Reginn - 19.04.1942, Page 1
BLAD TE MPLARA
I
SIGLTJFIRÐI
5. árgangur
Siglufirði, 19. april 1942
3. tölublað
Vorþing
Umdæmisstúkunnar nr. 5 var háð
á Akureyri, dagana 11. og 12,
apríl s. I. Á þinginu mættu 17
fulltrúar frá 7 stúkum og auk þess
nokkrir aðrir templarar.
Umdæmistemplar Stefán Ág.
Kristjánsson skýrði frá störfum
framkvæmdanefndar á árinu og út-
breiðslustarfinu í umdæminu. í
umdæminu eru nú starfandi 7 um-
dæmisstúkur og ein ungmenna-
stúka með samtals 815 félögum
og 13 barnastúkur með samtals
1248 ungtemplurum. Hala þrjár
af þessum barnastúluun verið
stofnaðar á árinu.
Eftirtaldir félagar vo u kosnir í
framkvæmdanefnd fyrir næsta ár:
U. Templ. Stefán Ág. Kristjánsson
' U. Kansl. Hannes J. Magnússon
U. Vt. Þórhildur Hjaltalín
U. Rit. Eiríkur Sigurðsson
U. G. Ólafur Daníelsson
F. U. I. T. Snorri Sigfússon
U. Kap. Bjarni Halldórsson
U. G. U. Marínó L. Stefánsson
U. G. L. Pétur Björnsson
U. G. F. Helgi Steinarr
U. Skr. Jón Kristinsson
Mælt var með Bjarna Hjaltalín
sem umboðsmanni Stórtemplars.
Fulltrúar á Stórstúkuþing voru
kosnir:
Stefán Ág. Kristjánsson
Pétur Björnsson
Varafulltrúar:
Hannes J. Magnússon
Tryggvi Kristinsson.
Á þinginu var tveimur fulltrúum
veitt umdæmisstúkustigið. Þá var
samþykkt að gera Sigurgeir Jóns-
son, söngkennara, að heiðurs-
félaga Umdæmisstúkunnar, í til-
efni af 75 ára afmæli hans ívetur,
og hinu ágæta og langa starfi
hans í þágu Reglunnar.
Á þinginu voru samþykktar
eftirfarandi tillögur og ályktanir:
Tillögur útbreiðsliiuefndar
uorið 1942.
1. Vorþing umdæmisstúkunnar nr.
5 haldið á Akureyri 11. og 12.
apríl 1942 felur framkvæmda-
nefnd umdæmisstúkunnar að
gangast fyrir eins dags bind-
indismannamóti í júnímánuði
n. k., þar sem hún telur bezt
henta. Jafnframt felur þingið
henni að . bjóða til þátttöku
þeim stúkuin og félögum, hér
í nágrenni, sem líkindi eru til
að geti sótt það mót.
2. Vorþing umdæmisstúkunnar fel-
ur framkvæmdanefndinni að
láta rannsaka möguleika á því
að taka saman stutt ágrip af
sögu reglunnar hér norðanlands,
og ef hún telur slíkt tiltækilegt,
þá felur þingið henni að hefja
undirbúning að slíkri útgáfu, svo
að ritið verði fullbúið á 60 ára
afmæli Reglunnar veturínn 1944.
3. Vorþing umdæmisstúkunnar nr.
5, þakkar siglfirzkum templur-
um fyrir það þjóðnytjaverk, sem
þeir vinna með rekstri Sjó-
mannaheimilisins og útgáfu
blaðsins Regins.
4. Með þvi að útbreiðslustarfið í
umdæminu hlýtur alltaf, að
lang mastu leyti að vera í hönd-
um framkvæmdanefndar um-
dæmisstúkunnar, á meðan nú-
verandi skipulag helzt, sér þing-
ið ekki ástæðu til að gjöra
neinar samþykktir þar um. En
hins vegar vill það leggja ríka
áherzlu á, að nú á þessum
upplausnar og alvörutímum,
verði allt kapp lagt á að byggja
upp regluna innan frá, og gjöra
hana siðferðislega sterka og
heilhuga. Beinir það þvi þeirri .
ósk til framkvæmdanefndarinn-
ar og allra stúkna í umdæminu,
að allt verði gjört, sem í þeirra
valdi stendur til að efla Regluna
á þennan hátt, jafnframt sem
unnið sé ötullega að því, að
fjölga félögum hennar.
5. Vorþing umdæmisstúkunnar
felur framkvæmdanefndinni
að athuga, hvort ekki mætti
afla einhvers fjár, t. d. í barna-
heimijissjóð Reglunnar eða ein-
hvers annars menningarfyrir-
tækis, og jafnframt vinna að
bindindisútbreiðslu á óbeinan
hátt, með því að gefa út eitt-
hvað af erindum þeim, sem
flutt hafa verið á útbreiðslu-
fundum Reglunnar hér, eða í
sambandi við umdæmisstúku-
þingin s. 1. 10 ár.
6. Vorþing umdæmisstúkunnar nr.
5 lýsir ánægju sinni yfir fram-
komnu frumvarpi á Alþingi, um
stofnun drykkjumannahælis, og
væntir þess, að það verði sam-
þykkt.
7. Vorþing umdæmisstúkunnar nr.
5 fer fram á, að næsta Stór^
stúkuþing veiti umdæmisstúk-
unni nr. 5 1500.00 kr. styrk
til útbreiðslumála i umdæminu
á næsta starfsári.
Akureyri 11. apríl 1942
Hannes J. Magnússon
Bjarni Halldórsson
Tillögur löggœzlunefndar.
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 5
skorar á Alþing og ríkisstjórn að