Reginn


Reginn - 19.04.1942, Page 3

Reginn - 19.04.1942, Page 3
R E G I N N „Ástkœra, ylhýra málid“ (Framhald). II. Egvil núhverfa aðþeirri málfars- breytingu, sem einna athygliverðust er og algengust, en það er fráhvarf frá nefnifalli og þolfalli til þágu- falls. Hef eg leyft mér að nefna þetta fyrirbrigði: þágufallssýkina Menn segja: honum langar, henni langar,, þeim langar, í stað þess að segja bet: hatui langar, hana langar, þá langar. (Einhvern langar, ekki einhverjum langar). Sagt er: henni klæðir vel svart (eða hvítt), í stað: hana klæðir vel svart (eða hvítt). (Bezt fer á að nota ekki sögnina klæða í þessu sambandi, það er dönsku-skotin íslenzka! í stað þess mætti t. d. segja: henni fer vel svart (eða hvítt) o. s. frv.) Oft heyrist sagt: mér dreymdi, í stað: mig dreymdi, (einhvern dreymdi, ekki einhverjum dreymdi) míg hlakkar til, í stað eg hlakka til; okkur hlakkar til, í stað uið hlökkum til, (maðurinn hlakkar til, ekki manninn eða manninum hlakkar til). Þá tala menn um að pakka ein- hverju inn, í stað þess að pakka eitthvað inn. >Á eg ekki að pakka þessu inn fyrir yður, í stað »Á eg ekki að pakka þetta inn fyrir yður«, einnig tala menn um að pakka honum inn, í stað pakka hatin inn, pakka henni inn, í stað pakka hana inn, allt í þágufalli í stað þolfails. Þá er sagt, að nú þurfi að vökva blómunum, vökva görðunum, í stað þess að segja: að vökva blómin, vökva garðana, m. ö. oiðum: vökva eitthvað, ekki vöka einhverju. Menn tala og um að framlengja einhverju, í stað þess að framlengja eittlivað, t. d. framlengja víxlinum, í stað þess að framlengja víxillinn. (Framlengja einhvern hlut, ekki framlengja ein- hverjum hlut). í einu Reykjavíkur- blaðanna var sagt frá urslitakapp- leiknum milli K. R. og Vals. Var þá m. a. komizt svo að orði: •Fleiri mörkum var ekki skorað«, í stað: Fleiri mörk voru ekki skor- uð. (Skora það, markið, ekki að skora því, markini^). Ýmsir munu ef til villl ætla, að það séu aðeins fáeinir svo- nefndir almúgamenn, sem haga svo málfari sínu, er hér hefur verið frá skýrt, en svo er ekki. Menntamenn vorir eru margir á sömu braut. Eg skal t. d. nefna, að í erindi, er einn lærdómsmaður flutti, komst hann svo að orði, að sólböð og íþróttir hefðu mikil hollustuáhrif á líkamanum, m. ö. orðum: hann talar um að hafa áhrif á einhverju, í stað þess að hafa áhrif á eitt- hvað. Ágætur íslenzkumaður skrifar í greín einni að flokka þeim saman m. ö. orðum hann lætur sögnina flokka taka með sér þágufall i stað þolfalls, talar um að flokka ein- hverju, í stað þess að flokka eitt- hvað. Þá ætti fólk að tala um að flokka- fiskinum, flokka ullinni, o. s. frv. Fyrir svo sem tug ára mundi eng- um íslenzkumanni hafi dottið þetta í hug. Menn hafa látið Svo ummælt, að Útvarpið sé einskonar spegílmynd af menningarástandi þjóðarinnar. Eg hygg að þetta sé i aðalatriðum alveg rétt. Málfarsbreyting þessi — þágufallssýkin — hefur einnig heyrzt í útvarpinu, sem vonlegt er. Þar hefur verið sagt: honum var borinn þungum sökum, í stað: hann var borinn þnngum sökum. Þar hefur einnig heyrzt: þessum samningum var öllum framlengt í stað: þessir samningar voru allir framlengdir. Þar hefur svohljóðandi frásögn verið lesin: »Sagt er, að búið sé að svipta 38 þýzkum mönnum, þýzkum borgararétti«, í stað: sagt er, að búið sé að svipta 38 þýzka menn þýzkum borgararétti; (svipta einhvern einhverju, en ekki svipta einhverjum einhverju). Mörg fleiri dæmi mætti nefna, en þessi verða að nægja. Sýna þau öll greinilega, hvert stefnir í þessum efnum. Og víst er, að fyrír nokkrum árum mundi mjögfáum, (a. m. k. mennta- mönnum), hafa komið til hugar að láta allar þær sagnir, er eg, í undanförnum dæmum, hef nefnt, taka með sér þágufall. Þetta er og brot á þeirri reglu, er hingað til hefur ríkt í íslenzkri tungu, að þegar sögn tekur andlag í þolfalli, þá breytist andlagið ávallt i frum- lag í þolmynd, t. d. (germynd): 5 R E G I N N ÚTGEFANDI: ST. FRAMSÓKN nr. 187. ÚT KOMA 12 BLOÐ Á ÁRI ÁRG. KOSTAR KR. 2,00 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: FRIÐRIK HJARTAR. Afgreiðsiumaður: PÉTUR BJORNSSON. Auglýsingastjóri: JÓN KJARTANSSON. Siglufjarðarprentsmiðja. Kaupendur Regins i Reykjavík eru vinsamlega beðnlr að greiða blaðið til Jóh. Ögm. Oddssonar, Kirkjuhvoli, Reykjavik. Hann framlengdi víxilinn; (þolmynd) víxillinn var framlengdur; (germ.): Árni flokkaði ullina; (þolm.): ullin var flokkuð (af Árna); (germ.): Guðrún vökvaði blómin; (þolmynd): blómin voru vökvuð. En þegar sögn tekur andlag í þágufalli, þá verður setningin frum- lagslaus, t. d.: Hann fleygðí rusl- inu út, — ruslinu var fleygt út; hann ýtti bátnum úr vör; — bátn- um var ýtt úr vör; — konungur fylkti liðinu; — liðinu var fylkt. — Eg tel mig nú hafa fært að því nokkur rök, að þessi málfarsbreyt- ing, fráhvarfið frá nefnifalli og þolfalli til þágufalls, sé orðin býsna almenn. Eg tel víst, að allir muni sjá (og heyra), að hún setur nýjan svip á mál vort, og hann eigi óverulegan. Sumir kunna að segja, að málfarsbreyting þessi sé eðlileg þróun málsins. Eg skal engan dóm leggja á það. En breytingin er staðreynd, og mér viröist hún athygliverð. Eg skora á mennta- menn vora að láta álitt sitt í ljós um hana. Eg er aðeins leikmaður í þess- um efnum og hef enga aðstöðu til að dæma um þessa hluti. En eg vona, að sem flestir vilji, að haml- að sé á móti breytingu þessari og reynt að tefja fyrir henni. Árið 1935 flutti eg erindi í út- varpið um þessi efni. Mun það vera fyrsta erindið, er gerði »þágu- fallssýkina« að umtalsefni. Árinu áður (1934), átti eg tal við pró- fessor Sigurð Nordal um þetta mál. Taldi hann rétt, að reynt væri að tefja fyrir þessari breytingu og rökstuddi þá skoðun sína vel og skarplega, svo sem vænta mátti. Síðan hef eg rætt þetta við hinn

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.