Lindin - 01.04.2004, Blaðsíða 3
Feðginaflokkur
4. til 6. júní 2004 verður feðginaflokkur í Vatnaskógi.
Á dagskrá er gönguferðir, íþróttir bæði úti og inni, kvöldvökur, fræðslustundir o.fl.
Feðnr dœtra!
Nú er enn tækifæri til að koma í feðginaflokk í Vatnaskóg og rifja upp gamlar
minningar.
Dœtur!
Nú er tækifærið að taka pabba með og eiga góða daga í Vatnaskógi.
Sæludagar
Sæludagar eru fastur liður í starfi Vatnaskógar. Þeir verða haldnir um
verslunarmannahelgina 30. júlí til 2. ágúst. Hátíðin er öllum opin og er dagskráin
fjölbreytt svo að fólk á öllum aldri ætti að finna þar eitthvað við sitt hæfl, m.a.
tónleika, íþróttir, kvöldvökur, hæfileikakeppni og leiktæki fyrir börnin. Góð
tjaldstæði eru á staðnum og öll aðstaða hin besta. Tilvalið er fyrir gamla og nýja
Skógarmenn að taka fjölskyldu sína með og njóta töfra Vatnaskógar í góðum
félagsskap.
Þeir sem ekki geta dvalið alla helgina geta staldrað skemur við enda tekur ekki nema
45 mín. til 1 klst. að aka frá Reykjavík.
Taktu fjölskylduna með í Vatnaskóg þar sem allir geta notið sín.
Feðgaflokkar
Feðgaflokkar í Vatnaskógi eru þegar faðir og sonur eða synir
7 ára og eldri og jafnvel afi kemur með og dvelja saman í
Vatnaskógi. Hafa flokkarnir notið mikilla vinsælda og í haust
bjóða Skógarmenn upp á tvo feðgaflokkka. Fyrri flokkurinn
er dagana 27. til 29. ágúst og sá seinni er dagana 3. til 5. sept.
Lindin - Aukablað
Utgefandi: Skógarmenn
KFUM, pósthólf 4060,124
Reykjavík
Ábyrgðarmaður: Ársæll
Aðalbergsson.
Prentun: Prentmet
Þessu blaði er dreift ókeypis
til þeirra sem dvöldu í
Vatnaskógi sumarið 2003.
LINDIN