Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.05.1998, Síða 16

Bæjarins besta - 13.05.1998, Síða 16
Bæjarins besta ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 Hagnaður Hraðfrystihúss- ins hf., í Hnífsdal nam 179,4 milljónum króna á síðasta starfsári. Tap varð af reglulegri starfsemi, einkum vegna tap- rekstrar í Súðavík, en síðustu fjóra mánuði ársins tókst að snúa rekstrinum við og var þá félagið rekið með hagnaði. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var á laugardag, en þetta er í fyrsta skipti sem fyrirtækið birtir reikninga sína opinberlega. Dótturfélagið Miðfell hf., í Hnífsdal og Frosti hf., í Súðavík sameinuðust Hrað- frystihúsinu hf., 1. maí á síð- asta ári og var sameining fyrirtækjanna endanlega sam- þykkt í byrjun ágúst sama ár og ný stjórn kjörin. Í ljós kom við átta mánaða uppgjör að verulegt tap hafði orðið á starfsemi félagsins í Súðavík. Rækjuverksmiðjan tapaði fé, meðal annars vegna verkfalls og erfiðleika vegna þess að ekki náðust samningar um vaktavinnu. Markaðsaðstæð- ur voru erfiðar og rekstur Bessa ÍS var þungur, meðal annars vegna lélegra afla- bragða á Flæmska hattinum. Á síðustu mánuðum ársins var unnið að breytingum og varð 104 milljóna króna hagn- aður fyrir afskiftir síðustu fjóra mánuði ársins miðað við sex milljóna króna tap fyrstu átta mánuði ársins. Félagið seldi eignarhlut sinn í Trygg- ingamiðstöðinni hf., og eign- arhlut þann sem Frosti hf., hafði átt í Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Söluhagnaður af þessum eignum skýrir meginhlutann af öðrum tekj- um félagsins, alls um 262 milljónir króna, sem gerir það að verkum að hagnaður ársins varð 179 milljónir króna þrátt fyrir 89 milljóna króna halla af reglulegri starfsemi. Um síðustu áramót nam eigið fé fyrirtækisins 589 milljónum króna. Þess ber þó að geta að sá kvóti sem félagið hefur yfir að ráða, liðlega 8.000 tonn í þorskígildum tal- ið auk veiðiheimilda í úthaf- inu, er ekki bókfærður fyrir nema brot af markaðsverð- mæti í dag. Á aðalfundinum á laugar- dag lagði stjórn félagsins til að greiddur yrði 7% arður, tæplega 24 milljónir króna og að stjórn fyrirtækisins yrði veitt heimild til að auka hluta- fé með útgáfu nýrra hlutabréfa að fjárhæð 50 milljónir króna og mun sú heimild vera hugsuð til að liðka fyrir sameiningu við önnur félög, ef slíkir möguleikar verða fyrir hendi. Stefnt er að skráningu Hraðfrystihússins hf., á Verð- bréfaþingi Íslands. Hagnaðist um 179 milljónir króna á síðasta starfsári Hraðfrystihúsið hf., í Hnífsdal og Súðavík Hraðfrystihúsið hf., í Hnífsdal skilaði rúmlega 179 milljóna króna hagnaði á síðasta starfsári.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.