyri. Það eru nemendur
í 6., 7. og 8. bekk Grunn-
skólans á Suðureyri sem hafa
safnað undirskriftunum. Í
áskoruninni segir, að nemend-
unum auk meirihluta íbúa á
Suðureyri finnist það misrétti
að allir aðrir íbúar Ísafjarðar-
bæjar njóti fyrsta flokks
íþróttaaðstöðu meðan Súg-
firðingar verða að láta sér
nægja lítinn sal í félagsheimili
sveitarinnar. Undirskriftalist-
arnir hafa verið afhentar bæj-
arstjórunum í Ísafjarðarbæ.
Nemendur vilja íþróttahús
Suðureyri
Fulltrúar nemenda í Grunnskólanum á Suðureyri afhenda bæjarstjórum Ísafjarðarbæjar undirskriftalistana að viðstöddum
sóknarpresti sínum. Til hægri eru Jónas Ólafsson, bæjarstjóri, sr. Valdimar Hreiðarsson sóknarprestur á Suðureyri og
Kristinn Jón Jónsson bæjarstjóri með plöggin.
Tvennir nemendatónleikar
í tilefni 50 ára afmælis Tón-
listarskóla Ísafjarðar á þessu
ári verða haldnir í kvöld
(miðvikudag) og á laugar-
dagskvöld. Tónleikarnir í
kvöld verða í Ísafjarðar-
kirkju og hefjast kl. 20.30.
Þeir eru með sérstæðara
móti, því að þar mun nem-
endakvartett leika á ýmis
sjaldheyrð hljóðfæri frá
miðöldum, en kennarar að-
stoða. Efnisskráin er fjöl-
breytt og verða flutt verk
frá liðnum öldum en einnig
nútímaverk.
Efnisskrá tónleikanna á
laugardag, sem hefjast kl.
16.00 í sal Grunnskólans á
Ísafirði, er helguð tónlist frá
hinu svonefnda rómantíska
tímabili tónlistarsögunnar,
eða árunum 1829-1900.
Jónas Tómasson kynnir
verkin og fjallar um nokkur
helstu einkenni rómantíska
stílsins.
Aðgangur að hvorum
tveggja tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
Tónlistarskóli
Ísafjarðar
Fimmtíu ára af-
mælistónleikar
nemenda